Fréttablaðið - 02.03.2022, Síða 2

Fréttablaðið - 02.03.2022, Síða 2
Sumar sögurnar hljóma auðvitað eins og lygasögur en ég veit að þær eru sannar. Þórir Erlingsson, forseti mat- reiðslumeistaraklúbbsins birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Hjú k r u na r- fræðingar frá Heilsugæslu höfuð- borgarsvæðisins (HH) munu veita framhaldsskólanemum á höfuð- borgarsvæðinu aðstoð vegna and- legrar vanlíðunar. Greint er frá þessu á vef Heilsugæslunnar. Guðlaug U. Þorsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri geðheilbrigðisþjón- ustu hjá HH, og Kristinn Þorsteins- son, formaður Skólameistarafélags Íslands, undirrituðu samkomulag um þessa auknu þjónustu síðast- liðinn föstudag en um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs. Hjúkrunarfræðingar munu koma í framhaldsskólana og veita nem- endum aðstoð, ráðgjöf og fræðslu. Meðal annars um jákvæða sjálfs- mynd, hreyfingu, næringu, hvíld, andlega vellíðan, góð samskipti, öryggi, hreinlæti, kynheilbrigði og skilning á tilfinningum. Þeim verða boðin einstaklings- viðtöl og leiðbeint eftir þörfum um hvernig þeir geti nýtt sér frekari meðferðarúrræði innan heilsu- gæslunnar. ■ Veita nemum sálræna aðstoð Guðlaug U. Þorsteinsdóttir, framkvæmda- stjóri geðheil- brigðisþjónustu hjá HH Spurt hvort allt sé í góðu Dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóri og Neyðarlínan kynntu í gær og hófu vitundarvakningu gegn kynferðisofbeldi. Skilaboð átaksins berast til almenn- ings á djamminu, sem er beðinn um að vera vakandi fyrir ofbeldi og spyrja „Er allt í góðu?“. „Ef við getum stillt saman strengi í þessu þá hef ég mikla trú á því að þetta geti orðið samfélagsvaki,“ sagði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra í samtali við Fréttablaðið eftir kynningarfund. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is Allra síðasta kvöldmáltíðin var snædd á hinum goðsagna- kennda veitingastað Grillinu í gær þegar klúbbur mat- reiðslumanna klæddi sig upp og gladdist. benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG „Fyrir okkur matreiðslu- menn þá tengist Grillið og Hótel Saga okkar sögu mjög sterkum böndum. Fyrir þá sem eru hingað komnir á fund matreiðslumeist- ara til að kveðja Grillið er hægt að segja að þetta sé tilfinningarík stund,“ segir Þórir Erlingsson, for- seti Klúbbs matreiðslumeistara, en klúbburinn hélt sinn mánaðarlega fund í gær á Grillinu. Þetta var allra síðasti kvöld- verðurinn sem verður borinn fram á Grillinu en staðurinn var í farar- broddi í gæðum allt frá fyrsta degi. Auðvelt er að fullyrða að Grillið hafi verið eitt frægasta og virtasta veitingahús landsins. Sögu Grillsins lauk þegar Hótel Sögu var skellt í lás. Glatt var á hjalla meðal klúbb- meðlima þegar þeir gengu inn í sal Grillsins og nostalgía í hverri sögu áður en Fréttablaðið varð að yfir- gefa samkomuna. „Ég held að allir sem tengjast veitingageiranum hefðu viljað sjá Hótel Sögu lifa en nú er hún farin og við verðum að ylja okkur við þær góðu sögur sem við höfum úr þessu húsi,“ segir Þórir. Hann segir að sumir sem mættu í gærkvöld hafi varið árum og jafnvel áratugum við vinnu á Hótel Sögu og Grillinu. Það sé því svolítið skrýtið að gleðjast yfir engum takmörk- unum vegna faraldursins en engu að síður að gleðjast og segja skemmti- legar sögur. Þórir leggur til að jafn- vel verði gefin út bók með þessum sögum, þær séu nefnilega sumar ansi ótrúlegar. „Sögubók. Það myndi koma mér margt meir á óvart en ef sú bók yrði að veruleika. Það væri bók þar sem fólk myndi bæði hlæja og gráta. Sumar sögurnar hljóma auð- vitað eins og lygasögur en ég veit að þær eru sannar,“ segir hann og hlær. Klúbburinn hefur fundað mán- aðarlega í 50 ár með nokkrum Covid-undantekningum en hann var stofnaður 16. febrúar á Naust- inu. „Við fundum frá september og fram í maí og tökum svo gott sumarfrí en þetta er búið að hald- ast alla sögu klúbbsins, að funda einu sinni í mánuði. Alltaf mætir fólk í hvítum kokkajakka, svörtum buxum og svörtum skóm. Hátíðar- klædd og ræðum það sem okkur finnst skemmtilegast að ræða, veit- ingageirann, mat og matargerð,“ segir forsetinn og bætir því við að hópurinn sé mjög samheldinn. Klúbburinn rekur kokkalands- liðið sem er fulltrúi Íslands á stærstu alþjóðlegu matreiðslu- keppnum kokkalandsliða, bæði HM og Ólympíuleikum. Landsliðið er á topp 10 í alþjóðlegum samanburði og hefur best náð 3. sæti á Ólympíu- leikum og 5. sæti á HM. „Við sameinumst um landsliðið okkar og svo snýst þetta um mat og matargerð. Þetta snýst um þróun en ekki samkeppni. Þarna sitja sam- keppnisaðilar saman á borði og hlæja og segja sögur úr bransanum,“ segir Þórir og hleypur nánast inn á Grill. Vill helst ekki missa af einni sekúndu. ■ Allra síðasta kvöldmáltíðin var snædd á Grillinu góða Glatt var á hjalla þó að tilefni máltíðarinnar væri súrsætt. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR helenaros@frettabladid.is ÞJÓÐKIRKJAN Leyfi séra Gunn- ars Sigurjónssonar, sóknarprests í Digranes- og Hjallaprestakalli, hefur verið framlengt til 1. maí næstkomandi. Þetta staðfestir Sunna Dóra Möll- er, settur sóknarprestur við Digra- nes- og Hjallaprestakall, í samtali við Fréttablaðið. Gunnar var settur í leyfi í desemb- er síðastliðnum vegna ásakana sex kvenna um kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi og einelti innan kirkjunnar. Upphaflega stóð til að Gunnar yrði í leyfi fram til gær- dagsins, eða 1. mars, á meðan málið er til rannsóknar hjá óháðu teymi sem starfar utan við allar stofnanir kirkjunnar. „Staðan er þannig að það er ekk- ert að frétta. Málin liggja hjá teym- inu og við bíðum eftir því að niður- staða skili sér. Þetta er náttúrulega flókið og margslungið mál og í mörg horn að líta þannig að þau þurftu bara aðeins lengri tíma til að fara yfir þetta og hann var settur í leyfi í allavega tvo mánuði í viðbót,“ segir Sunna Dóra og bætir við að hún hafi fengið fréttirnar síðastliðinn föstu- dag. Að minnsta kosti sjö mál tengd Gunnari eru nú til rannsóknar.■ Séra Gunnar áfram í leyfi frá störfum Sunna Dóra Möller, settur sóknarprestur í Digranes- og Hjallaprestakalli 2 Fréttir 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.