Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Side 24

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Side 24
menntamála- og heilbrigðis- ráðuneyti en það fyrstnefnda annast yfirstjórn á málefnum fatlaðra. Til þess verður skipuð sérstök stjórnarnefnd sem á að gæta þess að ráðstafanir opin- berra aðila varðandi fatlaða verði samræmdar auk þess sem hún úrskurðar um ágreinings- atriði sem upp kunna að koma um framkvæmd laganna. Und- ir stjórnarnefnd starfa svo svæðisstjórnir í kjördæmunum átta. Er ætlunin með þessari skipan að stuðla að því að þjónusta við fatlaða verði auk- in úti um landið svo þeir þurfi ekki að yfirgefa heimabyggð sína til að njóta hennar. Ýmis önnur nýmæli eru í lög- unum en þau helstu varða stofnun Greiningar- og ráð- gjafarstöðvar ríkisins og Fram- kvæmdasjóð fatlaðra sem á að fjármagna byggingar hinna ýmsu stofnana fyrir fatlaða. SEunráðs- nefnd um málefni fatlaðra Nýju lögin um málefni fatlaðra og reglugerðin um verndaða vinnustaði var send til umsagn- ar samráðsnefndar um málefni fatlaðra sem einnig er afkvæmi yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá því í fyrrasumar. Nefndin tók til starfa í sept- ember í fyrra og hefur hún haldið 16 fundi. Auk ofan- nefndra atriða hefur hún fjall- að um samræmingu í byggingu skólahúsnæðis, endurhæfingu, starfsmenntun og breytingu á lögum um almannatryggingar. Hefur það sýnt sig að full þörf er á því að svona nefnd sé starf- andi og bíða fjölmörg hags- munamál fatlaðra úrlausnar. í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi íslands, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Öryrkjabandalaginu, Sjálfsbjargar og Þroskahjálp- ar, auk formannsins sem er Margrét Margeirsdóttir, deild- arstjóri í félagsmálaráðuneyt- inu. Reglugerð um vemdaða vinnustaði í samræmi við yfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar frá 30. júní 1982 setti Svavar Gestsson félags- málaráðherra reglugerð um verndaða vinnustaði og tekur hún gildi um næstu áramót um leið og lög um málefni fatlaðra. Hús keypt á Akranesi Sjálfsbjargarfélagið á Akra- nesi festi kaup á húseign á árinu. Er þar um að ræða 30 fermetra pláss í húsinu Suður- götu 36. Er ekki að efa að þetta húsnæði mun nýtast félaginu vel til félagsstarfa í framtíð- inni. 1984 25ára afmæli Sjálfs- bjargar Á ársþingi Sjálfsbjargar sem haldið var dagana 8.-10. júní var þess minnst að 25 ár eru lið- in frá stofnun landssambands- ins. Var þingsetningin venju fremur hátíðleg og í tilefni af afmælinu bauð forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, þing- fulltrúum til Bessastaða. í ársritinu er viðtal við for- mann landssambandsins, Theodór A. Jónsson. Þar nefn- ir hann nokkur dæmi um það sem hefur breyst á þessum ald- arfjórðungi. „Þá var sú skoðun ríkjandi að maður í hjólastól væri einskis nýtur, og það vakti athygli, ef þeir sáust á göt- um úti. Þá var ekki um auð- ugan garð að gresja, þegar litið var til vistunar fatlaðra á stofnunum. Elliheimilin voru eini möguleikinn og þangað voru þeir settir. Sjálfur var ég vistaður á elli- heimili í tvö ár þangað til ég neitaði að vera þar lengur og fór... Þá sóttu fatlaðir afar sjald- an almennar skemmtanir og oft var þeirra fyrsta skref út úr einangruninni að mæta á fundi eða skemmt- anir hjá Sjálfsbjörg. Nú er þetta, sem betur fer, mikið breytt. Fatlaðir vekja ekki lengur athygli á götum úti og þeir sækja talsvert skemmtanir og fundi eins og aðrir.“ Hjóiastóla- rall I marsbyrjun tók Sjálfsbjörg upp á þeirri nýbreytni til þess að vekja athygli á aðstæðum hjólastólafólks í samfélaginu að efna til hjólastólaralls í Laugardalshöllinni. Var rallið liður í hátíðarhöldum í tilefni af aldarfjórðungsafmæli Sjálfs- bjargar. Tókst það hið besta og höfðu fjölmargir áhorfendur 24 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.