Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Page 26
Nýtt félag
á Höfn í
Homafirði
8. desember var stofnað nýtt
Sjálfsbjargarfélag á Höfn í
Hornafirði og er starfssvæði
þess Austur-Skaftafellssýsla.
Formaður hins nýja félags var
kjörin Guðlaug Hestnes.
Sjálfsbjargarfélögin eru þá
orðin fimmtán talsins.
1985
Húsnæðis-
mál fatlaðra
Viðhorf í húsnæðismálum fatl-
aðra hafa tekið örum breyting-
um og til þess að henda reiður á
þeim skipaði Sjálfsbjörg starfs-
hóp. Skilaði hann tillögum sín-
um til 23. þings samtakanna
sem haldið var í júní. Af helstu
niðurstöðum hópsins má nefna
þessar:
„Við viljum, að allir, jafnt
fatlaðir sem ófatlaðir geti
sjálfir ráðið því hvar og í
hvers konar húsnæði þeir
búa. Húsnæði þarf að vera
þannig úr garði gert, að fólk
geti búið í því frá vöggu til
grafar, þó svo að það fatlist
einhvern tíma á lífsleiðinni.
Skipulag sem tekur tillit til
fatlaðra, er skipulag, sem
nýtist öllum. Gleymska og
trassaskapur í skipulags-
málum er misrétti gagnvart
öllum þegnum þjóðfélags-
ins. Gott skipulag getur
hins vegar dregið verulega
úr áhrifum fötlunar.
Kjarni stefnu Sjálfsbjargar
í þessum málaflokki felst í
hugtakinu blöndun. Með
því er átt við, að fatlaðir
eigi heima innan um ófatl-
aða. Til þess að þetta megi
takast, verður að uppfylla
ákveðnar kröfur:
* Húsnæði verður að vera
aðgengilegt
* Skipuiag þarf að vera í
lagi
* Grundvallarþjónusta
þarf að vera fyrir hendi
* Einstaklingurinn þarf að
geta ráðið sér sjálfur
Lykilhugtökin í þessari
stefnu eru:
* Gott skipulag
* Sjálfsákvörðunarréttur
* Blöndun
986
Atvínnumál
fatlaðra í
brennidepli
Töluverðar umræður hafa orð-
ið um atvinnumál fatlaðra í
kjölfar ráðstefnu sem haldin
var um þau á vegum samráðs-
nefndar um málefni fatlaðra í
fyrra. Nefndin hefur gefið út
bækling sem ber heitið Út að
vinna - leiðbeiningar fyrir fatl-
aða sem œtla út að vinna og
eru í honum ýmsar gagnlegar
ábendingar fyrir' þá sem vilja
reyna fyrir sér á vinnumarkaði.
í ársritinu birtist viðtal við
Ástu B. Schram hjá Ráðning-
arstofu Reykjavíkurborgar.
Segir hún frá starfsemi öryrkja-
deildar Ráðningarstofunnar
sem hefur unnið drjúgt starf að
því að auka atvinnumöguleika
fatlaðra, ma. með því að eyða
fordómum og vanþekkingu
sem víða ríkir úti í atvinnulíf-
inu. í viðtalinu kom fram að
möguleikar fatlaðra hefðu auk-
ist talsvert en þó væri alltaf
nokkur hópur sem eygði enga
vona aðra en verndaða vinnu-
staði, af þeim væri hins vegar
allt of lítið í Reykjavík.
Hjólastólarall. Sjálfsbjörg efndl f haust öðru sinnl til hjólastólaralls í
Laugardalshöll í þeim tilgangi að vekja athygli á erfiðleikum fólks í hjóla-
stólum í samfélaginu. Að þessu sinni kepptu arkitektar, sveitarstjórnar-
menn og skemmtikraftar við notendur hjólastóla. Að sjálfsögðu sagði
reynslan til sín því í tveim efstu sætum urðu fatlaðir, þá kom arkitekt, svo
tveir þjóðkunnir dægurlagasöngvarar og bæjarstjóri í sjötta sæti. Inn á
milli voru skemmtiatriði og vakti þessi uppákoma mikinn fögnuð áhorf-
enda sem voru á annað þúsund.
26 SJÁLFSBJÖRG