Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Side 21
ræða dvöl fyrir þá sem eru al-
varlega fatlaðir og eru daglangt
einir heima eða búa einir, en
þarfnast afþreyingar, félags-
skapar og umönnunar. Hefur
starfsemi af þessu tagi fyrir all-
löngu unnið sér fastan sess á
Norðurlöndunum.
Steinunn Finnbogadóttir var
ráðin til að veita dagvistinni
forstöðu og vonaðist hún til að
geta tekið við 20 manns í það
húsnæði sem dagvistinni er ætl-
að. Dagvistin verður opin frá
kl. 9-17 virka daga en dvalar-
tími hvers og eins er mjög
breytilegur.
Ferða-
þjónusta
fatlaðra
hefst
Þann 9. janúartóku Sjálfsbjörg
og Reykjavíkurborg við rekstri
Ferðaþjónustu fatlaðra sem
hafði verið rekin um nokkurt
skeið af Sjálfsbjörg og sjálf-
boðaliðum úr Kiwanis-hreyf-
ingunni. Var byrjað með eina
bifreið, þá sem Kiwanismenn
gáfu Sjálfsbjörg fyrir tveimur
árum. Fljótlega keypti Reykja-
víkurborg svo tvo bíla til við-
bótar og eru þeir gerðir fyrir
fjóra hjólastóla og fjóra far-
þega í sætum.
Ferðaþjónustan er ætluð
fólki í hjólastólum og öðrum
hreyfihömluðum sem ekki geta
notað almenningsvagna.
Flutningur fólks í og úr vinnu,
til læknis og endurhæfingar
gengur fyrir öðrum einkaerind-
um. Þjónustan er til reiðu frá
kl. 7.30-24 alla daga nema
sunnudaga en þá hefst akstur
kl. 10. Greiðsla fyrir ferð innan
Reykjavíkur er sú sama og far-
gjald með SVR.
Nýtt félags-
heimili á
Siglufirði
Þann 1. apríl tók Sjálfsbjörg á
Siglufirði í notkun nýtt félags-
heimili f húsi sem það hefur
fest kaup á. Er það að Vetrar-
braut 4, tvær hæðir og er sú
neðri notuð fyrir félagsstarfið
en á þeirri efri er ennþá íbúð.
Félagsstarf Sjálfsbjargar
hefur verið með miklum blóma
frá því félagið var stofnað
snemma sumars árið 1958,
fyrst allra Sjálfsbjargarfélaga.
Haldnir- hafa verið nær 100
fundir og staðið í margháttuð-
um framkvæmdum.
Þegar nýj a húsnæðið var tek-
ið í notkun bárust félaginu
margar kveðjur og heillaóskir,
ma. þessi frá velunnara og
gömlum félaga sem nú býr í
Reykjavík:
Samstyrkt átaka flyturfjöll,
ogfinnur gæfu í starfi sínu.
Vaki gleði og vinsemd öll
og velgengni í húsi þínu.
1980
ALFA-
nefndin
stofnuð
Á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna hefur verið ákveðið að
helga árið 1981 fötluðu fólki
undir kjörorðinu: Fullkomin
þátttaka og jafnrétti. Til þess
að undirbúa árið hér á landi var
skipuð ALFA-nefnd en í henni
áttu upphaflega sæti þau Árni
Gunnarsson formaður, Ólöf
Ríkarðsdóttir og Sigríður Ingi-
marsdóttir. Framkvæmdastjóri
Sundlaug í Sjálfsbjargarhúsinu. Á þessu ári skipulögðu Hjálpar-
stofnun kirkjunnar og Lionshreyfingin á íslandi landssöfnun til þess að
hægt yrði að hraða framkvæmdum við byggingu sundlaugar í Sjálfsbjarg-
arhúsinu. Árangur þessarar söfnunar var geysigóður eða yfir 50 milljónir
króna en áætlaður kostnaður við gerð sundlaugarinnar er 120 milljónir
króna. Eru framkvæmdir nú í fullum gangi eins og sjá má á myndinni.
Margir hafa lagt hönd á plóg við að koma þessari sundlaug í gagnið en á
engan er hallað þótt nafn Maríu Skagan sé nefnt því hún átti drjúgan þátt
í fjársöfnuninni.
SJÁLFSBJÖRG 21