Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 8
Olía er umtalsverður hluti af kostnaði flugfélaga. Olíuverð hefur ekki verið hærra frá árinu 2014. Eldsneytisvarnir Icelandair á fyrri helmingi ársins eru um 20-30 prósent. helgivifill@frettabladid.is Greinendur telja að olíuverð um þessar mundir sé í hámarki vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Þeir spá því að verðið verði lægra í sumar. Ef svo fer væri það lán í óláni því umsvif í f lugi eru mun meiri á sumrin en á veturna. Aðstæður geta þó breyst hratt í stríði. Þetta segir Birgir Jónsson, forstjóri Play. Fram hefur komið í fréttum að olíuverð hefur ekki verið hærra frá árinu 2014, frá því að innrásin í Úkraínu hófst. Aðspurður segir hann að olía sé umtalsverður kostn- aðarliður hjá Play. Fram að þessu hefur Play ekki keypt olíuvarnir því f lugfélagið hefur flogið til þess að gera lítið og miklar sveiflur hafa verið á olíuverði. Viðskiptavinir hafa keypt flugmiða með skömmum fyrirvara í Covid-19 og því hefur verið mögulegt, að sögn Birgis, að láta miðaverð endurspegla að einhverju leyti olíukostnað. Play mun nýta olíuvarnir þegar umsvifin aukast með vorinu og viðskiptavinir eru farnir að kaupa flugmiða með meiri fyrirvara. „Aðalmálið fyrir okkar rekstur er að eftirspurn haldist,“ segir Birgir. „Fram að þessu hafa átökin ekki haft áhrif á eftirspurn eftir f lug- ferðum hjá okkur.“ Birgir segir að almennt ætti miða- verð að þróast í takt við olíuverð. Markaðsaðstæður alþjóðlega séu þó með þeim hætti að almennt séu flugfélög með mikla afkastagetu því ferðalög hafa dregist saman í Covid- 19. Þau reyni að glæða eftirspurnina með lægra verði. „Mögulega munu f lugfélögin taka hærra olíuverð á sig,“ segir Birgir. Hann segir að Play sé ekki með háan fastan kostnað. Flugfélagið sé með þrjár f lugvélar í rekstri en í sumar verði þær sex. „Við erum að auka framboð á f lugi á hárréttum tíma eftir Covid-19.“ Bogi Nils Bogason, forstjóri Ice- landair Group, segir að stríð í Úkra- ínu hafi ekki bein áhrif á rekstur flugfélagsins. „Leiðakerfið nær ekki yfir þetta svæði,“ segir hann. Að hans sögn eru óbeinu áhrifin hærra eldsneytisverð. Aðspurður segir hann eldsneytisvarnirnar á fyrri helmingi ársins vera um 20-30 prósent. Bogi bætir því við að öll óvissa sé slæm fyrir viðskipti og ferðalög. Það eigi eftir að koma í ljós hver áhrif innrásarinnar verði á bókanir. Fram til þessa hafi hún ekki haft áhrif á bókanir. Aðspurður segir Bogi að áætl- anir Icelandair geri ráð fyrir að flugfélagið verði rekið með hagnaði í ár. Þær áætlanir geri ráð fyrir að eldsneytisverð sé að meðaltali 800 Bandaríkjadalir á tonnið. „Hækk- anir umfram það munu hafa áhrif á afkomuna til verri vegar,“ segir hann. Samkvæmt upplýsingum á vef IATA, alþjóðasambands flugfélaga, kostar tonnið nú um 878 Banda- ríkjadali og hefur hækkað um 59 prósent á milli ára. n Reginn er með bestu nýtinguna af öllum fasteignafélögunum og liggur styrkur Regins þar í góðri dreifingu eignasafnsins. Aðalmálið fyrir okkar rekstur er að eftirspurn haldist. Birgir Jónsson, forstjóri Play Leiðarkerfið nær ekki yfir þetta svæði. Bogi Nils Boga- son, forstjóri Icelandair Group Sjónmælingar eru okkar fag Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Lán í óláni að olíuverð sé í hæstu hæðum þegar minna er flogið © GRAPHIC NEWS 140 120 100 80 60 40 20 0 2021202020192018201720162015201420132012 Hráolíuverð (í Bandaríkjadölum á tunnu) Heimildir: BBC, Reuters, Trading Economics 2014: Hægir á alþjóðlegu efnahagslíŒ og aukin framleiðsla á leirsteinsolíu (e. shale) í Banda- ríkjunum Des 2016: Olíuframleiðslu- ríki samþykkja að draga úr framleiðslu 2018: Viðskiptastríð á milli Bandaríkjanna og Kína 24. febrúar 2022: Rússland ræðst inn í Úkraínu $104.71 $99.33 Brent: West Texas Intermediate (WTI): Vorið 2020: Olíuverð hækkar vegna Covid-19 Október 2021: Rússland safnar saman heraža í nágrenni við Úkraínu $16.94 c $28.94 $84.16 $125.81 $107.06 Olíuverð hefur hækkað um yŒr 100 Bandaríkjadali á tunnuna og hefur ekki verið hærra í meira en sjö ár e¡ir að Rússland réðst inn í Úkraínu. Olíuverð hækkar e ir innrás Rússlands í Úkraínu Helgi Vífill Júlíusson n Skoðun magdalena@frettabladid.is Jakobsson Capital metur gengi hlutabréfa í fasteignafélaginu Regin á 38,2 krónur á hlut sem er 14 pró- sent yfir núverandi markaðsgengi félagsins. Þetta kemur fram í nýju verðmati sem gefið var út þann 25. febrúar síðastliðinn. Markaðsvirði félagsins nemur rétt tæplega 61 milljarði króna en verðmatið hljóðar upp á rétt tæpa 70 milljarða króna. Fram kemur í verðmatinu að rekstrarhagnaður Regins reyndist vera 200 milljónum króna hærri en gert var ráð fyrir í rekstraráætlun- um. Leigutekjur jukust um 13 pró- sent eða um 1.200 milljónir króna milli ára og námu 10.374 milljónum króna árið 2021. „Líklegast er hægt að benda á verðbólguskot í lok seinasta árs en tekjur fasteignafélaganna eru nánast að fullu verðtryggðar. Kostnaðarhlutföll voru líka örlítið hagstæðari en búist var við,“ segir í verðmatinu. Einnig kemur fram að Reginn hafi verið í talsverðum kostnaðarhag- ræðingum á árinu sem hafi „skilað sínu“. „Reginn er með bestu nýtinguna af öllum fasteignafélögunum og liggur styrkur Regins þar í góðri dreifingu eignasafnsins. Aðeins um 5% eru hótel en rúmlega 30% eru verslunareignir. Verslun hefur gengið af burða vel undanfarið ár og tekjur líklegast góðar vegna verslunareigna,“ segir í verðmatinu. Þá kemur fram að rekstrarkostn- aður Regins hafi aukist lítillega á árinu eða um tæplega 1,5 prósent en að raunvirði er það samdráttur í rekstrarkostnaði. Um helmingur rekstrarkostnaðar fasteignafélag- anna eru fasteignagjöld. „Virðismat eigna Regins jókst nokkuð árið 2021 eða um 9,5 pró- sent milli ára og ættu fasteignagjöld því hækka nokkuð árið 2022. Þróun fasteignaverðs atvinnuhúsnæðis hefur væntanlega verið nokkuð döpur árið 2020 og hækkuðu fast- eignagjöld lítið milli áranna 2020 og 2021 eða innan við 1 prósent. Fast- eignagjöld fóru úr 1.570 milljónum króna í 1.584 milljónir króna,“ segir í verðmatinu. Jafnframt segir að leiga á síðasta ári hafi hækkað af þeim sökum langt umfram hækkun fasteigna- gjalda. „Leiguarðsemi hækkar því nokk- uð milli ára og er nú 4,9 prósent í stað 4,4 prósenta árið 2020 og er arðsemi nú í takt við seinustu árin fyrir Covid. Kostnaður við trygging- ar jókst um 13 milljónir króna eða 9 prósent. Eini kostnaðarliðurinn sem jókst umfram verðbólgu svo um muni er stjórnunarkostnaður sem hækkaði um tæplega 20 pró- sent milli ára.“ n Metur Regin fjórtán prósent yfir markaðsgengi Helgi S. Gunn- arsson, forstjóri Regins Það er ekki nóg með að atvinnu- líf ið tortryggi og vantreysti Reykjavíkurborg, eins og fram kemur í drögum að atvinnu- og nýsköpunarstefnu borgarinnar, heldur treystir borgin ekki fyrir- tækjum fyrir mikilvægum verk- efnum. Það má sjá í hve litlum mæli borgin nýtir þjónustu einka- rekinna leik- og grunnskóla. Og að borgin stefnir á að ráða 60 manns, eða ígildi fjölmenns upplýsingatæknifyrirtækis, til að byggja upp stafræna innviði sveitarfélagsins, í stað þess að bjóða út einstaka verkþætti. Dæmin eru fleiri. Reykjavíkur- borg rekur til dæmis stærstu sorphirðu landsins í stað þess að fá einkaaðila til að sinna henni. Raunar er meirihlutanum í Reykjavíkurborg það illa við sjálfstæða grunnskóla að hann hefur kosið að svelta þá. Það er skilvirk leið til að gera þá horn- reka í borginni. Einkareknu grunnskólarnir fá einungis 75 prósent af framlagi skóla í eigu borgarinnar. Vitaskuld eiga allir barnaskól- ar að fá jafnt frá borginni. Fullt framlag eykur líkur á að skól- arnir þurfi ekki að innheimta skólagjöld sem mun gera fleirum kleift að sækja nám hjá þeim. Mælikvarðinn á einkarekstur sem veitir opinbera þjónustu er ekki að hann afli sjálfstæðra tekna, eins og ætla mætti af fyrir- komulaginu, heldur að hluthafar hætti eigin fé í reksturinn. Leita þarf leiða til að ef la menntun á Íslandi og öf lugir einkareknir skólar eru vel til þess fallnir að innleiða nýjungar í skólastarfið og veita nemendum góða þjónustu. Menntun er lykillinn að því að ná árangri í útflutningi á tækni. Það er nauðsynlegt að ná mikl- um árangri á því sviði til að lífs- gæði hér á landi verði til jafns við það sem best gerist í heiminum enda er vöxtur auðlindahag- kerfisins háður takmörkunum. Borgin hefur dregið lappirnar í upplýsingagjöf. Þórdís Sigurðar- dóttir, sem sækist eftir oddvita- sæti Viðreisnar í Reykjavíkur- borg, vekur athygli á því í viðtali við Markaðinn að foreldrar geti ekki af lað sér upplýsinga um gæði skóla í borginni. Það er mikilvægt að fá þær fram. Foreldrar eiga ekki að treysta í blindni þegar þeir skrá börn sín í skóla. Slíkar upplýsing- ar eru líka leiðarvísir og hvatning fyrir skóla til að bæta sig. n Vantraust á báða bóga 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGURMARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.