Fréttablaðið - 02.03.2022, Side 11

Fréttablaðið - 02.03.2022, Side 11
Kristín Hildur Ragnarsdóttir hefur verið ráðin til starfa til Íslands- banka þar sem hún mun leiða vöruþróun fyrir ungt fólk og fjár- festingar. Hún byrjar alltaf daginn á hafragraut og kaffi og segir að sú bók sem hafi haft hvað mest áhrif á hana sé Dagbók Önnu Frank. Hver eru þín helstu áhugamál? Allt sem tengist hreyfingu og ferðalögum með fjölskyldu og vinum er efst á lista. Ég reyni að verða betri og betri í golfi á hverju ári, þá mun ég hafa góða afsökun þegar ég fer á eftirlaun fyrir að eyða öllum mínum tíma á Flórída á ein- hverjum fallegum golfvelli. Fylgist líka mikið með íþróttum og er mik- ill Liverpool-aðdáandi, held samt alltaf mest bara með Klopp. Hvernig er morgunrútínan þín? Ég byrja daginn alltaf á hafra- graut og kaffi. Ég bý við þann lúxus að kærastinn minn vaknar yfirleitt á undan mér og gerir morgunmat- inn kláran. Ég reyni að taka æfingu fyrir vinnu tvisvar í viku, allavega ef ég hef sofnað á skikkanlegum tíma. Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig? Þær eru þó nokkrar en sú fyrsta var Dagbók Önnu Frank. Síðan las ég Think and Grow Rich eftir Napo- leon Hill fyrir nokkrum árum og ætli hún hafi ekki sáð einhverjum fjármálafræjum í kollinn á mér. Annars hef ég mikinn áhuga á sögum sem eru byggðar á reynslu- sögum og ef það er einhver lærdóm- ur sem maður getur tekið með sér eftir lesturinn þá er það toppurinn. Svo var gamall yfirmaður að gefa mér bókina Twelve and a Half, eftir Gary Vaynerchuk. Mér finnst mjög skemmtilegt þegar fólk gefur öðru fólki bækur sem hafði áhrif á það og ekki amalegt að vera komin með eina slíka upp í hendurnar. Hvaða áskoranir eru fram undan? Að klára lokaritgerðina mína í meistaranáminu og hefja störf hjá Íslandsbanka en ég hlakka mikið til að kynnast fyrirtækinu og því góða fólki sem starfar þar. Það eru síðan ýmis verkefni á döfinni með samstarfskonum mínum í Fortuna Invest og erum við meðal annars að fara að halda fyrirlestra hér og þar í næsta mánuði. Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Fulla af fróðleik að fást við skemmtilegar áskoranir. Ég verð vonandi búin að fá tækifæri til að fara til Japans, draumurinn væri að gefa út aðra bók og að hafa tekist að fríska upp á fjármálafræðslu í skól- um landsins. Ef þú þyrftir að velja annan starfs- frama, hvað yrði fyrir valinu? Forritari, ég gæti unnið hvar sem er í heiminum og væri líklega örugg með vinnu það sem eftir er – verst er að ég er bara ekki nógu góð í for- ritun. Myndi líka íhuga einhvers konar þjálfun, gæti spunnið saman hreyfingu, félagsskap og vinnu, finnst það hljóma vel. Hver er þín uppáhaldsborg? New York. Hef bara einu sinni komið til Bandaríkjanna og það var til New York í janúarmánuði, ég heillaðist alveg og langar virkilega að prófa að fara þangað aftur yfir sumartímann. Maður gat gengið út með alveg óplanaðan dag en samt alltaf upplifað eitthvað nýtt. Allar týpur af veitingastöðum í boði og fjölbreytt mannlíf, alveg eins og maður vill hafa það í útlöndum. n Hefur áhuga á hreyfingu og ferðum Uppáhalds­ borgin hennar Kristínar er New York en hún fór þangað í janúar síðastliðnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Nám: B.S. í hagfræði frá HÍ og er að ljúka M.S. í fjármálahagfræði við sama skóla núna í vor. Störf: Er að klára síðustu dagana hjá Deloitte og byrja í nýju starfi hjá Íslandsbanka í lok mars þar sem ég mun leiða vöruþróun fyrir ungt fólk og fjárfestingar. Fjölskylduhagir: Í sambúð með Bjarna Páli Linnet Runólfssyni. Það eru nokkrar bækur sem hafa haft hvað mest áhrif á mig en sú fyrsta var Dag- bók Önnu Frank. Þann 26. janúar síðastliðinn kvað undirréttur (e. General Court) Evr- ópudómstólsins (e. Court of Justice of the European Union) upp dóm í máli nr. T-286/09 RENV og felldi ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB (e. European Commission) að hluta til úr gildi, með þeim afleið- ingum að sekt að fjárhæð 1,06 millj- arðar evra var felld niður að fullu. Þarf framkvæmdastjórnin því að endurgreiða Intel sektina auk vaxta og álags. Í ákvörðun sinni hafði fram- kvæmdastjórnin komist að þeirri niðurstöðu að Intel hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína á mark- aði fyrir svonefnd „x86 miðverk“ (e. central processing units, CPU), meðal annars með innleiðingu tryggðarafsláttarkerfis sem gaf við- skiptavinum kost á afslætti gegn því að kaupa einungis eða að stórum hluta miðverk af Intel. Mat framkvæmdastjórnarinnar byggði meðal annars á því að hátt- semin hefði haft skaðleg áhrif á samkeppni með vísan til mats á því hvað jafn skilvirkur keppi- nautur (e. as efficient competitor) þyrfti að rukka fyrir sambærilega vöru til þess að vera arðbær, en framkvæmdastjórnin tók einnig fram að ekki þyrfti að sýna fram á neitt slíkt mat með vísan til dóma- fordæma, sem gjarnan eru kennd við Hoffman-La Roche dóminn frá árinu 1979. Undirréttur Evrópudómstólsins staðfesti ákvörðun framkvæmda- stjórnarinnar í heild sinni árið 2014 með vísan til sömu röksemdafærslu og birtist í ákvörðun framkvæmda- stjórnarinnar, að háttsemin fæli í eðli sínu í sér misnotkun á markaðs- ráðandi stöðu, og því væri óþarfi að leggja mat á það hvort háttsemin hefði haft samkeppnislega haml- andi áhrif í reynd. Þeirri ákvörðun var skotið til yfir- deildar dómstólsins, sem komst að þeirri niðurstöðu árið 2017 í máli nr. C-413/14 að undirrétturinn þyrfti að taka málið aftur til skoðunar þar sem hann hefði ekki lagt sérstakan dóm á mat framkvæmdastjórnar- innar á áhrifum háttseminnar (sem undirrétturinn taldi óþarft með vísan til dómafordæma). Dómur yfirdeildarinnar vakti verðskuldaða athygli á sínum tíma. Taldi dómurinn að þau for- dæmi sem undirrétturinn og fram- kvæmdastjórnin byggðu á væru rangtúlkuð og meðal annars vegna þess þyrfti að fara fram ný sönn- unarfærsla. Það sem vekur sérstaka athygli er að skilningur framkvæmda- stjórnarinnar í ákvörðun sinni frá árinu 2009 og undirréttarins í dómi sínum frá árinu 2014, er sá sami og Samkeppniseftirlitið hefur lagt til grundvallar í málum sem byggja á 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. Dæmi um slíka túlkun má sjá í ákvörðun nr. 40/2014, Misnotkun Securitas hf. á markaðsráðandi stöðu sinni, bls. 33-34. Undirréttur Evrópudómstólsins dró eftirfarandi ályktanir af dóma- framkvæmdinni í samræmi við leið- beiningar yfirdeildarinnar: Þrátt fyrir að leiða megi líkur að því að tiltekið afsláttarfyrirkomu- lag feli í sér misnotkun á markaðs- ráðandi stöðu er ekki þar með hægt að fullyrða að um brot sé að ræða. Ef markaðsráðandi fyrirtæki sýnir fram á (s.s. með hagfræði- greiningum) að tiltekin háttsemi hafi ekki verið til þess fallin að hafa skaðleg áhrif á samkeppni verða samkeppnisy f ir völd að framkvæmda ítarlega rannsókn á áhrifum háttseminnar á grundvelli viðurkenndra sjónarmiða. Ef sam- keppnisyfirvöld rannsaka áhrif háttsemi með hliðsjón af prófinu um jafn skilvirkan keppinaut (e. as efficient competitor test) verður að taka tillit til niðurstöðu þess við mat á því hvort háttsemin sé til þess fallin að raska samkeppni. Dómstóllinn framkvæmdi ítar- legt mat á greiningu framkvæmda- stjórnarinnar á eðli hins meinta brots, meðal annars með hliðsjón af gögnum sem Intel lagði fram. Taldi framkvæmdastjórnin að þau gögn væru til þess fallin að skapa vafa eða ágreining um réttmæti niðurstöðu framkvæmdastjórnar- innar. Með vísan til þeirrar ströngu sönnunarbyrði sem hvílir á herðum samkeppnisyfirvalda væri ótækt að leggja greiningu framkvæmda- stjórnarinnar til grundvallar, og því var nauðsynlegt að ógilda hina áfrýjuðu ákvörðun. Niðurstaða dómstólsins kann að greiða leiðina fyrir aukna áherslu á mat á áhrifum af háttsemi á sam- keppni í stað þess að slík niður- staða sé gefin vegna eðli hins ætlaða brots. Á það einkum við þegar hið markaðsráðandi fyrirtæki getur sýnt fram á að engin útilokunar- áhrif felist í háttsemi þess, með stuðningi við sannreynanleg gögn. Þá kann niðurstaða dómstólsins að leiða til þess að auknar kröfur verði lagðar á rannsókn og sönn- unarfærslu samkeppnisyfirvalda í rannsóknum á brotum gegn 11. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005. n Intel ber sigur úr býtum gegn framkvæmdastjórn ESB Helga Melkorka Óttarsdóttir, lögmaður og meðeigandi á LOGOS Vilhjálmur Herr­ era Þórisson, lögmaður og fulltrúi á LOGOS magdalena@frettabladid.is Jakob Ásmundsson, fjármálastjóri Travelshift sem áður hét Guide to Iceland, segir í samtali við Markað- inn að fyrirtækið sé að fjárfesta í ýmsum spennandi verkefnum utan landsteinanna. „Rætur félagsins liggja hér heima, en undanfarin ár höfum við verið að færa út kvíarnar og fjárfesta í tækni sem gerir okkur kleift að selja ferða- lög um alla Evrópu. Við erum ferða- tæknifyrirtæki og leggjum áherslu á sjálfvirknivæðingu. Ferðamenn geta nálgast alla helstu þjónustu sem þarf til að skipuleggja ferða- lagið sitt auðveldlega á einum stað,“ segir Jakob og bætir við að fyrir- tækið hafi síðustu ár fjárfest í þróun á Guide to Europe. „Það markaðstorg er ætlað fyrir alla Evrópu og er þar af leiðandi mun stærra í sniðum. Þetta verkefni er langt komið og þegar það verður tilbúið um mitt þetta ár mun það bjóða upp á tækni sem ekki hefur sést áður í ferðageiranum.“ Jakob nefnir að fyrirtækið haldi einnig úti samstarfsverkefninu Guide to Phillipines sem býður upp á alhliða ferðaþjónustu á Filippseyjum. Tilkynnt var í gær um að ferða- tæknifyrirtækið hefði breytt nafni sínu úr Guide to Iceland í Travelshift. Vörumerkið Guide to Iceland verður áfram nýtt til markaðssetningar og þjónustu við ferðamenn til Íslands. Travelshift var stofnað árið 2012 og rekur meðal annars Guide to Iceland, markaðstorg sem er notað af yfir 1.500 ferðaþjónustufyrirtækjum á Íslandi. Yfir milljón ferðamenn heimsækja vefsíðuna í hverjum mánuði. n Travelshift færir út kvíarnar Jakob Ásmunds­ son, fjármála­ stjóri Travelshift MIÐVIKUDAGUR 2. mars 2022 MARKAÐURINNFRÉTTABLAÐIÐMIÐVIKUDAGUR 2. mars 2022

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.