Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Side 18

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Side 18
Norrænt þing á íslandi. 9. þing Bandalags fatlaöra á Norðurlöndum var haldiö á íslandi og er þaö í fyrsta sinn sem þaö fer fram hér á landi. Bandalagið hefur starfað í 30 ár en Sjálfsbjörg hefur átt aðild að því í helming þess tíma. 92 fulltrúar sóttu þingið sem fram fór á Hótel Loftleið- um en síðasta þingdaginn var farið í skoðunarferð til Þingvalla, Gullfoss og Geysis. 1976 Ný endur- hæflngeir- stöð á Akureyri í sumar hófst undirbúningur að því að koma upp nýrri endur- hæfingarstöð á vegum Sjálfs- bjargar á Akureyri. Raunar hefur slík stöð verið rekin þar í bæ síðan árið 1971 en þörfin er fyrir löngu orðin miklu meiri en stöðin getur annað. Um miðjan ágúst var tekin fyrsta skóflustungan að nýrri endurhæfingarstöð. Fyrsti áfangi hennar verður 1.500 fer- metra bygging á einni hæð: sundlaug, böð, sauna, aðstaða til sjúkraþjálfunar, aðstaða fyrir lækni ofl. Einnig verður þar aðstaða til fyrirbyggjandi meðferðar vegna atvinnusjúk- dóma. Hafa verkalýðsfélögin á Akureyri sýnt þeirri aðstöðu, svo og allri byggingunni, mik- inn áhuga. í næsta áfanga er ætlunin að byggja yfir Plastiðjuna en brýnt er að stækka hana því eft- irspurn eftir vinnu við hæfi fatl- aðra er miklu meiri en hægt er að anna. Hjálpeir- tækja- bankinn opnaður í júlí tók-til starfa sameignar- fyrirtæki Sjálfsbjargar og Rauða kross Islands sem hlotið hafði nafnið Hjálpartækja- bankinn. Eins og nafnið gefur til kynna annast bankinn út- vegun hjálpartækja fyrir fatl- aða, bæði til útleigu og sölu. Undirbúningur að stofnun Hjálpartækjabankans hófst að frumkvæði Rauða krossins í árslok 1973 en samstarfssamn- ingur um reksturinn var undir- ritaður um síðustu áramót. Forstöðumaður var ráðinn þann 1. mars í ár og tók Björg- úlfur Andrésson við því starfi. Er hann jafnframt eini starfs- maður bankans. Helsta verkefni Hjálpar- tækjabankans er að taka að sér þá þjónustu sem Sjálfsbjörg og Rauði krossinn hafa hingað til innt af höndum. Hefur hún far- ið ört vaxandi í takt við stór- aukið úrval hjálpartækja. Hjálpartækjabankinn er til húsa að Nóatúni 21 í Reykja- vík. 1977 Kiwanis gefur bíl til flutninga á fötluðum Þann 26. febrúar barst Sjálfs- björg einhver stærsta gjöf sem samtökin hafa fengið þegar Ki- wanishreyfingin á Islandi af- henti samtökunum sérútbúna bifreið til að flytja fólk í hjóla- stólum. Það var Hörður Pét- ursson, forseti Kiwanisklúbbs- ins Kötlu, sem afhenti bílinn. Bíllinn tekur fjóra hjóla- stóla. Þeim er lyft upp í gólf- hæð bílsins með lyftu og síðan eru þeir festir meðan á akstri stendur. Einnig er sæti fyrir hjálparmann bílstjóra. Rekstur bílsins hefur á virk- um dögum verið í höndum Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfsbjargar en á kvöldin og um helgar hafa Kiwanismenn ekið henni í sjálfboðavinnu. Hefur bíllinn verið mikið not- aður, jafnt af íbúum í Hátúni 18 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.