Fréttablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 1
2 1 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s Þ R I Ð J U D A G U R 1 . F E B R Ú A R 2 0 2 2 Tími og lýsing í Ein komst undan Hipparnir rugga Spotify-bátnum Menning ➤ 13 Lífið ➤ 20 Fullvaxinn fjórhjóladrifinn rafmagnsbíll Settu saman þinn ID.4 GTX á www.hekla.is/gtx Komdu og prófaðu! HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 Verð frá 7.150.000 kr. „Þau eru orðin sjóaðri í þessu,“ sagði Anna Bryndís Blöndal lyfjafræðingur um bólusetningar á börnum sem fram fóru í gær og munu halda áfram í vikunni. Hún segir að gærdagurinn hafi verið sá auð- veldasti hingað til, en talsvert færri börn mættu en fyrri daga, meðal annars vegna veðurs. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Margir greindust á Litla- Hrauni í síðustu viku með Covid-19. Umboðsmaður Alþingis kannaði aðstæður í fangelsinu í gær. Hann segir aðgengi fanga að skimun mikilvægt svo að einangrun lengist ekki óþarflega. lovisa@frettabladid.is FAN G E L S I S M ÁL Umboðsmaður Alþingis kom athugasemdum sínum varðandi einangrun og sóttkví fanga á Litla-Hrauni munnlega til fang- elsismálayfirvalda eftir heimsókn embættisins í fangelsið í gær. „Við væntanlega lokum málinu með bréfi en helstu athugasemdum hefur verið komið á framfæri við fangelsismálastjóra og forstöðu- mann fangelsisins og það er góður vilji til samvinnu af þeirra hálfu,“ segir Skúli Magnússon, umboðs- maður Alþingis. Tilefni heimsóknarinnar var meðal annars fréttir um heimsókna- bann og takmarkanir í fangelsinu eftir kórónaveirusmit meðal fanga í síðustu viku. Rætt var við forstöðu- mann fangelsisins, annað starfsfólk og svo við fanga, bæði í sóttkví og einangrun. „Það er búið að haga málum þann- ig að fangar geta verið eins mikið og hægt er frjálsir ferða sinna og þann- ig búið að skipta fangelsinu upp að menn eru annað hvort í einangrun saman eða í sóttkví saman,“ segir Skúli. Allt fangelsið var í annað hvort sóttkví eða einangrun. Í fáum tilfellum var þetta ekki hægt. Því hafa nokkrir fangar verið inni í klefa og ekki getað farið fram eða notað sameiginlega aðstöðu í einangruninni. Skúli segir helst kvartað um töf á prófum til að staðfesta smit eða losa fanga úr sóttkví. Því hafi upphafs- degi smits seinkað eða sóttkví verið lengri en nauðsynlegt var. „Einangrun og sóttkví kemur öðruvísi niður á mönnum sem eru frelsissviptir en þeim sem eru frjálsir ferða sinna,“ segir Skúli. Því hafi verið skoðað hvort sóttkví og ein- angrun væri sem minnst íþyngjandi. „Að mínu mati var þetta mjög brýnt og það verður að hafa það í huga með þessa menn að þeir eru í talsvert annarri stöðu en almennir borgarar sem geta sjálfir leitað eftir þessum prófum eða haft frumkvæði að því,“ segir Skúli. Áríðandi sé að fangelsismálayfirvöld sjái til þess að það sé gert eins skjótt og hægt er. n Umboðsmaður Alþingis heimsótti Litla-Hraun Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.