Fréttablaðið - 02.03.2022, Síða 12

Fréttablaðið - 02.03.2022, Síða 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Ekkert er betra fyrir heims- byggðina en ungt fólk sem þyrstir í lýðræðisleg vinnu- brögð, siðferði í stjórn- málum og virðingu fyrir mann- réttindum. Grípa þarf til varnar fyrir lýð- ræðið því án virks lýðræðis er samfélagið allt í hættu. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Í valdatafli nýta aðilar sér upplýsingaóreiðu til að rugla fólk í ríminu, til að veikja andstæðinginn og gera honum erfiðara um vik að verjast. Upplýsinga- óreiða og falsfréttir eru alltaf hluti af stærri áætlun þeirra sem hag hafa af útbreiðslunni. Netárásir eru beinar árásir á nauðsynlega innviði samfélaga og geta bæði beinst að opinberum stofnunum og einka- fyrirtækjum. Netárásir, upplýsingaóreiða og falsfréttir virða engin landamæri. Það er því afar brýnt að þjóðir vinni saman og standi saman gegn þessum ógnum. Við höfum séð skýr dæmi um afleiðingar; kosning- arnar um Brexit, forsetakosningar í Bandaríkjunum árið 2016 og framferði Rússa í aðdraganda innrásar í Úkraínu. Opin og frjáls lýðræðissamfélög líkt og okkar á Norðurlöndum eru ekki sjálfgefin. En þau eru bestu samfélög í heimi þar sem ríkir meira traust á milli manna en í öðrum löndum. Ein helsta ógn nútímans við samfélög og við lýðræðið í heild eru netárásir og upplýsingaóreiða. Fjölmiðlar í lykilhlutverki Nú sem aldrei fyrr er nauðsynlegt að finna leiðir til að standa vörð um opin og frjáls samfélög og líta á lýð- ræðið líkt og aðra nauðsynlega innviði sem tryggja þarf órofa virkni. Grípa þarf til varnar fyrir lýðræðið því án virks lýðræðis er samfélagið allt í hættu. En hvað er til ráða? Menntun skiptir máli. Við þurfum að styrkja almennan þekkingargrundvöll og mennta unga fólkið okkar. En við þurfum einnig að mennta allan almenning sem getur dreift fals- fréttum án þess að vita hvað að baki þeim býr. Við þurfum að efla tæknikunnáttu og einnig grunngildi norrænna samfélaga. Ábyrgir fjölmiðlar gegna lykilhlutverki við að greina og sjá í gegnum upplýsingaóreiðu og halda uppi lýðræðislegri umræðu meðal almennings. Blaðamenn njóta lagalegrar verndar til að geta gegnt því hlutverki sem best. Árásir á blaðamenn sem sinna því mikilvæga starfi eru í raun árásir á lýð- ræðið og á frjáls opin samfélög. n Ógn við lýðræðið Oddný G. Harðardóttir þingmaður Sam- fylkingarinnar ser@frettabladid.is Sjálfsátök Það getur oft og tíðum verið kátbroslegt þegar einn og sami maðurinn á í átökum við sjálfan sig, en nýjasta dæmið um háskaleik af þessu tagi er afstaða þingmannsins Guðrúnar Hafsteinsdóttur til hug- myndanna um sölu á hluta í Lands- virkjun. Ekki eru margir dagar frá því haft var eftir henni á forsíðu Fréttablaðsins að tilhlýðilegt væri að selja sosum eins og 30 til 40 prósenta hlut í þessu gróðavænlega ríkisfyrirtæki á frjálsum markaði – og þótti það auðvitað tíðindum sæta að sjálfur formaður efnahags- og viðskiptanefndar kæmi fram með bombu af þessu tagi – og vel að merkja, væntanlegur ráðherra í sósíalísku hægristjórn landsins. U-beygjan En auðvitað komu vöflur á nýja þingmanninn þegar allt varð vit- laust á Alþingi vegna þessara snagg- aralegu yfirlýsinga. Minnihluti nefndarinnar varð snöggvondur og jós óðara skömmum yfir formann- inn sem fékk það að auki óþvegið í opinberri umræðu um málið – og mjög líklega innan eigin þingflokks sem hefur á síðari árum haft meiri áhuga á að þenja báknið út en henda því burt. Og auðvitað endaði þetta svo allt saman með aðsendri grein nýja þingmannsins í Mogga þar sem goldið var loks varhug við því að selja nokkurn skapan hlut úr eignasafni Landsvirkjunar. Þetta eru sko alvöru innri átök – einnar og sömu manneskjunnar. n MANNAMÁL FIMMTUDAGA KL. 19.00 OG AFTUR KL. 21.00 Fáar þjóðir hafa barist jafn hatramm- lega fyrir því undanfarna áratugi að fá að vera virkir þátttakendur í alþjóða- samfélaginu og úkraínska þjóðin. Ekkert er betra fyrir heimsbyggðina en ungt fólk sem þyrstir í lýðræðisleg vinnu- brögð, siðferði í stjórnmálum og virðingu fyrir mannréttindum. Það er akkúrat í þágu þess sem úkraínsk ungmenni hafa staðið á strætum og torgum borga lands síns undanfarinn aldarfjórðung og hrópað þaðan vonir sínar og drauma um bjarta framtíð. Evrópa á að taka þessum ungmennum fagnandi, faðma þau og umvefja. Jafnvel þótt stjórnvöldin í landinu hafi lengst af átt erfitt með að hemja leitni sína í spillingu og mann- réttindabrot geta borgararnir sjálfir þráð rétt- látt, friðsamt, kærleiksríkt og gott samfélag. Þetta má ekki síst sjá af málafjöldanum hjá Mannréttindadómstól Evrópu en Rússar eiga fjórðung allra dæmdra mála mannréttinda- dómstólsins á síðasta ári. Úkraína er heldur ekki langt undan á topplistanum. Þetta ber ekki einungis vott um stöðu mann- réttindamála í þessum ríkjum heldur einnig hugarfar borgaranna sem þar búa og viðhorf þeirra til alþjóðastofnana. Til að áfellisdómur verði kveðinn upp í Strassborg þarf ekki bara mannréttindabrot ríkis heldur einnig borgara sem hefur trú á alþjóðastofnunum og þrek til að standa með sjálfum sér þegar ríkið brýtur á honum. Af þessum ástæðum er fagnaðarefni hve fljótt alþjóðastofnanir hafa brugðist við vegna þeirra mannréttindabrota sem framin eru í Úkraínu. Ekki aðeins öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, sem fundar reyndar stöðugt undir neitunarvaldi Rússa, heldur einnig saksóknari hjá Stríðsglæpadómstólnum í Haag sem hefur framferði Rússa til skoðunar og forseti Mann- réttindadómstóls Evrópu sem brást við neyðar- kalli Úkraínustjórnar innan sólarhrings og hefur sent rússneskum stjórnvöldum fyrirmæli um að láta strax af mannréttindabrotum gegn almennum borgurum. Eflaust eru margir þeirrar skoðunar að ekki sé nóg að gert og að Róbert Spano megi sín lítils gagnvart óútreiknanlegum Vladímír Pútín. En þótt það sé ekki á hvers manns færi að afstýra stríði við vitfirring, hlýtur að skipta máli fyrir fólk, sem lýst hefur jafn einlægum vilja til að eiga samband við þjóðir sem byggja á lýðræði og virðingu fyrir mannréttindum, að finna hve víðtæk samstaða ríkir um hagsmuni þess og mannréttindi. n Til Úkraínu SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.