Fréttablaðið - 04.02.2022, Síða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Steinefni eru nauðsynleg nær-
ingarefni sem líkaminn þarfnast
í litlu magni fyrir eðlilega líkams-
starfsemi. Þau gegna ýmsum
mikilvægum hlutverkum, svo sem
við uppbyggingu og eðlilega starf-
semi líkamans, en meðal þeirra
mikilvægustu er járn. Aðalhlut-
verk járns er að flytja súrefni til
frumna líkamans, ásamt því að
vera mikilvægt fyrir ónæmiskerfið
og heila- og taugastarfsemi. Járn
er að auki mikilvægt fyrir vöxt og
heilaþroska barna og unglinga.
Lág járngildi hvimleitt vandamál
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni (WHO) eru lág
járngildi algengasti næringarefna-
skortur í heiminum. Skortur á
járni lýsir sér helst í orkuleysi og
þreytu, en við langvarandi skort
geta komið upp ýmsir aðrir kvillar.
Skortur kemur oftast við sögu
vegna ónógs járns í fæðu, aukinnar
þarfar járns, lélegs frásogs, eða
blóðmissis. Börn og unglingar,
íþróttafólk og eldra fólk, getur
verið í áhættu fyrir skorti og er járn
jafnframt eina næringarefnið sem
konur þurfa hlutfallslega meira
af en karlar. Meðal annars eykst
blóðmagn líkamans á meðgöngu,
til að flytja súrefni og næringu til
fóstursins og þar með eykst þörf
móðurinnar. Mikilvægt er því að
huga að næringunni og fá öll nauð-
synleg næringarefni sem líkaminn
hefur þörf á.
Mikilvægt að huga að járnbúskap
Líkaminn getur ekki framleitt járn
sjálfur og er því mikilvægt að fá
það í gegnum fæðu, eða sem við-
bót. Oft og tíðum er nóg að bregð-
ast við járnþörf með því að borða
járnríka fæðu dags daglega, helstu
járngjafar í íslensku mataræði eru
kjöt og kjötvörur, fiskur, morgun-
korn, baunir, dökkt grænmeti, fræ
og heilkorn. Einnig er gott að huga
að því að járn frásogast betur ef C-
vítamín er tekið inn samhliða. Við
nýtum þó ekki nema tiltölulega
lítið járn úr fæðunni og getur því
verið mikilvægt að innbyrða járn í
bætiefnaformi.
Probi járn fyrir aukna
járnupptöku
Algengt er að einungis örlítið magn
af járni úr hefðbundnum járn-
bætiefnum nýtist líkamanum. Það
þýðir að hlutfallslega mikið magn
af óuppteknu járni getur orðið
eftir í meltingarveginum og valdið
ýmsum óþægindum.
Járnblandan frá Probi inniheld-
ur einkaleyfisvarða mjólkursýru-
gerilinn Lactobacillus plantarum
299v, sem viðheldur heilbrigðum
meltingarvegi og hefur verið rann-
sakaður til fjölda ára. Auk þess
inniheldur varan járn, fólínsýru og
C-vítamín, sem stuðlar meðal ann-
ars að eðlilegri starfsemi ónæmis-
kerfisins og eykur upptöku járns.
Probi járn hefur að markmiði að
auka upptöku járns og er milt fyrir
meltingarkerfið, sem og náttúruleg
leið til að viðhalda góðum járn-
gildum. Að auki hentar járn-form-
úlan frá Probi fyrir barnshafandi
konur.
„Í upphafi meðgöngu fór ég í
blóðprufu sem leiddi í ljós lág járn-
gildi. Í dag eru gildin hins vegar
fullkomin, að sögn ljósmóður, en
það eina sem ég gerði var að bæta
við Probi járni í rútínuna mína. Ég
mæli því hiklaust með Probi, sem
hefur klárlega hjálpað mér,“ segir
Hannah Davíðsdóttir, CrossFit-
þjálfari.
Einkaleyfisvarðir
mjólkursýrugerlar
Sænska fyrirtækið Probi AB var
stofnað fyrir 30 árum í kringum
merkilega uppgötvun á mjólkur-
sýrugerlinum Lactobacillus plant-
arum 299v. Gerillinn sýndi sig vera
sérlega harðgeran og hefur eigin-
leika til að fjölga sér í meltingar-
vegi og styrkja þar með varnir
okkar og draga úr óþægindum
tengdum maga og meltingu. Probi
AB er í dag leiðandi á heimsvísu
í rannsóknum á mjólkursýru-
gerlum og með alheimseinkaleyfi
á LP299V-gerlinum, ásamt því
að vera þeir einu sem innihalda
gerilinn í vörum sínum á Íslandi. ■
Á meðgöngu eykst blóðmagn líkamans til að flytja súrefni og næringu til fóstursins. Þar með eykst járnþörf móðurinnar og er því gott að taka inn Probi járn.
Probi járn er einstakt fæðubótarefni og frábær valkostur á meðgöngu.
Í upphafi með-
göngu var ég lág í
járngildum. Í dag eru
gildin hins vegar full-
komin, að sögn ljós-
móður.
Hannah Davíðsdóttir
PROBI® vörurnar fást í apótekum, heilsuverslunum og stórmörkuðum.
Það eru ekki allir mjólkursýrugerlar eins!
PROBI:MAGE® söluhæstir í Svíþjóð, frábærar móttökur á Íslandi.
Góðgerlar og vítamín
tuggutöflur með það
að markmiði að styðja
við eðlilega virkni
ónæmiskerfisins. Inniheldur
fólasín, D-vítamín og
B-12 Vítamín.
Bragðgóðar tuggutöflur fyrir
alla fjölskylduna.
Inniheldur einn af
mest rannsökuðu
mjólkursýrugerlum heims
sem á hafa verið gerðar yfir
50 klínískar rannsóknir.
PROBI® FAMILY PROBI® MAGE
Vinnur gegn lágum
járngildum. Auk járns
inniheldur varan einnig
fólasín og C-vítamín sem
eykur upptöku járns.
Hentar á meðgöngu
og viðbrjósagjöf.
PROBI® JÁRN
2 kynningarblað A L LT 4. febrúar 2022 FÖSTUDAGUR