Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.03.2022, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 02.03.2022, Qupperneq 26
Gísli Örn leiðir áhorf­ endur listilega í gegn­ um sorgarferli ein­ staklings sem heyr hetju lega baráttu til að ná stjórn á lífi sínu. Á þessum hádegistón­ leikum Fríkirkjunnar verður því efnisskráin helguð tónlistinni af plötunni Hagi. LEIKHÚS Ég hleyp eftir Line Mørkeby Borgarleikhúsið Leikstjóri: Harpa Arnardóttir Leikari: Gísli Örn Garðarsson Þýðandi: Auður Ava Ólafsdóttir Leikmynd: Börkur Jónsson Búningar: Filippía Elísdóttir Leikgervi: Elín S. Gísladóttir Lýsing: Pálmi Jónsson Tónlist og hljóðhönnun: Ísidór Jökull Bjarnason Sigríður Jónsdóttir Ekkert foreldri á að lifa barnið sitt. Sorgin sem fylgir slíkum harm- leik er lamandi, andlega og líkam- lega. Hvernig er hægt að sigrast á sorginni? Er það yfirleitt hægt? Einleikurinn Ég hleyp eftir Line Mørkeby byggir á bloggi danska blaðamannsins Anders Legarth Schmidt sem hann byrjaði að skrifa fyrir Politiken árið 2015 eftir dauð- daga dóttur sinnar. Daginn sem hún lést úr hvítblæði byrjaði hann að hlaupa og hann hætti ekki, gat ekki hætt. Sorgin og hlaupaáráttan bar hann í burtu frá hversdagslegum harmi, nær látinni dóttur sinni og í átt að hyldýpinu. Line Mørkeby er margverð- launað danskt leikskáld og textinn ber þess merki að hér er hæfileika- kona á ferð. Tæknilega er leikritið mjög vel samið. Hún leikur sér með innri og ytri tíma, endurtekningar og abstrakt lýsingar á hugarástandi af mikilli næmni. Hættan við slíkar sögur er að væmnin taki völdin en henni tekst að mestu að bægja slíkri tilfinningasemi frá. Staðhættir eru lítillega staðfærðir frá Kaupmanna- höfn til Reykjavíkur en þýðandinn er rithöfundurinn Auður Ava Ólafs- dóttir sem leysir verkefnið vel úr hendi. Eftirminnileg endurkoma Eftir rúmlega tíu ára fjarveru frá fjölunum er Gísli Örn Garðars- son kominn aftur á leiksviðið. Eftirminnilegri endurkoma leik- ara hefur ekki sést í langan tíma. Hlutverkið er ekki eingöngu erfitt tilfinningalega heldur gífurlega krefjandi líkamlega þar sem hann hleypur bróðurpartinn af sýning- unni á meðan hann flytur textann. Persóna verksins reynir bókstaflega að særa út harminn með aflinu einu saman. Gísli Örn leiðir áhorfendur listilega í gegnum sorgarferli ein- staklings sem heyr hetjulega bar- áttu til að ná stjórn á lífi sínu. Merki- legt er að sjá hvernig Gísli Örn vefur andlegu ástandi persónunnar inn í hlaupastílinn. Stundum er líkami hans linur eins og strengjabrúða, öðrum stundum grjótharður eins og hann sé að brynja sig fyrir frekari áföllum og að lokum flæðandi eins og vatnið. Ekkert foreldri á að lifa barnið sitt. Miðpunktur leiksviðsins er upp- hækkaður pallur sem á situr hlaupa- bretti. Börkur Jónsson hannar leik- myndina og þó að hann sé kannski ekki þekktur fyrir naumhyggju þá hentar sá stíll hæfileikum hans mjög vel. Tjaldið sem umlykur hlauparann á einum tímapunkti er áhrifamikið en þrengir aðeins of mikið að Gísla Erni þegar það svífur yfir honum. Leikstjóri Ég hleyp er Harpa Arnardóttir sem nálgast textann með hjartnæmum hætti og textann að leiðarljósi, að mestu. Stundum fer hún þó út af sporinu því um leið og stigið er frá textanum og af pallinum þá missir sýningin slag- kraftinn. Orka og aðdráttaraf l sögunnar kjarn ast á hlaupabrett- inu, uppi á pallinum, en dvínar um leið og sá hjúpur er rofinn. Við sömu erfiðleika er að stríða í bún- ingahönnun Filippíu Elísdóttur en búningaskiptin eru óþarflega mörg og ekki nauðsynleg. Best hefði verið að strípa allt niður, alveg eins og ónefndi faðirinn flær af sér skinnið, bæði af ást og sorg. Ekkert stendur eftir nema eftirmynd af manneskju, svarthol sem ómögulegt er að fylla. Uppgötvun kvöldsins Á flestum listrænum póstum sýn- ingarinnar er listafólk hokið af reynslu en uppgötvun kvöldsins er nýliðinn Ísidór Jökull Bjarnason sem semur tónlistina og hannar hljóðheiminn. Nálgun Ísidórs Jökuls ber merki um þroska og list- rænan skilning enda er handverk hans eftirminnilegt án þess að taka athygli frá sýningunni, í stað þess styður tónlistin við og bætir upp- lifunina. Hér er á ferð listamaður til að fylgjast með. Ekkert foreldri á að lifa barnið sitt. Sorgin hverfur aldrei en mögu- lega er hægt að koma henni í nýjan farveg. Til þess að það sé hægt er nauðsynlegt að líta inn á við og finna frið með sjálfum sér. Lífið heldur áfram en verður aldrei eins og áður. Gísli Örn ber Ég hleyp á baki sér og sýnir að hann hefur engu gleymt. Vonandi þurfum við ekki að bíða aftur í tíu ár til að sjá hann á leiksviðinu því þar á þessi leikari svo sannarlega heima. ■ NIÐURSTAÐA: Gísli Örn hleypur eftirminnilega á harðaspretti inn í nístandi sorgina. Ég hleyp er sýning sem enginn má missa af. Á harðaspretti inn í eilífðina Eftirminnilegri endurkoma leikara hefur ekki sést í langan tíma, segir gagnrýnandi. MYND/ÍRIS DÖGG EINARSDÓTTIR kolbrunb@frettabladid.is Í vinnustofu Hönnunarsafnsins í Garðabæ eru þrír ungir vöru- hönnuðir að vinna með leir. Þær gera bolla með setningum á, sem þær hafa heyrt í heita pottinum. Þær sitja við og vinna og fara þess á milli í sund til að hlusta á gesti spjalla saman en sjálfar eru þær til í spjall við gesti um leið og þær eru að móta leirinn og mála. Þann 5. mars ætla þær að vera með innflutnings- boð í anddyri Hönnunarsafnsins en hópurinn samanstendur af vöruhönnuðunum Agnesi Freyju Björnsdóttur, Silvíu Sif Ólafs- dóttur og Sylvíu Dröfn Jónsdóttur. Vinnu stofu dvöl þeirra lýkur svo með fuglaböðum sem þær eru nú byrjaðar að hanna og verða sýnd á HönnunarMars 2022. Á laugardaginn verður viðbót á sýningunni Sund sem er í Hönn- unarsafninu en það er sýndarveru- leikaverk eftir Hrund Atladóttur sem verður hægt að upplifa í litlu sýningarrými út frá búð safnsins. Þar munu gestir geta sett á sig gler- augu og verið þar með ofan í sund- laug þar sem ýmislegt mun bera fyrir augu. ■ Hönnuðir í vinnustofu Skemmtilegir bollar með setningum. kolbrunb@frettabladid.is Fimmtudaginn 3. mars, á morgun, mun kvartett Þorgríms Jónssonar flytja lög af plötunni Hagi á hádeg- istónleikum í Fríkirkjunni við Tjörnina. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund. Bassaleikarinn Þorgrímur Toggi Jónsson er djassáhugamönnum að góðu kunnur og hefur leikið með rjóma íslenskra tónlistarmanna um árabil. Árið 2016 sendi hann frá sér sína fyrstu sólóplötu sem fékk afar góðar viðtökur, ber þar hæst að hún var valin plata ársins og Þorgrímur tónhöfundur ársins í f lokki djass og blús á Íslensku tónlistarverðlaun- unum fyrir árið 2016. Í ágúst síðast- liðnum kom svo út hans önnur sóló- plata sem ber nafnið Hagi. Sú plata hefur verið að fá glimrandi góðar viðtökur víðs vegar um heim sem og hérlendis. Á þessum hádegistónleikum Frí- kirkjunnar verður því efnisskráin helguð tónlistinni af plötunni Hagi. Auk Þorgríms á raf- og kontra- bassa eru með honum gítarleik- arinn Rögnvaldur Borgþórsson, píanó- og allskonarleikarinn Tómas Jónsson og Magnús Trygvason Elias- sen á trommur. ■ Toggi í Fríkirkjunni Þorgrímur Jónsson tónlistarmaður. 22 Menning 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 2. mars 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.