Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 22
nefndarinnar var ráðinn Pórð-
ur Ingvi Guðmundsson. Fleiri
komu við sögu nefndarinnar og
ma. tók MargrétMargeirsdóttir
við formennsku af Arna.
Nefndin taldi það eitt af höf-
uðverkefnum sínum að stuðla
að endurbótum á þeirri löggjöf
sem gildir um málefni fatlaðra
og voru skipaðar tvær undir-
nefndir, önnur til að endur-
skoða og samræma þá laga-
bálka sem gilda um málefni
fatlaðra, hin til að endurskoða
lög um félags- og heilbrigðis-
mál er snerta sveitarfélög.
Annað stefnumál nefndar-
innar var að móta heildar-
stefnu í málefnum fatlaðra til
tíu ára. Fræðslu- og mennta-
mál voru einnig á dagskrá
nefndarinnar, bæði fræðsla um
málefni fatlaðra og bætt
menntunaraðstaða fatlaðra.
Loks stóð nefndin að margvís-
legum kynningaraðgerðum á
ári fatlaðra.
1981
Ár
fatlaðra
Aukaþing
og útifundur
í tilefni af ári fatlaðra efndi
Sjálfsbjörg, landssamband
fatlaðra til aukaþings um miðj-
an júní. Þar var töluvert fjallað
um samstarf Sjálfsbjargar og
Alþýðusambands íslands en
það var töluvert náið á árinu.
Skipuð var samstarfsnefnd
þessara samtaka og lagði hún
fram kröfur um réttindi fatl-
aðra þar sem ma. var fjallað
um lífyerisréttindi fatlaðra og
aðild þeirra sem vinna á vernd-
Bygging verndaðs vinnu-
staðar í Eyjum. Um miðjan júlí
var tekin fyrsta skóflustungan að
vernduðum vinnustað á horni
Faxastígs og Hlíðarvegar í Vest-
mannaeyjum. Þar er ætlunin að
koma upp léttum iðnaði sem gæti
skapað 15-20 ársverk fyrir fatlaða.
Auk Sjálfsbjargar standa að þess-
ari byggingu Félag þroskaheftra,
SÍBS, Rauði krossinn, bæjarsjóð-
ur, verkalýðsfélögin og Vinnuveit-
endafélag Vestmannaeyja. Á
myndinni sést elsti félagi Sjálfs-
bjargar í Eyjum, Jón Karlsson, taka
fyrstu skóflustunguna.
uðum vinnustöðum að stéttar-
félögum.
í tengslum við aukaþingið
var efnt til útifundar á Lækjar-
torgi þann 13. júní. Þangað
komu 3-4.000 manns og þótti
fundurinn takast mjög vel.
Fundarstjóri á fundinum var
Theodór A. Jónsson formaður
Sjálfsbjargar en ræðumenn af
hálfu landssambandsins voru
þau Sigursveinn D. Kristinsson
varaformaður og Hulda Steins-
dóttir frá Siglufirði. Auk þeirra
hélt ræðu Björn Þórhallsson
varaforseti ASÍ og kom fram í
máli hans að Alþýðusamband-
ið hefði ákveðið að taka upp í
kröfugerð sína í komandi
kjarasamningum sérstakar
kröfur um úrbætur í málefnum
fatlaðra. Lokaorð Björns voru
á þennan veg:
„En það sem mestu varðar
er að ekki verði látið sitja
við þá umræðu og ráða-
gerðir sem uppi eru hafðar
á ári fatlaðra. Fleldur verði
hafist handa um fram-
kvæmdir og þeim haldið
áfram, meðan nokkuð er
ógert til gagns í þessum
málum. Og það mun vara
lengi, því að við skulum
vera þess minnug, að góðir
hlutir gerast oft hægt.
Verkalýðshreyfingin óskar
fötluðum velfarnaðar í rétt-
indabaráttunni og mun
styðja þá með ráðum og
dáð.“
Útifundinum bárust fjöl-
margar kveðjur, þám. þessi frá
forseta Islands, Vigdísi Finn-
bogadóttur:
„Ég sendi útifundi Sjálfs-
bjargar á Lækjartorgi ein-
lægar kveðjur, með ósk um
ríkan árangur. Megi þetta
ár, sem ætlað er að vekja at-
hygli á sjálfsögðum rétt-
indamálum fatlaðra, verða
til farsældar um alla fram-
tíð. Heilshugar mun ég
ávallt standa með ykkur."
Styrktar-
sjóður
Sjálfs-
bjargar
stofhaður
í landssöfnun sem gerð var fyr-
ir forgöngu Hjálparstofnunar
kirkjunnar og Lionshreyfing-
arinnar söfnuðust 650.000
krónur sem verða stofnfé
22 SJÁLFSBJÖRG