Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 01.02.2022, Qupperneq 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Max hlakkar til að finna nýja fjölskyldu. Dýraverndunarfélagið Villikettir eru samtök rekin af sjálfboðaliðum sem hafa það að markmiði að hjálpa villiköttum með skipulegum aðgerðum. Villikettir hópa sig oft saman á svæðum þar sem fæðu er að finna en sjálfboðaliðar Villi­ katta hafa fangað kettina í búr, látið gelda þá og skila þeim svo aftur þangað sem þeir fundust eftir að þeir hafa jafnað sig eftir geldinguna. Einnig gefa þeir kisunum að borða og passa almennt upp á velferð dýranna. „Þessar aðgerðir okkar hafa skilað sér í því að villiköttum hefur fækkað mikið. Þegar við vorum að byrja komu aðallega villikisur í búrið hjá okkur og einn og einn vergangskisi, eins og við köllum þá. En vergangskisur eru heimilis­ kisur sem eru týndar eða hafa af einhverjum ástæðum þvælst frá heimili sínu,“ útskýrir Arndís. Kisi ekki velkominn heim Arndís segir að undanfarin fjögur ár hafi vergangskisum fjölgað mikið og sífellt fleiri sem komi í búrið hjá Villiköttum. „Við upplifðum það alltaf þannig áður, þegar við fönguðum vergangs kisu í búr, að þá var alltaf gleði hjá eigendunum yfir að fá kisuna aftur heim. Það kom einu sinni frétt í sjónvarpinu um kisuna Frosta sem Villikettir fönguðu og skiluðu heim til sín eftir að hann hafði verið týndur í tvö ár. Það var mikil gleði þegar hann kom heim aftur,“ segir Arndís. „Þegar við finnum vergangs­ kisur þá auglýsum við þær alltaf. Oft fáum við ábendingar um kisur sem hafa verið lengi á einhverju svæði og virðast týndar. Við förum þá með búr og náum í kisa. En því miður er það að gerast oftar og oftar að við fáum enga svörun þegar við auglýsum kisurnar. Oft eru þær ekki örmerktar og geldar. En þegar ógeld kisa lendir á vergangi er hætta á að nýjar villikattanýlendur mynd­ ist. Í dag við erum búin að gelda alveg óhemju mikið af villikisum og höfum yfirsýn og þekkingu á þeim svæðum sem við höfum verið að vinna á. En það er óþægileg stað­ reynd að vergangskisum fjölgar og við höfum meira að segja lent í því að þegar eigandinn finnst er kisi ekki lengur velkomin heim til sín.“ En hver skyldi vera ástæðan fyrir því að vergangskisum hefur fjölgað? „Ég get svo sem bara giskað á það. En í Covid voru margir sem tóku að sé kött. Þeir voru kannski einir heima að vinna eða álíka. Ég held að það sé mikið af fólki sem gerir sér ekki grein fyrir að það er 18­20 ára skuldbinding að taka að sér kettling,“ segir Arndís. „Svo flytur fólk og skilur kisa eftir, sem mér finnst óskiljanleg hegðun. Núna síðast lentum við í hjónum sem skildu og fóru hvort í sína áttina og kisa var bara skilin eftir. Fólk hefur líka flutt til útlanda og skilið kisu eftir.“ Arndís segir að þegar sjálfboða­ liðar Villikatta finna kött á vergangi sé alltaf reynt að finna út úr því hvort einhvern tímann hafi verið auglýst eftir honum. Til dæmis á Kattavaktinni eða í hópum þar sem er lýst eftir týndum kisum. Aflífa engar kisur Síðasta kisa sem kom til Villikatta er heimilisköttur sem hafði verið á vergangi í tvö ár. Arndís segir að þegar kettir hafa verið á vergangi svona lengi breytist hegðun þeirra. Þeir hætti að treysta mannfólki og fari að hegða sér líkt og villikettir. „Þeir koma ekki til þín, það er ekki hægt að klappa þeim og þeir hlaupa í burtu þegar þeir sjá fólk. Þannig að þegar við náum þeim í hús þá þurfa kisurnar mislangan tíma til að jafna sig. Ég man eftir einum kisa sem við fundum í Borgarnesi. Það tók hann þrjá mánuði eftir að hann var kominn í hús að fatta að við værum allt í lagi. Við gáfum honum að borða daglega og nammi og dekruðum hann og hann endaði á að verða hinn mesti kelikisi,“ segir Arndís og brosir að minningunni. „Það var ákveðið frá upphafi að við myndum ekki láta aflífa neinar kisur. Ekki nema dýralæknir segi að hún sé veik og ekki hægt að hjálpa henni, en þá er það dýralæknirinn sem ákveður það. En út af þessu erum við með margar kisur. Við hjálpum öllum kisum.“ Rekið af hugsjón í sjálfboðastarfi Félagið Villikettir er rekið af sjálf­ boðaliðum og enginn fær greitt fyrir störf sín þar. Það er hægt að gerast meðlimur í félaginu og greiða mánaðarlegan styrk til þeirra. „Við lifum á styrkjum frá almenningi. Án þeirra værum við ekki til. Það er töluvert um að einstaklingar styrki okkur mánaðarlega um 500 til 1.000 krónur á mánuði. Svo er einn mjög hugsandi ungur drengur sem hefur gefið okkur sem samsvarar and­ virði einnar pitsu á mánuði. Hann sagðist alveg eins geta gefið okkur þá upphæð frekar en að panta pitsu. Mér finnst það mjög flott hjá honum,“ segir Arndís. Villikettir starfa um allt land og starfa í samráði við bæjarfélög víða um landið. Félagið er með svo­ kölluð kisukot þar sem kisur dvelja á meðan verið er að meta þær, áður en þær fara á heimili eða fóstur­ heimili. „Áður en kisurnar geta verið með hinum kisunum þarf samt að orma­ hreinsa þær og gelda. Ef enginn svarar auglýsingu um kisurnar eru þær settar í geldingu eftir um það bil tvær vikur og þá geta þær verið lausar með hinum kisunum. Þegar við erum svo búin að finna út hvort hún henti á heimili með börnum eða þurfi að vera inni­ eða útikisa, þá óskum við eftir fósturheimili þar til varanlegt heimili finnst,“ segir Arndís og leggur áherslu á að þau vandi vel valið á heimili fyrir kis­ urnar með þeirra hagsmuni í huga. „Við hugsum fyrst og fremst um velferð dýranna. Það er alltaf eftirspurn eftir kisum, þó hún sé misjöfn eftir árstímum. Ég held að almennt séu Íslendingar miklir dýravinir og kisur eru svo þægi­ legar og sjálfstæðar. Þær biðja ekki um mikið, bara knús og mat. Sumar vilja að vísu ekki knús og sumar vilja ekki láta halda á sér meðan aðrar vilja alltaf vera í fanginu. Við reynum alltaf að finna rétta heimilið fyrir hverja kisu fyrir sig.“ Arndís bætir því við að lokum að þau hjá Villiköttum vanti alltaf góða sjálfboðaliða. Bæði í útigjafir, til að taka kisur í fóstur eða sinna kisum í kotum. n Arndís segir að vergangs- köttum hafa fjölgað en henni finnst óskiljan- leg ef fólk flytur og skilur kettina bara eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun @frettabladid.is Fallegar villikisur sem búa í Hafnarfirði og sjálfboðaliðar Villikatta gefa að borða. MYND/AÐSEND 2 kynningarblað A L LT 1. febrúar 2022 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.