Fréttablaðið - 04.02.2022, Síða 9
n Í dag
Guðmundur Andri
Thorsson
Vel af sér vikið hjá Spotify að
hafa náð að sameina loksins eftir
öll þessi ár hina sundruðu sveit
Crosby, Stills, Nash & Young, sem
hefur árum saman átt í illskiljan-
legum deilum og hörmulegum
fyrir svo vel samhljómandi menn.
Og Joni sjálf Mitchell stendur með
samlanda sínum, Neil Yong, sem
kvað upp úr með að hann vildi
ekki deila vettvangi með hlað-
varpsmanni, sem veitan eys fé
í til að halda úti þáttum sínum
þar sem iðulega er lagst gegn
bólusetningum vegna Covid-19,
og ýmislegt sagt sem ekki þykir
standast skoðun vísindamanna.
Þetta er snúið mál og snertir ýmis
grundvallaratriði um það hvernig
við högum samfélagi okkar.
Látum liggja milli hluta að sinni
sambúð listamanna og þeirra
tæknifyrirtækja sem tekið hafa
að sér að skapa vettvang fyrir
listaverkin, og hirða af því bróður-
partinn.
Þekkingarsamfélagið
Málið varðar til dæmis þekk-
ingu – miðlun þekkingar, vald á
þekkingu, tilkall til þess valds sem
þekkingunni fylgir. Við búum í
þekkingarsamfélagi, þar sem við
skiptum með okkur verkum eftir
ólíkri kunnáttu okkar og þekk-
ingu: trésmiður selur færni sína
og þekkingu lyfsala sem selur
þekkingu sína hársnyrtifræðingi
sem selur þekkingu sína trésmið.
Samfélagið er net af fólki sem hefur
hvert sína sérþekkingu og hefur
aflað sér hennar með ástundun og
æfingu, lestri og þjálfun. Vissulega
klippum við stundum hvert annað
í fjölskyldum og við smíðum mis-
skakka palla en við setjum ekki á
fót hárgreiðslustofu eða tökum að
okkur húsasmíðar í uppmælingu,
þótt laghent séum – hvað þá að við
fúskum við að sulla saman lyfjum
til að selja.
Fyrr á öldum var þekkingar-
valdið á Vesturlöndum í höndum
kirkjunnar sem túlkaði veru-
leikann og lögmál hans út í æsar
og gaf út boð og bönn og leyfi eftir
sínu hugmyndakerfi, sem mótað
var á lokuðum ráðstefnum karla
sem höfðu sína hagsmuni af því
að viðhalda þessu kerfi. Það voru
svo prestarnir sem höfðu það
með höndum í nærsamfélaginu
að fylgja eftir þessum kennisetn-
ingum og líta eftir því að fólk færi
eftir þeim, samkvæmt guðsótta
og góðum siðum; lestrarkennsla
hér var órofa tengd innrætingu á
þessu kerfi, börnin lærðu að lesa á
guðsorð og prestarnir litu eftir því
að þau tileinkuðu sér það. Þetta var
einokun á þekkingu.
Nútímasamfélag á Vestur-
löndum byggist ekki síst á afnámi
þessarar einokunar, sem á sér
rætur í Upplýsingunni á 18. öld
og í kjölfar hennar, Stjórnarskrá
Bandaríkjanna og frönsku bylt-
ingunni þegar skilið var á milli
ríkis og kirkju; þekkingin gefin
frjáls svo að segja. Vegatálmum
þekkingarleitarinnar var kippt í
burtu. Afraksturs þeirrar þekk-
ingarleitar njótum við í mörgu
nú á dögum – og súpum seyðið af
henni í öðru.
Smám saman hafa orðið til í
akademísku umhverfi ákveðnar
aðferðir við að setja fram stað-
hæfingar sem eiga að styrkja tilkall
til þekkingarinnar – maður þarf
að sýna fram á tiltekin vinnu-
Þekkingarvaldið
brögð í þekkingaröfluninni,
birta niðurstöður með ritrýni og
viðurkenndum framsetningar-
máta. Hlaðvarpsmaður í Banda-
ríkjunum hefur ekki sama vægi í
umræðu um bóluefni og óþekktur
vísindamaður á hvítum slopp
með ritrýnda grein – jafnvel þótt
hlaðvarpsmaðurinn hafi vottun
upp á að vera orðheppinn og
skemmtilegur. Við getum ekki lagt
staðhæfingar hans að jöfnu við
það sem vísindasamfélagið telur
réttast hverju sinni og síðan tekið
afstöðu eins og við séum að fylgjast
með fótboltaleik. Og þó ekki sé í
vísindalegu samhengi þá hljótum
við líka að gera kröfur til rök-
stuðnings og þekkingar á efninu
þegar við hlustum á fólk tjá sig um
hvað eina.
Afl listarinnar
Þar með er ekki sagt að hlað-
varpsmaðurinn megi ekki tala
við alls konar fólk með alls konar
skoðanir. Það er grundvallarat-
riði: Orðið er frjálst. Og það er alls
ekki víst að allt það sem staðhæft
er undir merkjum vísinda – og sett
fram með tilhlýðilegum hætti – sé
endanlegur sannleikur. Við höfum
ótal dæmi um að nýjar rannsóknir
kalli á endurskoðun þess sem við
töldum áður satt og rétt. Og efa-
semdir um þekkingu og hugmynd-
ir er dyggð: engin hugmynd er svo
heilög að ekki megi efast um hana
eða draga dár að henni. En hér er í
húfi líf og heilsa milljóna manna.
Heilu samfélögin og innviðir
þeirra. Og þegar þannig háttar þá
getum við ekki látið sem svo að ein
skoðun sé jafn góð og hver önnur
um það hvernig bregðast skuli við.
Við eigum ekki aðra kosti en að
láta þá þekkingu sem aflað er með
vísindalegum aðferðum á hverjum
tíma ráða för – þótt sömu aðferðir
geti leitt nýrri og aðra þekkingu í
ljós síðar.
Orðið er frjálst. En við stjórnum
ekki afleiðingum þess sem sagt er.
Spotify má setja sinn hlaðvarps-
mann í öndvegi og ausa í hann
milljónum. En sýpur seyðið af því
með hríðfallandi hlutabréfum. Það
eru nefnilega listamennirnir sem
gefa veitunni afl sitt, og án þeirra
er hún hætt komin. n
Bílaapótekið Hæðasmára
Pössum sóttvarnir
Afgreiðsla beint í bílinn
Öruggt, fljótlegt og afar þægilegt
- sjö lúgur
Bílaapótekið Hæðasmára Opið 10 – 23 alla daga
Apótek Suðurnesja
Opið virka daga 09.00 – 19.00
Laugardaga 12.00 – 16.00
Lyfjaval Mjódd
Opið virka daga 08.45 – 18.15
Laugardaga 12.00 – 16.00
Lyfjaval Hæðasmára Bílaapótek
Opið alla daga 10.00 – 23.00
Þú finnur apótek Lyfjavals í Mjódd, bílaapótek Hæðasmára og í Apóteki Suðurnesja
Heimprófin fyrir Covid-19 fást hjá okkur
FÖSTUDAGUR 4. febrúar 2022 Skoðun 9FRÉTTABLAÐIÐ