Fréttablaðið - 04.02.2022, Qupperneq 2
Lifi ljósið
Kíktu í heimsókn!
Opið virka daga kl. 10-18 Laugardaga 11-15
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - patti.is
Draumarúmið
er frá Dupen
Þú finnur draumarúmið hjá
okkur. Dupen gæðarúmin
eru með yfir 20 ára
reynslu á Íslandi.
Heilsukoddi
fylgir öllum rúmum
í febrúar
Eftir aflýst flug fyrri Covid-
tíma og tregar bókanir vegna
faraldursins ríkir gleði á ný í
herbúðum þeirra sem starfa
við að selja Íslendingum ferðir
út fyrir landsteinana. Þre-
faldar bókanir síðustu tvær
vikur hjá Heimsferðum.
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Salan hefur tekið mik-
inn kipp, hún hefur þrefaldast á
ferðum hjá okkur á síðustu tveimur
vikum,“ segir Tómas Gestsson, for-
stjóri Heimsferða.
Eftir að af létting Covid-tak-
markana hófst víða um heim hafa
ferðaskrifstofur hér á landi fundið
fyrir stórauknum bókunum og
margföldum ferðavilja Íslendinga
út fyrir landsteinana. Tómas segir
að bæði sé sótt mikið í sól og skíði.
Tvær síðustu vikur hafi verið mjög
mikið um bókanir. Sé nú svo komið
að ferðir sem farnar verða á sama
tíma og vetrarfrí grunnskólabarna
stendur yfir séu nálægt því að vera
uppseldar.
„Það er greinilegt að þessar aflétt-
ingar hafa mikil áhrif,“ segir Tómas.
Þá sé mikið um bókanir fyrir
vorið og sumarið fram undan og
hafa starfsmenn annarra ferðaskrif-
stofa svipaða sögu að segja.
Viðsnúningurinn er sagður sér-
lega ánægjulegur í því ljósi að áður
hafa f lugfélög og ferðaskrifstofur
margoft þurft að aflýsa ferðum eftir
að Covid kom upp. Þannig greindi
Fréttablaðið frá því að Heimsferðir
og Vita aflýstu síðast í haust nokkr-
um ferðum til Malaga og Alicante
og hefur ferðaframboð eftir Covid
þó aðeins verið hluti þess sem hefði
getað orðið án faraldurs og margvís-
legra takmarkana.
Mörg smit greinast enn daglega
á Íslandi. Fólk sem starfar í ferða-
þjónustu segist hafa þá tilfinningu
að þótt bókanir séu nú orðnar líf-
legar á ný eftir magra tíma haldi
margir enn að sér höndum. Von
gæti verið á enn frekari bókana-
bylgju innan nokkurra vikna.
Utanferðir fjölda Íslendinga hafa
legið niðri í tvö ár vegna farald-
ursins. Deilur hafa komið upp um
endurgreiðslu og ferðaskilmála.
Segir fólk í greininni viðbúið að
fyrst þegar faraldurinn verður
horfinn úr sögunni sem ógn taki
landsmenn f lugið sem aldrei fyrr.
„Við vonum að það sé bjart fram
undan,“ segir Tómas Gestsson.
Meðal þess heitasta þessa dag-
ana eru skíðaferðir til Evrópu-
landa auk þess sem sólarstrendur
laða marga að, ekki síst til Kanarí
og Tenerife. n
Sprenging í sölu utanferða
á sólarströnd og í skíðalönd
Tenerife heillar marga Íslendinga og ekki síst um jól. Mikið verður sótt í
hlýindi og skíðaferðir á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ingunnlara@frettabladid.is
COVID-19 Heilbrigðisstarfsfólk hefur
mætt í fangelsi til að skima fyrir
kórónaveirunni hjá föngum eftir
athugasemdir frá umboðsmanni
Alþingis.
Skúli Magnússon, umboðsmaður
Alþingis, heimsótti Litla-Hraun eftir
yfirlýsingu frá Afstöðu – félagi fanga
um ólíðandi ástand í fangelsum
landsins vegna sóttvarna ráðstafana
og tafa á rannsóknum lögreglu.
Skúli sagði helst kvartað um
töf á prófum til að staðfesta smit
eða losa fanga úr sóttkví. Að hans
mati er mjög brýnt að prófanir fari
fram eins fljótt og frekast er kostur
þar sem fangar eru í talsvert ann-
arri stöðu en al mennir borgarar
sem geta sjálfir leitað eftir þessum
prófum eða haft frumkvæði að því.
Halldór Valur Pálsson, forstöðu-
maður fangelsa, segir fangelsismála-
yfirvöld taka heils hugar undir með
honum.
„Við erum jafnframt sammála því
að einangrun og sóttkví komi öðru-
vísi niður á mönnum sem eru frels-
issviptir og þess vegna höfum við
lagt okkur öll fram um að hafa þessi
mál eins lítið íþyngjandi og frekast
er kostur innan þess sem okkur er
unnt,“ segir Halldór Valur. n
Skimað fyrir veirunni í fangelsum
Halldór Valur
Pálsson, for-
stöðurmaður
fangelsa
Það er greinilegt að
þessar afléttingar hafa
mikil áhrif.
Tómas
Gestsson
helenaros@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Árið 2020 voru
962 þungunarrofsaðgerðir fram-
kvæmdar hér á landi. Þungunarrof
var oftast framkvæmt hjá konum á
þrítugsaldri, nærri 52 prósent allra
framkvæmdra þungunarrofsað-
gerða.
Þetta er í fyrsta sinn sem tölfræði
um þessa tegund heilbrigðisþjón-
ustu er birt eftir gildistöku nýrra
laga um þungunarrof sem tóku gildi
1. september 2019.
Nokkur munur var á tíðni þung-
unarrofs eftir búsetu kvenna.
Oftast var þungunarrof gert hjá
konum búsettum á Suðurnesjum
og sjaldnast hjá konum búsettum
á Vestfjörðum, Austurlandi og
Norðurlandi.
Mikill meirihluti kvenna sem
gekkst undir þungunarrof 2020
voru gengnar skemur en níu vikur,
eða rúmlega 83 prósent. n
Þungunarrof
tíðast hjá konum
á þrítugsaldri
83%
þungunarrofsaðgerða
árið 2020 voru fram-
kvæmd innan níu
vikna.
Vetrarhátíð var sett í gær og stendur yfir fram á sunnudag. Á hátíðinni er lögð áhersla á list í almannarými. Í lykilhlutverki er svokölluð Ljósaslóð, gönguleið
frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg og á Austurvöll. Verkin verða tendruð á milli klukkan 18.30 og 22.00 alla hátíðardagana. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
2 Fréttir 4. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ