Fréttablaðið - 01.02.2022, Page 25

Fréttablaðið - 01.02.2022, Page 25
Rafmótorinn er þar sem dísilvélin hefði annars verið og raf- geymirinn er undir gólfinu svo að rými innan í Proace EV er ekkert minna en í dísil- bílnum. Grunnverð: 8.790.000 kr. Hestöfl: 136 Tog: 260 Nm Hröðun 0-100 km: 13,1 sek. Hámarkshraði: 130 km Rafhlaða: 75 kWst. Drægi: 330 km L/B/H: 4.959/1.920/1.890 mm Hjólhaf: 3.275 mm Eigin þyngd: 2.140 kg Farangursrými: 603 l Dráttargeta: 1.000 kg Toyota Proace Verso EV KOSTIR n Gott aðgengi n Pláss n Verð GALLAR n Þungur af stað n Ekkert aðgerðastýri Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson njall @frettabladid.is Fyrsti rafbíll Toyota er ekki bZ4X sem væntanlegur er á þessu ári, heldur rafdrifin útgáfa Proace-sendibílsins í útgáfu fyrir átta farþega. Að vísu má deila um hvort um fólksbíl sé að ræða, eða jafn- vel hvort bíllinn sé yfirhöfuð frá Toyota, því að rafdrifinn Proace er í grunninn Peug- eot Traveller eða Citroen SpaceTourer og byggir á EMP2-undirvagninum. Bíllinn kemur í átta sæta útfærslu og ef öll sætin eru tekin úr honum aftur í er komið 4.900 lítra flutn- ingsrými. Rafmótorinn er þar sem dísilvélin hefði annars verið og rafgeymirinn er undir gólfinu svo að rými innan í Proace er ekkert minna en í dísilbílnum. Þess vegna má segja að um fjölhæfan bíl sé að ræða fyrir þá sem þyrftu stóran bíl og kjósa að hafa hann rafdrifinn. Það er auðvitað hið fínasta pláss í Proace og gildir einu hvort maður sest fram í eða í öftustu sætaröð. Til að komast í öftustu sætaröðina er kippt í handfang fyrir aftan miðjusæti og fellur þá bakið aðeins fram. Þar sem bíllinn er stór kemur það ekki að sök við að koma sér aftast í bílinn. Það hlýtur að vera dálítið út úr kú að selja bíl fyrir rúmar 10 milljónir og hann er ekki með aðgerðastýri, en sú var raunin í þessum bíl. Var blaðamanni tjáð að það væri á leiðinni en Toyota hefði lent í einhverjum vand- ræðum með það í fyrstu útgáfunni og þess vegna hefði það ekki verið í boði. Þar fyrir utan er snertiskjár- inn í miðjustokki af minnstu gerð eða aðeins 7 tommur og hverfur því í mælaborð þessa stóra bíls. Proace Verso er með drægi allt að 330 km sem ætti að duga flestum til daglegra nota. Reynslu- aksturinn fór fram í talsverðum kulda og þess vegna stóðust væntingar um gott drægi ekki, enda var bíllinn fljótur að hrapa úr því 307 km drægi sem stóð í mæla- borðinu þegar bíllinn var sóttur. Í Proace Verso eru þrjár aksturs- stillingar, Power, Eco og Normal. Það er reyndar ekkert kraftmikið við bílinn en í Power-stillingunni skilar hann 136 hestöflum og 260 Nm togi, sem þýðir að hann er 13,1 sekúndu í hundraðið. Í Eco-still- ingunni fer hann svo niður í 82 hestöfl og 190 Nm enda veitir ekki af til að ná þeirri drægni sem þarf. Í þeirri stillingu er bíllinn mjög latur af stað og alls ekki með því togi sem maður er vanur í raf- bílum. Bíllinn er nokkuð þungur í akstri þótt hann sé léttur í stjórn- tækjum. Hann liggur þó ágætlega og er þokkalega lipur fyrir bíl af þessari stærð þótt aksturseigin- leikarnir minni stundum á járn- brautarlest. Um tvær útgáfur er að ræða í rafdrifnum Porace Verso, annars vegar Live-útfærsluna sem kostar 8.790.000 kr. og svo nokkuð vel búinn Active Plus sem kostar 10.190.000 kr. Keppir við Mercedes-Benz EQV og kannski hinn sjö manna Maxus Euniq MPV. Mercedes-Benz EQV kostar frá 11.990.000 kr., reyndar með stærri 90 kWst rafhlöðu og betri búnaði. Hinn kínverski Maxus Euniq MPV er hins vegar aðeins á 6.690.000 kr. en kemur aðeins í sjö sæta útfærslui. n Rúmgóður en svifaseinn Um stóran bíl er að ræða í raf- drifnum Proace sem hentað gæti vel stórum fjölskyldum. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON Með öftustu sætin í notkun er farangursrýmið samt rúmir 600 lítrar. Mælaborðið er frekar einfalt og þá líka skipting- in sem er aðeins flipi neðst í miðjustokki. Active Plus útgáfan er búin stórum og vel læsilegur framrúðuskjá. Rafmótornum er komið fyrir þar sem vélin hefði annars verið og hverfur hann nánast ofan í vélar- salinn. Pláss og aðgengi er mjög gott gegnum rafdrifnar hliðarhurðirnar. BÍLABLAÐIÐ 5ÞRIÐJUDAGUR 1. febrúar 2022

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.