Fréttablaðið - 04.02.2022, Page 21
Líkaminn
er vanur
vissu
magni af
horm-
ónum.
Þegar
magn
þeirra
flöktir geta
komið
fram ýmis
sállíkam-
leg ein-
kenni.
Hanna Lilja
Til eru ýmsir
meðferðar-
möguleikar
til að draga úr
íþyngjandi ein-
kennum breyt-
ingaskeiðs.
Fyrsta skrefið er
að skrá vel ein-
kennin og leita
til heilbrigðis-
starfsmanns
sem er vel að
sér í einkennum
á breytinga-
skeiði.
getur leitt til frumubreytinga og í
sjaldgæfum tilfellum til krabba-
meins í legi. Því er mikilvægt fyrir
konur með leg að taka prógesterón
líka til að koma í veg fyrir ofvöxt
slímhúðar. Mikroniserað prógeste-
rón er hvað líkast því prógesteróni
sem myndast í líkama okkar. Það
er því öruggasta tegund prógeste-
róns, hefur minni aukaverkanir og
er öruggara hvað varðar hættu á
brjóstakrabbameini. Hér á Íslandi
heitir það utrogest/utrogestan. Það
eru töflur sem eru teknar með glasi
af vatni að kvöldi.
Annar möguleiki er Mirena
hormónalykkja. Hún dugar í 5 ár
og virkar líka sem getnaðarvörn.
Prógesterón fæst einnig sem fram-
leidd prógestógen í töfluformi.
Rannsóknir sýna að notkun þeirra
fylgi aðeins aukin hætta á brjósta-
krabbameini, sem samsvarar þeirri
auknu hættu á brjóstakrabbameini
sem fylgir því að drekka tvö vínglös
á dag eða vera í yfirþyngd.
Sumar konur kjósa samt sem
áður að nota hormóna í töfluformi
eða samsetta plástra sem innihalda
tilbúin prógestógen því það er
ekkert eitt sem hentar öllum. Mikil-
vægt er að eiga samtal um hættur
og ávinning af meðferð og að kona
sé upplýst um aðeins aukna áhættu
tengda þessari tegund af hormóna-
meðferð, til að geta valið meðferð
sem hentar best hverju sinni.
Testósterón er ekki bara karl-
hormón heldur framleiða eggja-
stokkar kvenna talsvert magn
af testósteróni líka. Testósterón
gegnir ýmsum hlutverkum í líkama
kvenna og í sumum tilfellum getur
kona haft gagn af testosterón-við-
bót ef ekki næst ásættanlegur bati
með estrógeni og prógesteróni.
Leggangaþurrkur og
þvagfæraeinkenni
Hormónið estrógen viðheldur
heilbrigðri slímhúð í leggöngum og
þvagfærakerfi. Það viðheldur raka
og teygjanleika, stuðlar að eðlilegri
leggangaflóru og verndar gegn
ýmsum sýkingum. „Þegar estró-
gengildin lækka á breytingaskeiði
og eftir tíðahvörf geta komið fram
ýmis óþægindi frá leggöngum og
þvagrás. Einkennin geta versnað
með tímanum og valdið konum
miklum óþægindum.
Staðbundin estrógenmeðferð
virkar best gegn einkennum frá
kynfærum og þvagfærum. Þessi
meðferð er mjög örugg, eykur ekki
hættu á krabbameini eða blóð-
tappa. Óhætt er að halda meðferð
áfram svo lengi sem hver kona vill
og hefur ávinning af henni. Með-
ferðina má nota samhliða horm-
ónauppbótarmeðferð eða eina og
sér. Þessi meðferð er lyfseðilsskyld
og fæst til dæmis í gegnum heimilis-
lækni og kvensjúkdómalækni.
Einnig fást töflur, vagifem, sem
settar eru upp í leggöng dag hvern
fyrstu 14 dagana og eftir það 2-3
sinnum í viku. Einnig er hægt að
fá mjúkan silíkonhring, sem hér
nefnist estring, sem settur er upp í
leggöng og gefur þar frá sér estrógen
í 90 daga. Hringnum þarf að skipta
út á þriggja mánaða fresti. Ef kona
treystir sér ekki til að skipta sjálf
getur læknir eða hjúkrunarfræð-
ingur á heilsugæslu fjarlægt þann
gamla og sett nýjan hring upp.
Auk þessa eru til estrógenkrem
sem hægt er að bera á sig, eins og
ovestin. Ýmis rakagefandi krem og
sleipiefni sem fást án lyfseðils geta
líka komið sér vel og duga mörgum
konum.“
Aðrir meðferðarmöguleikar
„Það er ekki neitt eitt sem hentar
öllum þegar kemur að því að bæta
líðan á breytingaskeiði. Á þessu
tímabili er mikilvægt að viðhalda
heilbrigðum lífsstíl og huga að
mataræði, en ákveðnar fæðu-
tegundir og drykkir geta haft áhrif
á einkenni. Regluleg hreyfing er góð
fyrir andlega og líkamlega heilsu,
léttir lund, eykur orku og hefur
jákvæð áhrif á heilbrigði beina og
hjarta- og æðakerfis.
Hugræn atferlismeðferð hjá
sálfræðingi getur hjálpað sumum.
Aðrar leita í óhefðbundnar aðferðir
eða náttúrulyf. Til eru ýmis bæti-
efni og náttúrulyf sem hafa verið
markaðssett með það í huga að
bæta einkenni kvenna á breytinga-
skeiði. Ýmsar rannsóknir hafa verið
gerðar á þessum efnum og eru
áhrifin yfirleitt sambærileg við lyf-
leysu. Athugið að þótt bætiefni séu
náttúruleg eru þau ekki endilega án
aukaverkana.
Önnur lyfseðilsskyld lyf eru
stundum notuð til að slá á einkenni
ef frábending er fyrir hormóna-
meðferð. Þá er átt við þung-
lyndislyf, gabapentin, clonidine
eða betablokkera. Heimilislæknir
eða kvensjúkdómalæknir geta veitt
frekari upplýsingar um meðferðar-
möguleika.“
Svefninn skiptir máli
Svefntruflanir eru algengt vanda-
mál hjá konum á breytingaskeiði.
„Ástæðurnar geta meðal annars
verið hitakóf, svitakóf, tíð þvaglát,
liðverkir, hjartsláttartruflanir og
kvíði. Flest þessara einkenna má
tengja flöktandi hormónafram-
leiðslu, en hormónin estrógen,
prógesteron og testósterón hafa
jákvæð áhrif á bæði gæði og lengd
svefns.
Góðar svefnvenjur skipta líka
miklu máli fyrir góðan svefn. Mikil-
vægt er að byggja upp svefnþrýsting
frá því að við vöknum á morgnana
uns við förum að sofa á kvöldin.
Þættir sem hjálpa til við það eru til
dæmis að fara út í dagsljósið fljót-
lega eftir að þú ferð á fætur, regluleg
hreyfing og að hafa vökutímann
sem lengstan. Þættir sem geta haft
neikvæð áhrif á svefnþrýsting eru
meðal annars að leggja sig á daginn,
að sofa út um helgar, fara í rúmið
fyrr en venjulega, of mikið koffín og
streita.“
Áhrif á heilsu til framtíðar
Skortur á kynhormónum veldur
ekki bara þrálátum einkennum
sem nefnd hafa verið hér að ofan
og margar konur upplifa. Kyn-
hormónin, sérstaklega estrógen,
eru mikilvæg fyrir líkamsstarfsemi
okkar. Eftir tíðahvörf, þegar horm-
ónagildi lækka, eykst hætta á að
konur þrói með sér ýmsa sjúkdóma
eins og beinþynningu, hjarta- og
æðasjúkdóma og fleira.
„Estrógen styrkir beinin en með
lækkandi estrógengildum á breyt-
ingaskeiðinu verða konur útsettari
fyrir beinþynningu en karlar.
Beinþynning er ástand sem veikir
beinin og eykur líkurnar á því að
þau brotni. Konur missa allt að 10
prósent af beinþéttni á fyrstu 5
árunum eftir tíðahvörf. Aðrir þættir
sem hafa áhrif á beinþéttnina eru
fjölskyldusaga, reykingar og mikil
áfengisdrykkja.
Estrógen tekur þátt í að halda
æðum líkamans heilbrigðum og
teygjanlegum og hefur jákvæð
áhrif á kólesterólgildi. Flöktandi
gildi estrógens í líkamanum eykur
líkur á hjarta- og æðasjúkdómum.
Þar má telja kransæðasjúk-
dóma, heilablóðföll og elliglöp.
Aðrir þættir sem hafa áhrif eru
háþrýstingur, reykingar, offita og
fjölskyldusaga.
Estrógen gegnir einnig mikil-
vægu hlutverki í starfsemi heilans.
Konur eru misnæmar fyrir lækk-
andi estrógengildi. Margar upplifa
áberandi einkenni sem hafa áhrif
á lífsgæði þeirra. Þetta getur verið
minnisleysi, einbeitingarskortur
og erfiðleikar við að taka við upp-
lýsingum. Þetta getur haft áhrif
á starfsgetu kvenna og einfaldar
athafnir daglegs lífs eins og að lesa
bók eða hlusta á útvarp. Sumar
konur upplifa minnkað sjálfstraust
í tengslum við þetta og hætta til
dæmis að treysta sér til að keyra
sjálfar og annað sem þær hafa gert
áður. Hjá sumum konum verða
þessi einkenni það hamlandi að
konur geta ekki hugsað sér að lifa
við þessar aðstæður og fá jafnvel
sjálfsvígshugsanir,“ segir Hanna.
Breyting til framtíðar
Það er mikilvægt að auka þekkingu
og fræðslu og opna umræðuna
um þetta stóra breytingatímabil.
„Mikil valdefling er falin í því að
konur skilji hvað er að gerast á
þessu tímabili, af hverju það gerist
og viti að það er hægt að fá samtal
og hjálp. Þetta er ekki bara hjálp-
legt fyrir konurnar sjálfar og fjöl-
skyldur þeirra heldur einnig fyrir
samfélagið og atvinnulífið. Konur
sem fá tíð og flókin einkenni, sem
þær jafnvel skilja ekki til fulls,
virðast í mörgum tilfellum detta
út af vinnumarkaði í styttri eða
lengri tíma, vegna vangreiningar
eða mismunagreininga og rangrar
meðferðar.
Kona sem skilur hvað er að
gerast og af hverju, þekkir ein-
kennin og veit hvaða meðferð er
í boði, er betur í stakk búin til að
taka ábyrgð á eigin lífi, leita sér
aðstoðar og meðferðar við hæfi
og gera lífsstílsbreytingar sem
geta skipt sköpum fyrir andlega
líðan og heilsu til framtíðar,“ segir
Hanna að lokum. n
5FÖSTUDAGUR 4. febrúar 2022 HJARTAÐ ÞITT 2022