Fréttablaðið - 02.03.2022, Page 10

Fréttablaðið - 02.03.2022, Page 10
Borgin á að greiða þessum skólum til jafns við hina opin- beru líkt og önnur sveitarfélög gera. magdalena@frettabladid.is  Hjörtur Elvar Hilmarsson, fram- kvæmdastjóri og meðeigandi vef- hönnunarstofunnar 14islands, segir að það felist mikil tækifæri fyrir fyrirtæki í að huga að stafrænu vörumerki sínu. „Við stof nuðum f y r irtæk ið 14islands fyrir tíu árum í Stokkhólmi og síðan þá erum við búin að hjálpa mörgum fyrirtækjum að hanna og smíða stafrænar vörur,“ segir Hjörtur og bætir við að meðal þeirra fyrir- tækja sem 14islands hefur aðstoðað séu Spotify, Sameinuðu þjóðirnar, Disney, Google, Adidas og nýsköp- unarfyrirtæki frá ýmsum stöðum í heiminum. „Við erum nú að opna starfsstöð hér á landi og mun ég leiða þá veg- ferð en við erum nú þegar með starfsemi í Svíþjóð og Brasilíu. Það felast mörg tækifæri í því að opna starfsstöð hér á landi. Hér höfum við til dæmis aðgang að mjög hæfu starfsfólki. Síðan er líka spennandi að vinna með fyrirtækjum hér á landi og ráðleggja þeim um hvernig byggja má upp stafrænt vörumerki. Hjörtur segir að viðskiptavinir fyrirtækisins séu oft á tíðum á mis- munandi stað hvað varðar staf- rænar vörur en 14islands geti mætt þörfum þeirra hvar sem þau séu stödd. „Við bjóðum upp á hönnun, ráð- gjöf og hugbúnaðarþróun. Oft á tíðum vita fyrirtækin ekki hvað þau þurfa þegar kemur að því að byggja upp stafræn vörumerki og þá ráð- leggjum við þeim í því ferli. Það sem skapar okkur sérstöðu er að við bjóðum fyrirtækjum upp á allan pakkann. Við tökum að okkur þetta ferli að þróa stafrænar vörur frá upp- hafi til enda.“ Hjörtur bætir við að í Covid-19 far- aldrinum hafi fyrirtækin mörg hver áttað sig á því hversu mikilvægt það er að veita viðskiptavinum vandaðar stafrænar vörur . „Þegar faraldurinn var nýbúinn að skella á minnkuðu aðeins umsvifin hjá okkur því fyrirtækin voru að halda að sér höndum. En eftir sirka þrjá mánuði fór aftur að aukast hjá okkur því þá áttuðu fyrirtækin sig á því að þörfin fyrir stafrænar vörur hafði í raun aldrei verið meiri. 14islands hefur verið í töluverðum vexti og á síðasta ári tvöfaldaðist bæði velta og starfsmannafjöldi félagsins. Nú starfa um 15 manns á stofunni og við hyggjumst bæta við okkur. Ég er bjartsýnn á að það eigi eftir að eiga sér stað enn meiri vitundarvakning meðal fyrirtækja um að þróa stafræn vörumerki og fá aðstoð fagaðila í þeirri þróun.“ n Tækifæri felist í stafrænum vörum Hjörtur Elvar Hilmarsson, framkvæmdastjóri 14islands. MYND/AÐSEND magdalena@frettabladid.is Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri Marel, segir að í stóra samhenginu muni innrás Rússa í Úkraínu hafa lítil sem engin áhrif á fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Um 70 manns vinna fyrir fyrirtækið í Rússlandi og Úkra- ínu en hjá fyrirtækinu í heild starfa um 7.000 manns. „Við erum stórt alþjóðlegt fyrir- tæki sem störfum í þremur iðngrein- um, erum með starfsemi í sex heims- álfum og þjónustum viðskiptavini í 140 löndum. Síðan koma 40 prósent af okkar tekjum frá þjónustu og sölu á varahlutum,“ segir Linda og bætir við að þó Marel sé vissulega með starfsemi í Rússlandi og Úkraínu sé starfsemin þar aðeins nokkur pró- sent af heildarmyndinni. „Auðvitað höfum við áhyggjur af heimsástandinu og það er mikil óvissa um þessar mundir en þetta hefur ekki mikil fjárhagsleg áhrif á okkur. Hjá Marel vinna rúm- lega 7.000 manns en aðeins um 70 manns vinna hjá okkur í Rússlandi og Úkraínu til dæmis. Við höfum lagt höfuðáherslu á að tryggja öryggi þeirra og annarra starfs- manna á svæðinu, og munum að sjálfsögðu fylgja öllum lögum og þeim viðskiptaþvingunum sem við eiga hverju sinni.“ Linda segir einnig að viðskipta- módel Marel hafi reynst farsælt á tímum áskorana. „Í þéttu samstarfi við viðskiptavini okkar og birgja hefur lausnamiðað og öflugt teymi Marel tryggt að fæðukeðjan, ein mikilvægasta virðiskeðja í heimi, hafi haldið áfram starfsemi þrátt fyrir áskoranir í markaðsumhverfi eins og milliríkjadeilur, viðskipta- þvinganir og heimsfaraldur. n Sjötíu vinna fyrir Marel í Rússlandi og Úkraínu Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri Marel. Þórdís Sigurðardóttir, sem sækist eftir oddvitasæti Við- reisnar í Reykjavíkurborg, hefur setið í fjölda stjórna, þar á meðal Apple í Skandinavíu, Karen Millen í London, Voda- fone, Merlin í Danmörku og Debenhams í Svíþjóð. helgivifill@frettabladid.is Það væri hagkvæmara fyrir Reykja- víkurborg að gera f leiri samninga við sjálfstætt starfandi leikskóla. Þeim hefur gengið vel að manna stöður og um þá ríkir mikil ánægja meðal foreldra og starfsfólks. Á sama tíma hefur Reykjavíkurborg átt í vandræðum með að ráða til sín starfsfólk á leikskóla sem bitnar á þjónustunni. Þetta segir Þórdís Sigurðardóttir sem sækist eftir oddvitasæti Við- reisnar í Reykjavíkurborg. Hún þekkir vel til rekstrar leik- og grunn- skóla en Þórdís var framkvæmda- stjóri Hjallastefnunnar í fimm ár þar til fyrir um ári. Þórdís hefur meðal annars setið í stjórnum Haga, Apple í Skandinavíu, Karen Millen í London, Vodafone, Teymis, Merlin í Danmörku, Debenhams í Svíþjóð og Skugga bókaútgáfu. Hún starfaði einnig í Háskólanum í Reykjavík sem lektor í stefnumótun og stjórn- un en einnig sem forstöðumaður MBA-náms og í Háskólaráði HR. Þórdís segir að það verkefni sem henni er hvað kærast sé umbreyt- ingarverkefni sem hún leiddi innan Hjallastefnunnar, sem á og rekur 18 skóla víðs vegar um landið, og mið- aði að því að valdef la starfsfólk. Mælanlegur árangur var af þessum aðgerðum en meðal annars jókst starfsánægja mikið, sem og ánægja foreldra, hlutfall fagmenntaðs starfsfólks varð það hæsta á landinu og á sama tíma batnaði reksturinn. Fyrir vikið hlaut Hjallastefnan verð- laun Viðskiptaráðs árið 2019 enda dæmi um að hægt sé að auka gæði og draga úr kostnaði með góðri stjórnun. Þórdís vekur athygli á að Reykja- víkurborg greiðir einungis 75 prósent til einkarekinna grunn- skóla af því sem kostar að reka skóla borgarinnar. „Það gerir það að verkum að einungis ákveðinn hluti foreldra getur leyft börnum sínum að fara í sjálfstætt starfandi skóla. Ég vil breyta þessu. Borgin á að greiða þessum skólum til jafns við hina opinberu líkt og önnur sveitarfélög gera. Það er mikilvægt að skólar borgarinnar hafi fjöl- breyttar áherslur. Valdef la þarf starfsfólk skóla og færa þjónustuna nær börnunum. Flækjustigið er of mikið. Frelsa þarf starfsfólk undan þessu oki. Það er langskólagengið en nýtur lítils traust. Ég þekki þetta af eigin reynslu: Þegar ég hóf störf hjá Hjallastefnunni hófum við þessa vegferð, að sýna starfsfólki aukið traust. Þau vita best hvað þarf til að skólastarfið verði enn betra,“ segir hún. Að sögn Þórdísar skortir Reykja- víkurborg viðmið um hvað þarf til að skólar borgarinnar séu góðir. Það sé mikilvægt fyrir foreldra að geta komist í upplýsingar um gæði skóla og það sé jafnframt leið til að skólar geti lært af öðrum og bætt sig. Reykjavíkurborg vinnur að því að koma á fót deild til að byggja upp stafræna innviði borgarinnar. Áformað er að verja 10,3 millj- örðum til þessa verkefnis á rúmum tveimur árum. Þórdís gagnrýnir það að borgin hyggist ráða til sín starfs- fólk í stað þess að fá tilboð í ein- staka verkþætti. „Almenna reglan á að vera sú að Reykjavík fari ekki í samkeppni við atvinnulífið. Ef ein- lægur vilji er til að nýsköpun fái að blómstra í borginni, eins og fram kemur í atvinnustefnu hennar, er mikilvægt að styðja við fyrirtækin sem eru að byggja upp þekkingu,“ segir hún. Þórdís er fylgjandi þéttingu byggðar og að hverfin séu skipu- lögð með þeim hætti að ekki þurfi að eiga bíl. Íbúar geti gengið í nauð- synlegar verslanir og til að sækja þjónustu. Auk þess sé mikilvægt að almenningssamgöngur séu góðar. „Borgarlínan er forsenda þess að þeir sem vilja vera á bíl geti kom- ist leiðar sinnar án þess að lenda í umferðaröngþveiti,“ segir hún. Aðspurð hvort hún hafi lýst skipulagsstefnu Dags B. Eggerts- sonar borgarstjóra segir hún að margt sé ógert við að færa þjónustu í hverfin, sem sé þó risavaxið grænt mál og til þess fallið að auka lífsgæði fólks og draga úr umferðarþunga. Margir foreldrar ungra barna þurfi til dæmis að fara um langan veg til að fara með þau til dagforeldra. Þórdís bætir því við að þrátt fyrir að rík áhersla sé á þéttingu byggðar sé hægt að hugsa upp nýjar leiðir til að vinna bug á húsnæðis- skorti. Á sama tíma verði að gæta þess að uppbyggingin sé hluti af stærri hugsun svo innviðir tryggi undirstöður verslunar og þjónustu. Hverfisskipulag þurfi að taka meira mið af sjálf bærni og það sé meðal annars gert með því að tryggja nærþjónustu og þar með draga úr sóun á tíma fólks, minnka kolefnis- fótspor og um leið einfalda líf fólks í borginni. „Þegar við tökumst á við áskor- anir samtímans, líkt og loftslags- mál, verða lausnirnar að vera í takt við þarfir samfélagsins. Ég hef trú á því að þéttbýlisstefnan sé hluti af lausnunum en hún byggir á miklu stærri hugsun heldur en bara þétt- ingu. Hún byggir á nýjum nálg- unum og kallar á nýja hugsun við fjármögnun bygginga og við að skapa fólki betra og sjálf bærara líf,“ segir Þórdís. Spurð hvort það væri fyrsti kostur að halda núverandi sam- starfi í meirihluta segir hún að málefnin verði að ráða för. „Ég vil einfalda og bæta rekstur borgar- innar. Það er búið að skrifa svo margar stefnur undanfarin ár án þess að hugað sé almennilega að innleiðingu þeirra og framkvæmd. Lausnin er ekki alltaf að fjölga fólki heldur skýra ábyrgð á verkefnum,“ bætir Þórdís við. Aðspurð hvernig hún telji að sér muni ganga við að koma á aukn- um einkarekstri í skólakerfinu og útvista verkefnum í samstarfi núverandi meirihluta sem Viðreisn er hluti af með Dag sem borgar- stjóra, svarar Þórdís um hæl að til þess sé mikilvægt að Viðreisn fái góða kosningu til að geta komið þessum málum í gegn og hafi burði til að hefja meirihlutasamstarf við f lokka sem deili sömu sýn og vilji líflega græna borg. n Borgin semji við fleiri einkarekna leikskóla Þórdís starfaði í fimm ár sem framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar sem rekur 18 skóla. MYND/AÐSEND 10 Fréttir 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.