Fréttablaðið - 04.02.2022, Side 6
Upphafsálagningu fasteignagjalda
í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2022.
Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagninu vegna ársins
2022. Álagningarseðlar eru ekki sendir út í bréfapósti en hægt er að
nálgast þá á heimasíðunni www.island.is en þar eru þeir aðgengilegir
í pósthólfi á „Mínar síður“. Innskráning á ,,Mínar síður“ er með
rafrænum skilríkjum eða íslykli.
Greiðsluseðlar eru ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað
en kröfur vegna fasteignagjalda koma inn í heimabanka viðkomandi
gjaldanda og birtast þar.
Allar nánari upplýsingar um álagningarreglur Bláskógabyggðar má
finna inni á heimasíðu Bláskógabyggðar, www.blaskogabyggd.is.
Eldri borgurum og öryrkjum með lögheimili í Bláskógabyggð er sérstak-
lega bent á að skoða sinn rétt varðandi afslátt af fasteignagjöldum og
bent á að kynna sér samþykkt um tekjuviðmið, sem er um afsláttarreglur.
Þeim sem óska frekari upplýsinga um álagninguna er bent á að hafa
samband við Sigríði Emilíu Eiríksdóttur, skrifstofu Bláskógabyggðar
í síma: 480-3000 (mánudaga – fimmtudaga frá kl. 9 -12 og 13 – 15 en
föstudaga frá kl. 9 – 12, eða í netfang: emma@blaskogabyggd.is.
Bláskógabyggð
Álagning
fasteignagjalda 2022
ingunnlara@frettabladid.is
DÝRAVERND Starfshópur ráðherra
sem skoðar blóðtöku úr fylfullum
hryssum hefur hafið störf og safnar
nú gögnum fyrir rannsókn sína. Til
stendur að boða til viðtala á seinni
stigum. Svandís Svavarsdóttir, sjávar
útvegs og landbúnaðarráðherra,
skipaði í desember starfshóp til að
fjalla um blóðmerahald til fram
leiðslu á frjósemislyfjum eftir að
svissnesk dýraverndarsamtök gerðu
heimildarmynd og skýrslu um dýra
níð á íslenskum blóðtökubæjum.
Starfshópurinn skoðar starfsem
ina, regluverkið í kringum hana og
eftirlit, löggjöf og mögulega fram
kvæmd slíkrar starfsemi erlendis.
„Hópurinn hefur fundað nokkr
um sinnum, vinnunni miðar vel og
þau eru að viða að sér gögnum. Búist
er við fundahöldum eða viðtölum
með utanaðkomandi á seinni stigum
vinnunnar hjá hópnum,“ segir Ásta
Sigrún Magnúsdóttir, upplýsinga
fulltrúi ráðuneytisins, í svari við
fyrirspurn Fréttablaðsins. n
Vinnu blóðmerastarfshóps miðar vel
Gjaldmiðlamálin voru eitt af
stóru málunum sem felldu
sjálfstætt Skotland í þjóðar
atkvæðagreiðslu árið 2014.
Nú er hafinn undirbúningur
að nýjum gjaldmiðli.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SKOTLAND Skoski þjóðarflokkur
inn hefur hafið undirbúning að
stofnun eigin seðlabanka sem gefa
á út eigin gjaldmiðil eftir sjálfstæði.
Gjaldmiðlamálin voru einn af stóru
þáttunum sem felldu tillögu um
sjálfstætt Skotland í þjóðaratkvæða
greiðslunni árið 2014.
„Þeir sem vilja sjálfstætt Skotland
sáu að ein af stóru ástæðunum fyrir
því að fólk treysti sér ekki til að segja
já var umræðan um gjaldmiðilinn,“
segir Jón Helgi Egilsson, sem hefur
verið í viðræðum við flokkinn um
ýmis mál tengd upptöku eigin gjald
miðils.
Jón Helgi, sem áður sat í banka
ráði Seðlabankans, hefur búið í
Edinborg síðan 2017 og ári áður var
hann einn af stofnendum fjártækni
fyrirtækisins Monerium. Fyrirtækið
er meðal annars það fyrsta í heim
inum til að gefa út hefðbundna
gjaldmiðla á bálkakeðjum.
Hann segir marga smeyka við
að breyta um gjaldmiðil, fólk sé
með sinn sparnað og húsnæðislán
í breskum pundum og óttist hvað
verði um það. Fyrir atkvæðagreiðsl
una árið 2014 hafi Skoski þjóðar
flokkurinn lofað myntbandalagi við
Bretland eftir sjálfstæði. Nokkrum
dögum fyrir kosningar hafi Mark
Carney, þáverandi seðlabankastjóri
Bank of England, slegið það út af
borðinu og margir hrukku í kút.
Eftir atkvæðagreiðsluna, sem
sjálfstæðissinnar töpuðu með 45
prósentum gegn 55, hafi flokkurinn
endurhugsað málið. Mest áberandi
í þeirri umræðu var Tim Rideout,
doktor í hagfræði, sem sagði einu
leiðina fyrir Skota að taka upp eigin
gjaldmiðil.
Þann 28. nóvember síðastliðinn
lagði hann fram tillögu á þingi
f lokksins um undirbúning að
stofnun seðlabanka fyrir Skotland
og hún var samþykkt. Flokkurinn,
sem er við völd í heimastjórninni,
hefur því hafið undirbúning að
lagabreytingum til að hægt sé að
stofna hann og gefa út eigin gjald
miðil.
„Sjálfstætt Skotland getur ekki
stutt eigið bankakerfi í eigin mynt
nema vera með eigin seðlabanka,
sem er lánveitandi til þrautavara,“
segir Jón Helgi. Með því að hafa
eigin gjaldmiðil geti Skotar brugðist
við krísum með því að auka pen
ingamagnið, það er prenta peninga.
En þá er komið að annarri spurn
ingu, um Evrópusambandið og
evruna. Skoski þjóðarflokkurinn
og leiðtogi hans, Nicola Sturgeon,
hafa margsinnis bent á að hver ein
asta sýsla Skotlands hafi kosið með
áframhaldandi veru í Evrópusam
bandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu
árið 2016. Skotland vilji vera í Evr
ópusambandinu og í dag verði ný
aðildarríki að taka upp evru.
Jón Helgi segir þessa umræðu
ekki mjög djúpa í Skotlandi á þess
um tímapunkti. Ekkert mæli gegn
því að stofnun gjaldmiðils, sem hafi
vinnuheitið skoskt pund, geti verið
millileikur að inngöngu í Evrópu
sambandið og upptöku evru. „Það
er vandkvæðum bundið að taka
upp aðildarviðræður við Evrópu
sambandið ef þú ert með annarra
manna gjaldmiðil,“ segir hann. n
Ráðleggur Skotum við
upptöku nýs gjaldmiðils
Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, vill þjóðaratkvæði um sjálfstæði á þessu kjörtímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Það er vandkvæðum
bundið að taka upp
aðildarviðræður við
Evrópusambandið ef
þú ert með annarra
manna gjaldmiðil.
Jón Helgi
Egilsson, með-
stofnandi og
stjórnarformað-
ur Monerium
olafur@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL Í svari Bjarna Bene
diktssonar, efnahags og fjármála
ráðherra, við fyrirspurn Ástu Lóu
Þórsdóttur, þingmanns Flokks
fólksins, um fjölda og heildar
fjárhæð útistandandi fasteigna
og neytendalána, sem birt hefur
verið á vef Alþingis, kemur fram að
heildarskuldir heimila með veði í
íbúðarhúsnæði námu í september
2.158,9 milljörðum króna.
Óverðtryggð lán eru meirihluti
lánanna, 1.117,5 milljarðar, en
verðtryggð veðlán nema 1.041,4
milljörðum. Nánast engin lán eru
gengisbundin, eða sem nemur 50
milljónum króna.
Aðrar skuldir heimilanna nema
502,9 milljörðum og þar af nema
verðtryggð lán 284,8 milljörðum
og óverðtryggð lán 121,5 millj
örðum. Íslensk heimili skulda 84,6
milljarða í yfirdrátt í bönkunum en
vextir af slíkum lánum eru nú 9,75
prósent. Nær engin yfirdráttarlán,
eða samtals um 20 milljónir, eru
gengisbundin en gengisbundin lán
heimila án veðtryggingar í íbúðar
húsnæði nema 2,3 milljörðum.
Yfirgnæfandi meirihluti lán
takenda bæði verðtryggðra og
óverðtryggðra veðlána velur jafn
greiðslulán fremur en lán með
jöfnum af borgunum. Stafar það
án efa af því að greiðslubyrði jafn
greiðslulána er lægri í upphafi láns
tímans en greiðslubyrði lána með
jöfnum af borgunum af höfuðstól.
Greiningardeildir búast við að
Seðlabankinn hækki stýrivexti
sína um 0,75 prósent í næstu viku.
Slík hækkun kostar heimilin í land
inu með óverðtryggð lán á breyti
legum vöxtum alls um 6 milljarða
á ári, velti bankarnir henni allri til
lántakenda. n
Líkleg hækkun stýrivaxta talin munu
kosta heimili landsins sex milljarða
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra svaraði fyrirspurn þingmanns-
ins Ástu Lóu Þórsdóttur.
Skoða blóðtöku úr fylfullum hryssum.
6 Fréttir 4. febrúar 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ