Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 23

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 23
Styrktarsjóðs Sjálfsbjargar sem stofnaður var í sumar. Hlutverk sjóðsins er að styrkja og aðstoða fatlaða, ein- staklinga eða hópa, hvar sem er á landinu, til þess að létta þeim leiðina til sjálfshjálpar. Einnig er heimilt að veita ófötl- uðum styrki úr sjóðnum í þeim tilgangi að gera þá hæfari til að leiðbeina og aðstoða fatlaða til betra og sjálfstæðara lífs. Nýbygging á Akureyri tekiní notkun Þann 1. mars var tekinn í notk- un fyrsti hluti nýbyggingar sem Sjálfsbjörg á Akureyri hefur unnið að undanfarin fimm ár. Þá flutti Plastiðjan Bjarg inn í kjallara hússins með starfsemi sína en þar vinna að jafnaði 18- 20 manns. Einnig var skrifstofa félagsins og aðstaða byggingar- stjóra flutt í kjallarann. Meginhlutverk hins nýja húss verður hins vegar að bæta aðstöðu fyrir endurhæfingu. í október flutti endurhæfingar- stöðin í hluta þess húsnæðis sem henni er ætlað í framtíð- inni. Er hún til húsa í sal sem einungis er ætlaður til sjúkra- þjálfunar. Verður bráðlega hafist handa við það sem eftir er en í þeim hluta hússins er gert ráð fyrir íþróttasal og sundlaug. Nýtt félag á Blönduósi Sjálfsbjargarfélögin eru nú orðin fjórtán því 2. aprfl í ár var stofnað félag á Blönduósi. Nefnist það Sjálfsbjörg, félag fatlaðra í Aust- ur-Húnavatnssýslu. Fyrsti for- maður hins nýja félags var kjör- inn Guðmundur Klemenzson. 1982 Dagvist fatlaðra flyturí nýtt húsnæði I aprílbyrjun flutti Dagvist Sjálfsbjargar í nýtt húsnæði í Sjálfsbjargarhúsinu en frá því dagvistin var stofnuð fyrir þremur árum hefur hún verið þar í bráðabirgðahúsnæði. Nýja húsnæðið er bjart og rúm- gott. Sérinngangur með að- gangi fyrir hjólastóla er inn í það og vinnu- og hvíldarað- staða er mjög góð að sögn Steinunnar Finnbogadóttur forstöðumanns. Dagvistin er nú fullsetin en hún rúmar 30 manns. Ríkis- stjómin gefur út yfir- lýsingu um málefni fatlaðra Nú er að koma í ljós árangur af samstarfi Sjálfsbjargar og Al- þýðusambands íslands. í kjarasamningum sem gerðir voru í vor lagði ASÍ áherslu á að knýja fram yfirlýsingar stjórnvalda um úrbætur í mál- efnum fatlaðra. Þann 30. júní gaf ríkisstjórnin svo út yfirlýs- ingu þar sem því er ma. heitið að á næsta þingi verði lögð fram frumvörp að lögum um málefni fatlaðra og málefni aldraðra. Ætlar ríkisstjórnin að beita sér fyrir því að þau verði að lögum á því þingi. Auk þess ætlar ríkisstjórnin að hraða samningu reglugerðar um verndaða vinnustaði. Hún lýsir sig sammála því að starfs- fólk slíkra vinnustaða „eigi að njóta þess ótvíræða lagaréttar sem er aðild að verkalýðsfélög- um með fullum félagsskyldum og félagsréttindum, svo sem orlofi, atvinnuleysisbótum, líf- eyrissjóðum, sjúkrasjóðum, orlofsheimilum og öðrum stofnunum verkalýðshreyfing- arinnar." Þá ætlar stjórnin að hækka bensínstyrk sem öryrkjar njóta vegna reksturs bifreiðar, svo og að rýmka reglur um fjölda þeirra sem njóta slíks styrkjar. Þetta ákvæði var staðið við strax um haustið. Sama er að segja um það fyrirheit að stofn- uð verði samstarfsnefnd ASÍ, hagsmunasamtaka fatlaðra og ríkisvaldsins. 1983 Ný lög um málefni fatlaðra I marsmánuði samþykkti Al- þingi ný lög um málefni fatl- aðra en þau ganga í gildi 1. janúar 1984. Með þessum lög- um er búið að setja eina heild- arlöggjöf um málefni fatlaðra, burtséð frá því af hverju fötlun þeirra stafar. Samkvæmt lögunum heyra málefni fatlaðra undir þrjú ráðuneyti: félagsmála-, SJÁLFSBJÖRG 23

x

Sjálfsbjörg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.