Sjálfsbjörg - 01.07.1989, Side 35
Reykjavík og nágrenni, 27.
júní 1958, þá aðeins 18 ára að
aldri. Hann var ritari Sjálfs-
bjargar í Reykjavík fyrstu tvö
árin. Árið 1959 þegar Sjálfs-
bjargarfélögin stofnuðu með
sér landssamband var hann
kjörinn varaformaður þess.
Árið eftir varð hann formaður
Sjálfsbjargar, landssambands
fatlaðra. Þegar Theodór tók
við formennsku hjá landssam-
bandinu voru Sjálfsbjargarfé-
lögin sem mynduðu það átta að
tölu, 28 árum síðar árið 1988
þegar hann lét af formennsku
voru Sjálfsbjargarfélögin orðin
fimmtán. Undir forystu hans
hefur Sjálfsbjargarhreyfingin
stöðugt sótt fram og hvergi
hvikað í baráttunni fyrir samfé-
lagi öllum til handa.
Bandalag fatlaðra á Norður-
löndum var stofnað 1961 og var
Theodór frá upphafi í stjórn
þess fyrir íslands hönd. Árin
1968 til 1972 var hann formað-
ur Bandalags fatlaðra á Norð-
urlöndum. Theodór var í
stjórn Hjálpartækjabanka
Sjálfsbjargar og Rauða kross
íslands frá stofnun hans til 1980
og varamaður í stjórn Öryrkja-
bandalags íslands frá 1988.
Hann var í framkvæmdanefnd
Alþjóðaárs fatlaðra, varamað-
ur í tryggingaráði Trygginga-
stofnunar ríkisins fyrir Fram-
sóknarflokkinn frá 1974 til
dánardags og sinnti ýmsum fé-
lagsmálastörfum fyrir Fram-
sóknarflokkinn í sínu sveitar-
félagi á Seltjarnarnesi þegar
hann bjó þar. Á sínum yngri
árum var Theodór virkur í
starfi Félags ungra framsókn-
armanna.
Auk þess að vera mikilvirkur
félagsmálamaður var Theodór
stórbrotinn persónuleiki.
Hann var sannur vinur vina
sinna og það var hans líf og
yndi að vera í góðra vina hópi.
Theodór hafði unun af ferða-
lögum og hafði komið víða.
Þótt hann þyrfti mikla aðstoð á
þeim lét hann það ekkert á sig
fá og vinir hans, einkum Tómas
Sigurðsson, voru óþreytandi
við að aðstoða hann á ferðalög-
um hans. Það var oft glatt á
hjalla í þessum ferðum og
margar góðar minningar
streyma fram í hugann þegar
mér verður hugsað til þeirra.
Theodór var ræðumaður góður
og á viðeigandi stundum hélt
hann stórskemmtilegar tæki-
færisræður auk þess sem hann
hélt gjarnan fjörinu gangandi
þegar Sjálfsbjargarfélagar hitt-
ust.
Þegar Theodór lét af for-
mennsku hjá Sjálfsbjörg,
landssambandi fatlaðra, á síð-
astliðnu ári varð hann auk ann-
arra starfa sinna framkvæmda-
stjóri Sjálfsbjargar. Theodór
var kjölfestan í starfi Sjálfs-
bjargar og honum verður best
lýst með því að segja að hann
hafi verið talandi tölvubanki
um málefni fatlaðra og Sjálfs-
bjargar. Missir okkar Sjálfs-
bjargarfélaga er því mikill og
skarð Theodórs verður vand-
fyllt. Með samstilltum frum-
herjum Sjálfsbjargar vann
Theodór stórvirki í því að
breyta viðhorfum og aðstæðum
í íslensku þjóðfélagi til hags-
bóta fyrir fatlaða. Það væri
ekki í anda Theodórs að leggja
árar í bát þó móti blási, hann á
það inni hjá okkur öllum að
blásið sé í herlúðrana og ný
sókn verði hafin fyrir betri
framtíð, fyrir samfélagi fyrir
alla.
Ég votta Ragnari bróður
Theodórs, aðstandendum, ætt-
ingjum, vinum og Sjálfsbjarg-
arfélögum öllum dýpstu samúð
vegna fráfalls hans.
Jóhann Pétur Sveinsson
formaður Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra
Sjálfsbjörg
1989
Útgefandi:
Sjálfsbjörg, landssam-
band fatlaðra.
Ritstjóri og
ábyrgðarmaður:
Ólöf Ríkarðsdóttir.
Samantekt á
sögulegum annál:
Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir:
Ýmsir.
Útlit og umsjón:
Þröstur Haraldsson.
Prentvinnsla:
ísafoldarprentsmiðja hf.
Forsíðumyndina tók
Jóhannes Long af Sjálfs-
bjargarhúsinu á afmælis-
degi samtakanna, 4. júní.
SJÁLFSBJÖRG 35