Friðarboðinn og vinarkveðjur - 18.03.1943, Side 10
um einum.-----------Kraftur minn er nú að dvína og
verS ég aS kveðja ykkur. Verið bless, góðir hálsar. -—
Nei, bíðið annars við. A enginn ykkar í nefið?
Fundarmaður B: Jú, jú, ég er með fullan hrútspung
af ,,Trausta“.
Hin ógurlega rödd (ekki nærri eins ógurleg og áður) :
Láttu hann þá á borðið þarna út við gluggann.-------
Já, svona gói minn, mange Tak, mange Tak.-------
Heyrðu fundarmenn nú, að tekið var hraustlega í
nefið og hnerrað, svo alt lék á bræði. Nokkru síðar
heyrðist röddin segja: Jæja, góða nótt og Jóhannes
veri með ykkur. Eftir þetta komu fram nokkrir ómerki-
legir andar, sem lítið mark var á takandi og var fundi
slitið eftir að fundarmenn höfðu sungið „Faðir and-
anna“. Þess skal getið að Iokum, að ekkert ljós var haft
á fundinum.
Yðar einl. aðdáandi.
Magnráður S. Melanchton, bókmentafræðingur m. m.
Til Jóhannesar Kr. Jóhannessonar sóphista, Sólvalla-
götu 22 Rvík.
28. febr. 1943.
Þú mikli Skáldfáks-reiðmaður (á Pegasus) !
Eg veit að skáldskapurinn er yðar aðal-áhugamál og
tel eg það vel farið, því ef satt skal segja, eruð þér mesta
10