Fréttablaðið - 04.02.2022, Page 1
2 4 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 4 . F E B R Ú A R 2 0 2 2
Nýr frískápur
á augabragði
Lífið ➤ 18
Sérblað Go Red
fylgir Fréttablaðinu í dag
FÖSTUDAGUR 4. febrúar 2022
Hjartað þitt 2022
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
lyaver.is
Netapótek
Lyavers
Fjórhjóladrifinn
Alrafmagnaður
Audi e-tron 55 Quattro Advanced Verð 10.990.000 kr.
HEKLA · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · hekla.is/audisalur
Yfir fimm hundruð manns tóku í gær þátt í leit að flugvél með fjóra um borð sem ekki skilaði sér til baka til Reykjavíkur úr útsýnisflugi austur fyrir fjall. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Leit að flugvél með íslenskum
flugmanni og þremur erlend-
um farþegum stóð yfir þegar
Fréttablaðið fór í prentun í
gærkvöldi. Fjórmenningarnir
flugu frá Reykjavíkurflugvelli
á ellefta tímanum í gær-
morgun en skiluðu sér ekki til
baka samkvæmt áætlun.
helenaros@frettabladid.is
BJÖRGUN „Það er búið að láta
aðstandendur vita af stöðunni,“ segir
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi
Landhelgisgæslunnar varðandi fólkið
um borð í flugvél sem leit hófst að í
gær.
Ásgeir segir farþega vélarinnar hafa
verið hluta af ferðahópi. Flugið hafi
verið skipulagt sem útsýnisflug og til
ljósmyndunar. „Við höfum þær upp-
lýsingar að þeir sem voru um borð
hafi ætlað að taka myndir af íslenskri
náttúru.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins voru farþegarnir þrír hluti
af hópi sem kom til landsins á mánu-
dag í frí. Farþegar vélarinnar eru af
ýmsum þjóðernum, konur og karlar.
Þau eru á þrítugsaldri og flugmaður-
inn tæplega fimmtugur.
Að sögn Ásgeirs er flugvélin hvít
fjögurra sæta Cessna. Alls tóku 510
björgunarsveitarmenn þátt í leitinni
í gær. Þeim hafi fjölgað eftir því sem
leið á kvöldið og aukinn þungi verið
settur í leitina. Ein þyrla gæslunnar
var við leit í gærkvöld, eins lengi og
hvíldartímareglur áhafnarinnar
leyfðu.
Ásgeir segir leitarsvæðið stórt, við
Kleifarvatn, en mestur þungi hafi
verið lagður í leit sunnan Þingvalla-
vatns. „Vegna þeirra vísbendinga
sem hafa borist þá er það líklegasti
staðurinn,“ segir Ásgeir.
Að sögn Ásgeirs er vitað að ferða-
félagar fólksins hafi fengið skilaboð
frá þeim klukkan hálf tólf fyrir hádegi
í gær. „Það er með þeim upplýsingum
sem við erum að vinna eftir. Síðan er
verið að horfa til flugferils flugvélar-
innar og símagagna,“ segir Ásgeir. n
Flugmanns og þriggja ungmenna leitað
Við höfum þær upp-
lýsingar að þeir sem
voru um borð hafi
ætlað að taka myndir
af íslenskri náttúru.
Ásgeir Erlendsson, upplýsinga-
fulltrúi Landhelgisgæslunnar
Nánar á frettabladid.is