Fréttablaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 18
Fólkið á eyjunni
kom saman á næst-
um hverju kvöldi til að
slaka á og losa sig við
áhyggjur dagsins.
Pálína Sigurlaug Jónsdóttir
hóf að taka inn túrmerik-
og fjallagrasablönduna frá
ICEHERBS á síðasta ári.
Hún segir áhrifin hafa verið
gífurlega jákvæð og hyggst
taka hana inn um ókomna
framtíð.
Pálína er 73 ára ellilífeyrisþegi og
starfaði sem sjúkraliði. „Ég hætti
að vinna fyrir tíu árum vegna slit-
og vefjagigtar. Ég hef verið að prufa
ýmis efni sem hafa dugað misvel
en ég er með virkilegt ofnæmi fyrir
rækjuskel svo ég get ekki tekið inn
hvað sem er. Það var svo systir mín
sem benti mér á vöruna í október
síðastliðnum.“
Ákvað að slá til
Pálína segir þetta hafa verið sín
fyrstu kynni af túrmerik. „Eftir að
systir mín benti mér á þetta fór ég
að lesa mér til um túrmerik og sá
að það var bólgueyðandi. Ég ákvað
því að slá til.“
ICEHERBS býður upp á tvær
gerðir túmerikblandna. Önnur
er sterkari og inniheldur svartan
pipar sem eykur upptöku túmeriks
margfalt en hin er mildari og
inniheldur túmerik ásamt fjalla-
grösum og er það blandan sem
Pálína tekur inn. „Ég tek blönduna
sem er með fjallagrösum þar sem
ég er með ofnæmi fyrir svörtum
pipar. Þetta eru tvö hylki sem ég
tek inn á morgnana.“
Pálína segir ávinninginn af
blöndunni hafa verið gríðarlegan
og fjölskylda hennar nýtur ekki
síður góðs af. „Ég er með slit- og
vefjagigt í höndum og fingrum og
þetta virkar andskoti vel á mig. Ég
prjóna mikið eða reyni það og eftir
að ég fór að taka þetta inn þá hef ég
sjaldan prjónað jafn mikið. Ég er
búin að vera að prjóna á fullorðin
barnabörn og maka þeirra og það
eru allir ákaflega ánægðir með það
sem þeir hafa fengið.“
Tengdadóttirin himinlifandi
Pálína lofar vöruna og greinir
frá því að blandan hafi enn
fremur haft jákvæð áhrif á fjöl-
skyldumeðlimi sína. „Ég mæli
alveg hiklaust með þessari vöru.
Tengdadóttir mín og sonur eru
líka farin að taka þetta inn en hún
er líka vefjagigtarsjúklingur sem
labbar mjög mikið eða um 10-15
kílómetra á dag. Hún tekur inn
sterkari blönduna sem er með
svörtum pipar, ásamt með rauð-
rófuhylkjunum og magnesíum frá
ICEHERBS og þetta heldur henni
gjörsamlega gangandi.“
Árangursríkar blöndur
Túmerik hefur verið notað í þús-
undir ára til þess að vinna gegn
ýmsum bólgum og sjúkdómum en
virka efnið, kúrkúmín, hefur sterk
bólgueyðandi og andoxandi áhrif.
Meðal kvilla sem túmerik hefur
reynst vel gegn má nefna gulu,
uppþembu og vindgang ásamt því
að það getur lækkað blóðfitu og
blóðsykur.
Þá hafa bólgueyðandi eigin-
leikar túmeriks gefið sérstak-
lega góða raun gegn gigtarsjúk-
dómum og liðverkjum auk þess
sem það örvar blóðflæði og hefur
góð áhrif á húðvandamál og sár.
Í sterku blöndunni er svartur
pipar sem margfaldar upptöku
túrmeriks en einnig er í boði
mildari blanda fyrir þá sem ekki
þola pipar. Báðar blöndurnar inni-
halda fjallagrös en virkni þeirrar
lækningarjurtar hefur gefið henni
viðurnefnið ginseng Íslands. Í
fjallagrösum er að finna svokall-
aðar betaglúkantrefjar sem eru
taldar aðstoða við þyngdartap,
draga úr bjúg, bæta meltingu og
styrkja þarmana, sér í lagi ristilinn.
Þau hafa meðal annars reynst
árangursrík gegn slímmyndun og
óæskilegum bakteríum.
Fjallagrösin gera ICEHERBS-
blönduna að ofurblöndu en þau
hafa öldum saman verið notuð
sem náttúruleg og viðurkennd
lækningajurt á Íslandi. Þau eru rík
að steinefnum og eru talin auka
skilvirkni í upptöku næringarefna
sem gera bæði innihaldsefnin
sterkari saman.
Íslensk og kröftug bætiefni
ICEHERBS er íslenskt fyrirtæki
sem leggur mikla áherslu á að
framleiða hrein og náttúruleg
bætiefni. Lögð er gríðarleg áhersla
á að vörur ICEHERBS nýtist
viðskiptavinum vel, að virknin
skili sér í réttum blöndum og að
eiginleikar efnanna viðhaldi sér að
fullu. Gríðarleg áhersla er lögð á að
vörurnar innihaldi engin óþarfa
fylliefni og eru vörurnar fram-
leiddar hér á landi. n
ICEHERBS fæst í öllum betri mat-
vöruverslunum, apótekum og
heilsuvöruverslunum. Sjá nánar á
iceherbs.is.
Hef sjaldan prjónað jafn mikið
Pálína er alsæl
með túrmerik-
blönduna frá
ICEHERBS sem
hún segir hafa
reynst vel gegn
slit- og vefjagigt
í höndum og
fingrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
AUÐUNN
Félagsleg tengsl eru flestu
fólki mikilvæg. Það ætti
því ekki að koma á óvart að
sterk félagsleg tengsl bæta
andlega heilsu. Einnig hefur
verið sýnt fram á tengsl milli
félagslegrar virkni og þess að
ná hárri elli.
sandragudrun@frettabladid.is
Flest vitum við að félagsleg tengsl
eru mikilvæg fyrir andlega heilsu
okkar. Að njóta náinna félagslegra
tengsla við vini, maka eða fjöl-
skyldu á yngri árum getur aukið
lífshamingju okkar á efri árum,
glatt okkur og bætt lífsánægju
okkar til lengri tíma litið, sam-
kvæmt niðurstöðum rannsókna.
Þau sem eiga nána vini á unglings-
árum eru ekki bara ánægðir
unglingar. Þau eru einnig ólíklegri
til að glíma við þunglyndi og kvíða
síðar á ævinni.
Rannsókn sem birt var árið
2016 og var leidd af doktor Denis
Gerstorf við Humboldt-háskóla í
Berlín leiddi í ljós að eldri borgarar
sem lifa félagslega virku lífi og hafa
félagsleg markmið í forgangi njóta
meiri ánægju á efri árum en aðrir.
Í rannsókninni voru gögn frá
2.900 einstaklingum skoðuð sem
náðu yfir síðustu 2-4 árin í lífi
þeirra. Þátttakendur voru spurðir
hversu ánægðir þeir væru með líf
sitt almennt, hversu mikið þeir
tækju þátt í félagslegum athöfnum,
hversu mikilvægar félagslegar
athafnir væru þeim og hversu
mikils þeir mætu hjónaband sitt
eða samband sitt við börnin sín.
Greining á svörunum leiddi í ljós
að fylgni var á milli þess að hafa
félagsleg markmið og ánægju í
lífinu á efri árum, en það var ekki
fylgni á milli ánægju og fjölskyldu-
markmiða. Þessi tengsl milli
félagslegra markmiða voru óháð
aldri við dauða, kyni, menntun og
heilsu.
Rannsakendur veltu því fyrir
sér hvort ástæðan fyrir þessum
niðurstöðum væri sú að þegar fólk
er félagslega virkt á síðustu árum
lífs síns þá krefst það um leið meiri
líkamlegrar og andlegrar virkni.
En að ástæðan fyrir að tengsl við
fjölskyldu hafi ekki sömu áhrif sé
mögulega sú að slík tengsl eru yfir-
leitt mun flóknari.
Félagstengsl lykillinn í lífinu
Vísindamenn sem hafa rannsakað
svæði í heiminum þar sem fólk nær
mjög hárri elli en viðheldur sam-
tímis góðri heilsu og vitsmunum,
hafa orðið þess varir að þættir sem
tengjast mataræði og lífsstíl eru
mjög ólíkir milli svæða, en fólk á
öllum svæðum á það sameiginlegt
að vera mjög félagslega virkt.
Doktor Archelle Georgiou rann-
sakaði fólk sem náð hefur mjög
hárri elli á einangruðu eyjunni
Ikaria á Grikklandi. Hún tók eftir
því að fólkið var stöðugt umkringt
fjölskyldu, nágrönnum og öðrum
meðlimum samfélags síns og að
það studdi hvert annað. Fólkið
á eyjunni kom saman á næstum
hverju kvöldi til að slaka á og losa
sig við áhyggjur dagsins.
Að sama skapi sáu rithöfundar
sem tóku viðtöl við íbúa þorpsins
Ogimi í Japan, sem náð höfðu 110
ára aldri, að það að vera félagslega
tengdur var lykillinn í lífi þessa
fólks.
Að vera félagslega virk getur þó
ekki eitt og sér tryggt að við náum
hærri elli. Það ætti f lestum að vera
ljóst. Við getum heldur ekki verið
félagslega virk öllum stundum. Það
getur líka verið gott að njóta eigin
félagsskapar og fólk hefur mis-
mikla þörf fyrir einveru.
Hins vegar getur samvera við
fólk, hvort sem það eru nánir vinir
okkar eða nýir kunningjar, hjálpað
okkur að komast aðeins frá eigin
hugsunum og öðlast víðari sýn á
heiminn. Það að vera hamingju-
söm og læra að njóta lífsins er eitt-
hvað sem flest fólk sækist eftir og
því er um að gera að taka upp tólið,
hringja í gamlan vin og styrkja
félagsleg tengsl. n
Góður félagsskapur lengir lífið
Rannsóknir hafa sýnt jákvæða fylgni á milli félagslegrar virkni og þess að ná háum aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
4 kynningarblað A L LT 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGUR