Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 28

Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Blaðsíða 28
Stóð sýningin í þrjá daga og sótti hana fjöldi fólks. Var þetta í annað sinn sem slík sýn- ing var haldin en sú fyrsta var haldin árið 1985. Er ætlunin að sýningar sem þessar verði fast- ur liður í framtíðinni. Tölvumið- stöð fatlaðra Um áramótin tók til starfa Tölvumiðstöð fatlaðra en hún hefur aðsetur í Sjálfsbjargar- húsinu. Hugmyndin að þessari miðstöð kviknaði í umræðum svonefnds SAFÍR-hóps en Sjálfsbjörg á aðild að henni. Tilgangur miðstöðvarinnar er að safna upplýsingum um vél- búnað og hugbúnað sem nýtist fötluðu fólki til atvinnu, náms og tómstundastarfs, þróa slík- an búnað og laga hann að ís- lenskum aðstæðum og koma honum út til þeirra sem þurfa á honum að halda. Loks er það verkefni miðstöðvarinnar að halda saman upplýsingum um ráðstefnur og námskeið á sviði tölvunotkunar fatlaðra. Ekki þarf að tíunda það hversu mikla möguleika tölvu- byltingin getur fært fötluðum á fjölmörgum sviðum. Húnfæðir af sér ný tæki sem eykur færni þeirra og möguleika á að tjá sig, hreyfa sig og stunda vinnu. Þess vegna er nauðsynlegt að fatlaðir og samtök þeirra fylgist vel með því sem gerist á þessu sviði og miðli upplýsingum til þeirra sem geta hagnýtt sér nýj- ungarnar. Til þess er Tölvu- miðstöðin. Forstöðumaður hennar var ráðinn Sigurjón Einarsson. 1988 Ný vinnu- stofa í Reykjavík í haust tók til starfa vinnustofa fyrir fatlaða á vegum Sjálfs- bjargar í Reykjavík. Er hún til húsa að Dvergshöfða 27 en for- stöðumaður hennar er Magnús Halldórsson. Keypt var vélasamstæða frá Ítalíu sem framleiðir plastöskj- ur, td. utan um smjör, og bakka undir egg, hamborgara ofl. Einnig er búið að festa kaup á vélum fyrir svonefndar skinn- og blisterpakkningar fyrir skrúfur og ýmsa smáhluti. Þegar líður á haustið er búist við að 10 manns verði komnir í hálfsdags starf í vinnustofunni en í framtíðinni á hún að veita 40-50 manns vinnu hálfan dag- inn. Samstarl um félags- legar hús- byggingctr Sjálfsbjörg hefur tekið þátt í samstarfi átta félagasamtaka um húsnæðismál. Húsnæðis- nópurinn hélt ráðstefnu haust- ið 1987 undir heitinu Þak yfir höfuðið og voru helstu niður- stöður hennar gefnar út í sam- nefndum bæklingi. Samtökin sem að þessu sam- starfi hafa staðið eru auk Sjálfsbjargar: Öryrkjabanda- lag íslands, Landssamtökin Proskahjálp, Samtök aldraðra, Stúdentaráð Háskóla Islands, Bandalag íslenskra sérskóla- nema, Leigjendasamtökin og Búseti - landssamband hús- næðissamvinnufélaga. Alls hafa þessi samtök 30-40.000 fé- lagsmenn. Umræðuefni hópsins og ráð- stefnunnar voru félagslegar íbúðabyggingar en segja má að kveikjan að stofnun hópsins hafi verið setning laga um hús- næðismál í kjölfar kjarasamn- inga árið 1986. í þeim samning- um var fyrst og fremst tekið á almenna húsnæðislánakerfinu en félagslega íbúðakerfið varð útundan. Var það tilgangur samstarfsins að reka á eftir því að félagslegar íbúðabyggingar yrðu efldar og um þær sett haldgóð löggjöf. Samdi hópur- Vélar prófaðar. Magnús Halldórsson framkvæmdastjóri og Einar Ein- arsson verkstjóri á vinnustofu Sjálfsbjargar við Dverghöfða 27 í Reykja- vík. 28 SJÁLFSBJÖRG

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.