Friðarboðinn og vinarkveðjur - 18.03.1943, Síða 9
Hin ógurlega rödd: ÞaS er ekki von að þú skiljir það,
gamli forpokaði lúsablesi og sexúalisti. Fræðarar þeir,
sem ég átti við eru margir, en ég vil aðeins nefna hinn
mesta þeirra, sem sé Jóhannes Kr. Jóhannesson skáld-
speking og friðar-frelsisforseta, sem gæddur er þeim
fullkomnasta heila á ykkar hnetti.
Fundarmaður A: Hann Jóhannes Kr. ? Ha-ha-ha?
Hin ógurlega rödd: Já, hlæ þú sexúalistiska individ,
sem aldrei hefir hugsað um annað en vagina og clitoris
síðan þér fór að vaxa skegg á scrótum. Eg get frætt þig
og aðra á því, að hr. Jóhannes er ekki einungis maður,
hann er ofurmenni, hann er nærri því þeos. Og ef þið
hlýðið ekki með auðmjúkum hjörtum á hinn geniala
skáldskap og hinn guðdómlega friðarboðskap hans, þá
mun hnetti yðar verða tortýmt á hatramlegan hátt af
æðri máttarvöldum.
Fundarmaður A: Nei, nú ertu að gera að gamni þínu!
Um leið og fundarmaður A mælti þetta, laust negativ-
um rafmagnsgeisla niður í höfuð hans með svo miklu of-
forsi, að hann var „knock out“ það sem eftir var fund-
arins.
Hin ógurlega rödd (ennþá ógurlegri en áður) : Svona
mun fara fyrir hverjum þeim, er efast um sannleiksgildi
orða minna, því ég þoli engin mótmæli í svona mikils-
verðu máli og slæ ég því hér með föstu, að hr. Jóhannes
er mestur fræðari á ykkar hnetti. Hlýðið honum og hon-
9