Friðarboðinn og vinarkveðjur - 18.03.1943, Page 11

Friðarboðinn og vinarkveðjur - 18.03.1943, Page 11
núlifandi skáld í Evrópu, og þó víðar væri leitað. Þess vegna orkti eitt af stórskáldum okkar: Jóhannes í jötunmóð yrkja kann slyngur mann. Altaf þykja kvæði hans gó'S lífsins hér í rann.1 Aldrei hefir annar gert það betur, aldrei hefir annar gert þáð betur en hann. Nei, það hefir enginn orkt betur en þér, mikli og dá- samlegi Logos. Það er enginn vafi á því, að þér munuð að lokum sigra heiminn með hinum töfrandi og inspirer- aða skáldskap yðar. Eg fæ ilt í magann þegar ég heyri ýms inferiör individ lýsa því yfir að þér séuð ekkert skáld, aðeins rímhnoðari með stolnar hugmyndir (pla- giat) ; því ef nokkur maður er frumlegt geni, þá eruð það þér, ódauðlegi Jóhannes. Konan mín hefir sagt mér að ljóð yðar verkuðu stímu- lerandi á clitoris margra giftra kvenna og mun mönnum þeirra þykja það góð tíðindi, sérstaklega núna í vita- minsleysinu. Eg veit líka til þess, að gamlir menn hafa fylst erotísku offörsi er þeir lásu ástarljóð yðar, sem að mínu áliti eru undursamlega orkt. Um trúarljóð yð- ar er það að segja, að gamlir hórdómsseggir og trúníð- 11

x

Friðarboðinn og vinarkveðjur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Friðarboðinn og vinarkveðjur
https://timarit.is/publication/1666

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.