Fréttablaðið - 04.02.2022, Blaðsíða 28
Frumsýnd
25. febrúar 2022
Aðalhlutverk:
Channing Tatum, Q’orianka
Kilcher, Aqueela Zoll, Kevin
Nash og Jane Adams
Handritshöfundur:
Reid Carolyn og Brett Rod
riguez
Leikstjórar:
Reid Carolyn og
Channing Tatum
Myndinni var lýst
erlendis sem þrosk-
aðri frumraun leikstjóra-
tvíeykisins Ásgeirs
Sigurðssonar og Antons
Karls Kristensen. Á gömlum Ford
Bronco þeysa þeir
eftir Kyrrahafsströnd
Bandaríkjanna.
Rammíslensk spennumynd
Frumsýnd
18. febrúar 2022
Aðalhlutverk:
Ásgeir Sigurðsson, Jónas
Björn Guðmundsson og Ís
gerður Elfa Gunnarsdóttir
Handritshöfundur:
Ásgeir Sigurðsson
Leikstjórar:
Ásgeir Sigurðsson og
Anton Karl Kristensen
Eftir ellefu ára bið er Jackass-
teymið komið aftur á kreik og Jack-
ass Forever er sögð verða síðasta
myndin frá þeim.
Hér er fólk sprengt í loft upp
á ferðaklósettum, bundið fast í
skilvindum og neytt til að drekka
drykki þangað til það ælir. Það
lendir í bjarndýrum og snákum,
fær stungur frá býflugum og sporð-
drekum og er barið í kynfærin
oftar en tími gefst til að telja upp.
Roger Ebert, kvikmyndarýnir-
inn þekkti, segir myndina vera þá
bestu úr fórum Jackass-teymisins
og gefur henni fjórar stjörnur, sem
er sami fjöldi og hann gaf meðal
annars Blazing Saddles og Raiders
of the Lost Ark.
Ebert segir að vissulega sé þetta
ekki dýrindis nautasteik á dýru
veitingahúsi heldur pylsa með öllu
nema hráum en óíþróttamanns-
Besta Jackass-myndin
Frumsýnd
4. febrúar 2022
Aðalhlutverk:
Johnny Knoxville, SteveO,
Chris Pontius, Eric André,
Machine og Gun Kelly
Handritshöfundar:
Jason „Wee Man“ Acuña, Eric
André og Derrick Beckles
Leikstjóri:
Jeff Tremaine
legt væri að láta hana gjalda þess.
Stundum er ein með öllu nema
hráum nefnilega akkúrat málið. n
Sambíóin, Smárabíó, Háskólabíó
og kvikmyndahús um allt land
Frumsýnd:
11. febrúar 2022
Aðalhlutverk:
Kenneth Branagh, Gal Gadot,
Armie Hammer, Annette
Bening og Russel Brand
Handritshöfundur:
Michael Green (byggt á sögu
Agöthu Christie)
Leikstjóri:
Kenneth Branagh
Íslenska spennumyndin Harmur
fjallar um fjölskyldu í Hólunum
sem brestur eftir að fortíð móður-
innar kemur aftur í mynd. Þegar
hún byrjar aftur í neyslu og
blandar yngri syni sínum inn í fjár-
skuldir sínar neyðist Óliver til að
leita að bróður sínum í undirheim-
unum yfir eina örlagaríka nótt.
Harmur er spennuríkur tryllir
sem inniheldur eitthvað fyrir alla
og dregur úr alvöru sögum frá
íslenskum raunveruleika. Ólíkt
móður hans, sem hefur átt í erfið-
leikum með fíkniefni af og til í
gegnum lífið, hefur Óliver náð að
halda góðu starfi og sjá vel um litla
bróður sinn sem gengur í grunn-
skóla. Þegar Hrafn, yngri bróðir
Ólivers, fer út af sporinu fer Óliver
í kapp við tímann að leita hann
uppi í gegnum örlagaríka nótt.
Myndinni var lýst erlendis sem
þroskaðri frumraun leikstjóra-
tvíeykisins Ásgeirs Sigurðssonar
og Antons Karls Kristensen. Hún
sé hrífandi blanda spennu og sam-
félagsdrama.
Ásgeir, sem skrifaði handritið,
fari á kostum í hlutverki Ólivers.
Næmni og nærvera leikaranna
fangi óheillavænlegt andrúmsloft
sem komi vel fram.
Tónlist myndarinnar, sem er
eftir Kára Haraldsson, er lýst sem
hjartslætti þar sem myndin kafar á
myrka staði og sé í góðum takti við
hættuna og vonskuna sem er alls
staðar og fullkomlega miskunnar-
laus (Oldenburg Film Festival
2021).
Myndin vann aðalverðlaunin á
Rhode Island International Film
Festival sem frumraun nýrra
leikstjóra (Directorial Discovery
Award). n
Sambíóin og kvikmyndahús um
allt land
8 kynningarblað 4. febrúar 2022 FÖSTUDAGURKVIKMYNDIR MÁNAÐARINS
Death on the Nile er sennilega
ein mest spennandi ráðgátan úr
smiðju morðgátudrottningar-
innar, Agöthu Christie.
Þegar það uppgötvast að Linnet
Ridgeway hefur verið skotin í
gegnum höfuðið er kyrrðin í
rólegri skipsferð um ána Níl rofin.
Ridgeway var ung og falleg, rík og
glæsileg – stúlka sem hafði allt –
þar til hún glataði lífinu.
Belgíski einkaspæjarinn Her-
cule Poirot er um borð. Fyrir
honum rifjast upp að annar
farþegi hafði haft á orði að hann
langaði helst að setja litlu byssuna
sína þétt upp að höfði hennar og
þrýsta á gikkinn. En ekkert er sem
sýnist.
Death on the Nile er meðal
vinsælustu og dáðustu morðgáta
Agöthu Christie. Ást, af brýðisemi
og svik blandast inn í ráðgátuna.
Christie fékk innblástur fyrir
bókina er hún var á ferðalagi
um Egyptaland og nýtti sér eitt
og annað úr umhverfi og sögu
landsins.
Þegar Christie bjó söguna til
f lutnings á leiksviði skrifaði hún
Hercule Poirot út úr handritinu
vegna þess að hún óttaðist að
of mikil athygli yrði á honum á
sviðinu.
Poirot rataði þó aftur inn í
söguna og Peter Ustinov lék hann
í stórmyndinni sem gerð var 1978.
Árið 2004 var það David Suchet
sem lék hlutverkið í sjónvarps-
mynd frá ITV.
Nú er það Kenneth Branagh
sem bæði leikstýrir myndinni og
leikur sjálfan Poirot. Hann hefur
áður verið í þessum sporum en
Hercule Poirot mættur til leiks og leysir gátuna
Fróðleikur
n Upphaflega átti að frumsýna Death on the Nile 2019 en tökum
seinkaði og hún lenti í Covid svo það er ekki fyrr en nú sem hún
kemst á hvíta tjaldið.
n Gamanleikkonurnar Dawn French og Jennifer Saunders leika í
myndinni og verða að hafa sig allar við til að vera alvarlegar.
n Kostnaður við gerð myndarinnar er 120 milljónir Bandaríkjadala.
n Myndin er öll tekin á 65 mm filmu. Murder on the Orient Express
(2017) og mynd Branaghs um Hamlet (1996) voru einnig teknar á
65 mm filmu.
Dog er gamanmynd um tvo fyrr-
verandi landverði í hernum sem
lenda í miklum ævintýrum saman.
Briggs landvörður og Lulu (belg-
ískur fjárhundur) ferðast saman
gegn vilja beggja. Á gömlum Ford
Bronco þeysa þeir eftir Kyrra-
hafsströnd Bandaríkjanna til að
reyna að ná í tæka tíð í útför besta
vinar Briggs úr hernum sem var
umsjónarmaður Lulu.
Á leiðinni brjóta þeir helling af
lögum og komast í hann krappan
og læra loks að til að una sér saman
verða þeir að vera eftirgefanlegir.
Annar þeirra á viku ólifaða og
hinn lifir eins og hver dagur sé
hans síðasti. n
Sambíóin og kvikmyndahús um
allt land
Ólíklegir félagar á ferð
Murder on the Orient Express frá
2017 naut mikilla vinsælda.
Óhætt er að segja að sú mynd
sem Kenneth Branagh dregur upp
af Hercule Poirot sé nokkuð frá-
brugðin eldri útgáfum hans.
Lúxussigling Hercule Poirot á
Níl breytist í æsispennandi leit að
morðingja og spennan magnast
og magnast þar til allt upplýsist að
hætti Poirots. n
Sambíóin, Smárabíó og kvik
myndahús um allt land