Sjálfsbjörg - 01.07.1996, Blaðsíða 21
Bæjarfulltrúar aö reyna fyrir sér gangstéttaleiðina
í gegnum bæinn á hjólastólum.
Hjóla-
stólarall
á Húsavík
Linda, starfsmaöur íslandsbanka. Sú stofnun
fékk viðurkenningu meöal annarra.
Haldiö var hjólastólarall á
Húsavík 16. ágúst sl. í
samvinnu Sjálfsbjargar, félags
fatlaðra á Húsavík og félags-
málastjóraembættisins. Mark-
miöiö meö hjólastólarallinu var
aö vekja athygli á aðgengi fyrir
hreyfihamlaö fólk aö fyrirtækj-
um og opinberum stofnunum í
bænum.
Fimm hjólastólar vom á ferð-
inni allan daginn. Forsvarsmenn
fyrirtækja og opinberra stofnana,
sem höfðu skráð sig til leiks,
fengu tækifæri til að kynnast af
eigin raun hvernig það er fyrir
fólk í hjólastól að sækja þjónustu
og sinna erindum í þeim fyrir-
tækjum og stofnunum sem þeir
eru í forsvari fyrir. Bæjarstjómar-
fulltrúar fengu einnig að setjast í
hjólastóla og spreyta sig við að
komast hjálparlaust í gegnum bæ-
inn og að sundlauginni. Þar lauk
rallinu á að forstöðumaður sund-
laugar reyndi að komast inn í
sundlaugina án aðstoðar. Að-
standendur rallsins vissu að það
myndi ekki ganga þrautalaust, en
vildu vekja sérstaka athygli á
brýnni nauðsyn þess að aðgengi þar yrði
lagfært. Fosrtöðumanninum tókst að lok-
Rúnar forstöðumaöur sundlaugarinnar reynir
aö komast inn um bakdyr á vinnustaö sínum.
um, með miklum bamingi og eftir króka- gengi
leiðum, að komast inn í sundlaugina. unum
Guðríður Ólafsdóttir, formaður
Sjálfsbjargar, landssambands fatl-
aðra, veitti 6 fyrirtækjum viður-
kenningu fyrir gott aðgengi. Þessi
fyrirtæki voru: KÞ Matbær, KÞ
Naustagil, Islandsbanki, Póstur og
sími, Verkalýðsskrifstofurnar og
Heilsugæslan. Sundlaug Húsavík-
ur var hinsvegar úthlutað
skammarverðlaununum „Þrándi í
Götu“.
Hjólastólarallið á Húsavík
þótti takast með miklum ágætum
og ætlunun er að það marki upp-
hafið að hjólastólaralli á landsvísu.
Formönnum Sjálfsbjargar á Akur-
eyri og Vopnafirði voru sendar á-
skoranir um að halda hjólastólarall
að ári hjá sér og þeim tilmælum
jafnframt beint til þeirra að senda
slíkar áskoranir áfram til ná-
grannasveitarfélaga þar sem
Sjálfsbjargarfélög em starfandi, og
svo koll af kolli þar til rall hefur
verið haldið hringinn í kringum
landið.
Sjálfsbjörg, landssamband fatl-
aðra vill þakka félagmálastjóra og
Sjálfsbjörg á Húsavík fyrir þetta
lofsverða frumkvæði, sem von-
andi á eftir að skila sér í bættu að-
fyrir alla að fyrirtækjum og stofn-
um allt land á komandi árum.
SJÁLFSBJÖRG tí