Fréttablaðið - 01.02.2022, Blaðsíða 28
Aðeins verða fram-
leidd 100 eintök á
ári af GT2 ofurbílnum.
Rafdrifin Micra
verður á sama CMF
undirvagni og rafdrifinn
Renault 5.
njall@frettabladid.is
Renault er á leið á markað á þessu
ári með nýjan jeppling sem tekur
við af Kadjar og byggður er á nýja
CMF-CD3 undirvagninum. Bíll-
inn kallast Austral og í vikunni
sendi Renault frá sér myndir af
innréttingu hans.
Eins og sjá má spilar baklýsing
stórt hlutverk sem og nýtt skjá-
kerfi sem samanstendur af 12,3
tommu mælaborðsskjá og 12
tommu upplýsingaskjá. Kallast
kerfið OpenR Link og er mjög
fullkomið að sögn Renault, með
innbyggt Android Auto, Apple
CarPlay, Google leit og Google
Maps. Stýrið er líka hannað til að
ökumaður sjái betur á veginn og
mælaborðið. Prófanir á bílnum
standa yfir en alls verða eknar 2
milljónir kílómetra. Sjá 100 bílar
og 900 ökumenn um verkið en
600.000 kílómetrar eru eknir á
þjóðvegum. ■
Myndir af innréttingu Austral
Nóg er af hólfum í innréttingunn og eitt stórt í miðjustokknum.
njall@frettabladid.is
Ofurbíllinn X-Bow GT2 er í þróun
hjá austurríska mótorhjólafram-
leiðendanum KTM en hann verður
annar bíll merkisins. KTM hefur
komið með nokkrar útgáfur X-Box
síðan 2008 en nýi bíllinn verður
talsvert öflugri. Fyrsta útgáfan
skilaði tæpum 300 hestöflum en
GT2 mun notast við 2,5 lítra, fimm
strokka forþjöppuvélina úr Audi
RS3. Með því að auka aðeins við afl
hennar stekkur GT2 upp í um 600
hestöfl.
Yfirbyggingin verður úr kol-
trefjum en hún kemur frá Dallara
og vegur aðeins 80 kíló. Til að
setjast inn í bílinn lyftist yfirbygg-
ingin fram en það verður hægt að
opna hliðarrúður sérstaklega. Alls
verður bíllinn aðeins rúmt tonn að
þyngd þótt götuútgáfa hans verði
eflaust aðeins þyngri. Það styttist
í að þessi bíll verði frumsýndur
þótt nákvæm dagsetning hafi ekki
verið gefin út, en aðeins verða
framleidd 100 eintök á ári. ■
KTM þróar nýjan
X-Bow ofurbíl
Yfirbygging bílsins vegur aðeins 80
kíló og GT2 verður um 600 hestöfl.
njall@frettabladid.is
Til stendur að koma með nýjan,
rafdrifinn Nissan Micra á markað
áður en langt um líður. Mun hann
koma á sama CMF-BEV undir-
vagni og væntanlegur Renault 5
en Renault og Nissan tilkynntu
þetta í sameiginlegri yfirlýsingu á
fimmtudaginn var.
Búast má við að fyrstu bílarnir
muni sjást árið 2024 og verði með
rafhlöðu sem dugi til 400 km
aksturs. Alls verða framleiddir
250.000 slíkir bílar á ári segir í
tilkynningunni en undirvagninn
er sagður minnka framleiðslu-
kostnað um 33% og orkunotkun
um 10% miðað við núverandi
undirvagn Renault Zoe. Alls verða
fimm nýir raf bílaundirvagnar
settir í notkun á þessum áratug
og fara þeir í 35 raf bíla hjá bæði
Nissan og Renault. ■
Rafdrifin Micra
væntanleg 2024
Nissan Micra hefur séð minnkandi
sölu enda aðeins búin bensínvélum.
522 4600
www.krokur.net
Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða
þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum
viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
Taktu Krók á leiðarenda
Vesturhraun 5 210 Garðabær
á þinni leið
8 BÍ L A BL A ÐI Ð 1. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR