Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 16

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 16
stofnuð var ný deild við stofn- unina sem hlaut nafnið Félags- mála- og upplýsingadeild. Deildarstjóri þessarar nýju deildar var ráðin Guðrún Helgadóttir og í viðtali við árs- rit Sjálfsbjargar sagði hún að starf deildarinnar væri tvíþætt. Annars vegar ætti hún að veita fólki upplýsingar um rétt þess til bóta og aðstoðar. Á hinn bóginn ætti deildin að fylgjast með því sem gerðist hjá skjól- stæðingum stofnunarinnar og samtökum þeirra, koma með hugmyndir og ábendingar um hvaðeina sem til framfara horfði. Endur- hæfingar- stöð stofn- settá Siglufirði Endurhæfing hefur frá upphafi verið eitt af stærstu hagsmuna- málum Sjálfsbjargarfélaganna og flest hafa þau lagt drjúgan skerf til þeirra mála í sínum Sumarmót í Stykkishólmi. I ágúst komu 145 manns saman í Stykkishólmi þar sem sumarmót Sjálfsbjargar stóð heila helgi. Margt var þar sér til gamans gert, þar á meðal siglt um Breiðafjörð og eyjarnar skoðaðar. Sjást nokkrir ferðalanga á myndinni um borð í Baldri. heimabyggðum. Á undanförn- um árum hefur Sjálfsbjörg á Siglufirði gefið öll þjálfunar- tæki til endurhæfingardeildar sjúkrahússins í bænum og voru þau formlega afhent með gjafa- bréfi í ár. Sömu sögu er að segja af öðrum félögum. Félagið í Bol- ungarvík hefur gefið öll tæki til endurhæfingar sem eru á sjúkrahúsi staðarins og félögin á Höfn í Hornafirði, Húsavík, Sauðárkróki og í Neskaupstað hafa einnig gefið sjúkrahúsun- um tæki til endurhæfingar. Á Akureyri er rekin endurhæf- ingarstöð á vegum Sjálfsbjarg- ar og hefur félagið þar gefið þriðjung tækjanna sem þar eru. Pá ber að nefna að félagið á Suðurnesjum hefur gefið sjúkralyftu í sjúkrahúsið í Keflavík og á ísafirði gaf félag- ið sjúkrahúsinu þrekhjól. Flutt í Sjálfs- bjargar- húsið Þann 7. júlí urðu tímamót í starfsemi Sjálfsbjargar því þann dag fluttu fyrstu íbúarnir inn í Vinnu- og dvalarheimili samtakanna að Hátúni 12 í Reykjavík. Rættist þá draum- ur sem samtökin hafa átt sér frá upphafi: að koma upp heimili fyrir mikið fatlað fólk sem hef- ur þurft að dvelja á hinum og þessum stofnunum sem eru ætlaðar fólki með allt aðrar þarfir. Framkvæmdum við fyrsta áfanga er þó ekki lokið. Enn er verið að steypa upp efstu hæðir íbúðarálmunnar og kjallarinn og fyrsta hæðin, þar sem félags- aðstaðan, skrifstofan ofl. verð- ur til húsa, er heldur ekki full- frágengin. í árslok 1972 höfðu verið lagðar tæplega 70 millj- ónir króna í byggingu hússins. Matsalurinn var hins vegar fullgerður þegar fyrstu íbúarn- ir fluttu inn og á meðfylgjandi mynd má sjá nokkra þeirra ásamt framámönnum Sjálfs- bjargar í kaffisamsæti sem haldið var í tilefni dagsins. 16 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.