Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 17
1974
Æskulýðs-
mót fatlaðra
á Norður-
löndum
í júnímánuði var 17. æskulýðs-
mót Bandalags fatlaðra á
Norðurlöndum haldið að Flúð-
um í Hrunamannahreppi en
þetta er í fyrsta sinn sem slíkt
mót er haldið hér á landi. Mót-
ið sóttu 33 erlendir og 10 inn-
lendir þátttakendur, þám. tvær
færeyskar stúlkur sem Sjálfs-
björg bauð sérstaklega en þetta
mun vera í fyrsta sinn sem Fær-
eyingar taka þátt í þessum mót-
um.
Mótið stóð í rúma viku og
var aðalumræðuefni þess
menntun fatlaðra. Einnig voru
fluttir ýmsir fyrirlestrar um
land og þjóð og farið um Njálu-
slóðir með leiðsögn Arna
Böðvarssonar. Og að sjálf-
sögðu gerðu ungmennin sér
ýmislegt til skemmtunar, það
voru haldnir tónleikar og veisl-
ur og náttúran skoðuð, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Félag
stofnað
í Neskaup-
stað
Austfirðir og Austurland hafa
verið eins og hvítir blettir á
landakorti Sjálfsbjargar. Þar
hafa engin félög verið starf-
andi. Þetta breyttist 28. nóv-
ember þegar stofnað var félag í
Neskaupstað. Hlaut það nafn-
ið Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á
Austfjörðum. Á stofnfundi
voru 23 félagar og nokkrir
styrktarfélagar en formaður
var kjörin Þóra Þórisdóttir.
1975
Félagsstarf-
semin flutt í
Hátún
Á þessu ári var lokið við að inn-
rétta þann hluta Sjálfsbjargar-
hússins sem ætlaður er undir
starfsemi landssambandsins og
Sjálfsbjargar í Reykjavík.
Voru skrifstofurnar teknar í
notkun og fer nú öll starfsemi
Reykjavíkurfélagsins fram í
húsinu.
Veggskreyting í Sjálfsbjargarhúsi. Menningarsjóður Sjálfsbjargar í Reykjavík var stofnaður árið 1971
og ákveðið að í hann skyldi renna hluti af tekjum hins árlega basars sem félagið heldur. 18. júlí afhenti sjóðurinn
veggskreytingu sem komið hefur veriðfyrir í anddyri Sjálfsbjargarhússins. Er verkið eftir unga listakonu og nem-
anda í Myndlista- og handíðaskóla íslands, Guðnýju Magnúsdóttur. Á myndinni sést formaður sjóðsstjórnar,
Hinrika Kristjánsdóttir, afhenda Sjálfsbjörg skreytinguna.
SJÁLFSBJÖRG 17