Fréttablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 11
KYNN INGARBLAÐ ALLT ÞRIÐJUDAGUR 1. febrúar 2022 Námskeiðið verður í boði í dag og næsta þriðjudag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY oddurfreyr@frettabladid.is Í dag og næsta þriðjudag, þann 8. febrúar, verður boðið upp ókeypis námskeið í teikningu á Borgarbókasafninu í Árbæ. Nám- skeiðið stendur yfir milli klukkan 16.30 og 18.30 báða dagana. Á námskeiðinu verður lögð sér- stök áhersla á teikningu andlita. Námskeiðið hentar öllum sem eru 16 ára og eldri og hafa áhuga á teikningu, en miðað er við að þátt- takendur mæti báða dagana. Allt í boði á staðnum Í tilkynningu frá bókasafninu kemur fram að það sé ekki gert ráð fyrir að þátttakendur undir búi sig á neinn hátt og það er ekki heldur gert ráð fyrir að fólki hafi einhverja kunnáttu áður en það kemur. Það eru einfaldlega allir sem sem hafa áhuga á að spreyta sig í teikningu boðnir velkomnir. Það verður myndlistarkonan Kristín Arngrímsdóttir sem sér um kennslu á námskeiðinu og allt sem þarf til að teikna verður í boði á staðnum, svo það þarf ekki að hafa með sér neinar græjur. Á námskeiðinu verður farið yfir ýmis grunnatriði í teikningu, en aðaláherslan verður á kennslu í að teikna andlit. ■ Teikninámskeið á Borgarbókasafni HEILBRIGÐ MELTING Góðgerlar, meltingarensím, jurtir og trefjar www.celsus.is / apótek, Hagkaup og víðar Allt starf Villikatta er unnið í sjálfboðavinnu og Arndís segir að þau eigi styrkjum frá almenningi mikið að þakka. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Færist í aukana að kettir séu yfirgefnir Undanfarið hefur þeim heimilisköttum sem hafa villst frá heimili sínu og lent á flakki fjölgað en villiköttum fækkað. Arndís Björg Sigurgeirsdóttir, formaður Villikatta, segir að sjálfboðaliðar félagsins finni öllum týndum kisum gott heimili. 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.