Fréttablaðið - 12.03.2022, Síða 8
safnast rúmlega 200 þúsund manns
sem bíða eftir því að komast yfir
landamærin til Póllands og að á
hverjum degi bætist við um 50
þúsund manns. „Fólkið býr við erf-
iðar aðstæður í skólum, kirkjum og
hvaða rýmum sem finnast þar sem
fólk getur skýlt sér,“ segir hún.
Kristjana segir þörfina þríþætta:
„Það er þörfin fyrir að aðstoða fólk
sem er í Úkraínu og kemst ekki í
burt. Í öðru lagi þarf að aðstoða fólk
sem er komið að landamærunum,
Úkraínumegin, og er að safnast
saman við borgir eins og Lvív og
þarf aðstoð við að klára ferðina. Í
þriðja lagi þarf að aðstoða fólk sem
er komið yfir landamærin og er
orðið f lóttafólk í Evrópu. Það fólk
hefur aðrar þarfir, en oftast þarf það
fjárhagslega aðstoð.
Þessi samhugur og samhygð sem
við finnum hjá öllum er alveg stór-
kostleg. Það er svo mikilvægt í svona
krísu að finna hvernig mennskan
kemur upp hjá fólki, þessi sam-
hugur við að aðstoða náungann og
hvernig hann birtist á margan hátt.
Það er svo gott að vita að við getum
öll gert eitthvað og að Íslendingar
geti stutt og aðstoðað þær stofnanir
sem standa að aðgerðum hérna, en
líka taka svo vel á móti þeim flótta-
mönnum sem hafa komið til Íslands
og munu koma til Íslands og sýna
þeim samhygð. Það er verkefni sem
við eigum öll að taka þátt í,“ segir
Kristjana að lokum. n
Það er svo mikilvægt í
svona miðri krísu að
finna hvernig mennsk-
an kemur upp hjá
fólki, þessi samhugur
við að aðstoða náung-
ann og hvernig hann
birtist á margan hátt.
Kristjana
Aðalgeirsdóttir,
hjá hjálpa-
samtökunum
Shelterbox
Þó að við séum komin
með kannski 70 pró-
senta hjarðónæmi þá
eru samt 30 prósent
ekki með ónæmi, það
geta verið um 90
þúsund manns.
Már Krist-
jánsson, for-
stöðumaður
lyflækninga og
bráðaþjónustu á
Landspítala
SÓL Á TENERIFE & KANARÍ
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
TENERIFE
14. - 21. MARS - 7 DAGAR
SPRING HOTEL BITACORA 4*
VERÐ FRÁ 146.500 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 188.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA
KANARÍ
29. MARS - 11. APRÍL - 13 DAGAR
ABORA BUENAVENTURA 4*
VERÐ FRÁ 157.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 196.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA
HÁLFT
FÆÐI
HÁLFT
FÆÐI
VINSÆLAR FERÐIR - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Kristjana Aðalgeirsdóttir lýsir
upplifun sinni frá miðstöð
móttöku flóttafólks í Pól-
landi. Hún er hrærð að sjá
hvernig pólska þjóðin tekur á
móti nágrönnum sínum.
sbt@frettabladid.is
ÚKRAÍNA „Það er alveg stórkost-
legt að sjá hvað pólska þjóðin
hefur tekið vel á móti flóttafólkinu
og hvernig mismunandi hjálpar-
samtök starfa saman,“ segir Krist-
jana Aðalgeirsdóttir, sem stödd er
í pólsku borginni Kraká á vegum
hjálparsamtakanna Shelterbox, sem
sérhæfa sig meðal annars í húsnæð-
isaðstoð fyrir fólk sem hefur þurft
að flýja heimili sín.
Borgin Kraká í Póllandi hefur
orðið að eins konar miðstöð hjálp-
arsamtaka sem standa í ströngu við
að aðstoða flóttafólk frá Úkraínu.
„Það eru fánar úti um allt, bláir og
gulir litir, sem stuðningur við úkra-
ínsku þjóðina. Á veitingastöðum
eru gul blóm, bundin með bláum
borðum, á öllum borðum. Þennan
stuðning við úkraínsku þjóðina sér
maður mjög sterkt,“ segir Kristjana.
Átakanlegar sögur
Mikil samhygð hefur myndast, bæði
hjá Pólverjum og Úkraínumönnum
sem komist hafa í öruggt skjól. Krist-
jana tekur dæmi um prest sem stóð á
lestarstöðinni í Úkraínsku borginni
Lvív, sem er um 50 kílómetra frá
landamærunum við Pólland.
„Þar stóð prestur í fullum skrúða
og gaf túlípana til allra sem komu
með lestinni. Hjá prestinum stóð
kona sem hafði ferðast í blautum
fötum með 11 ára son sinn í fimm
daga, án þess að hafa sofið, loksins
komin yfir landamærin. Nú hélt
hún á túlípana, þakklát fyrir að hafa
komist að landamærunum.“
Kristjana segir konuna hafa þurft
að skilja 22 ára son sinn eftir, en
vegna stríðsins er öllum karlmönn-
um á aldrinum 16 til 60 ára meinað
að yfirgefa landið. „Hún var með
hugann hjá honum, hvað tæki við
hjá honum þarna megin við landa-
mærin,“ segir Kristjana.
Kristjana þekkir mörg dæmi af
börnum á f lótta. „Við vissum af
ungum strák sem var við landa-
mæri Úkraínu og Moldóvu, faðir
hans hafði komið honum til landa-
mæranna og skrifað símanúmer
á hönd stráksins. Strákurinn var
síðan sendur labbandi með ókunn-
ugu fólki yfir landamærin og vissi
af ættingjum sem ættu þetta síma-
númer á hönd stráksins. Þegar
strákurinn komst yfir landamærin
fékk hann aðstoð við að hringja
í ættingjana og þeir komu síðan
og sóttu strákinn,“ segir Kristjana
og heldur áfram: „Svona er fólk að
reyna á allan mögulegan hátt að
komast í frið, að komast í öryggi.“
Íbúar opna heimili sín
Pólverjar sem búa nærri landamær-
unum hafa verið duglegir að bjóða
fram aðstoð sína. „Fólk stendur við
landamærin og býður fólk á f lótta
velkomið, það fær heita súpu, hlý
föt og SIM-kort í símana sína. Fólk
er líka að opna heimilin sín og að
bjóða fólki gistingu í herbergjum
og húsum,“ segir Kristjana. Það
hafa ekki „enn þá“, eins og Kristjana
orðar það, verið settar upp flótta-
mannabúðir í Póllandi en stjórn-
völd vinna að því að allir sem komi
geti fengið eins konar kennitölu svo
fólk hafi aðgang að heilbrigðisþjón-
ustu og börn geti sótt skóla.
Kristjana segir að í Lvív hafi
Mikilvægt að finna mennskuna í þessari krísu
Mæðgin sem
gengið höfðu
blaut og hrakin í
fimm daga voru
boðin velkomin
til Póllands með
túlípana.
MYND/ALEX ORME
Fólkið fær heita súpu og þurr föt á landamærunum. MYND/ALEX ORME, SHELTERBOX
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Í gær lágu 88 einstaklingar
á Landspítala með Covid-19. Tveir
voru á gjörgæslu og annar þeirra í
öndunarvél. Meðalaldur innlagðra
var í gær 72 ár.
Már Kristjánsson, forstöðumaður
lyf lækninga og bráðaþjónustu á
Landspítala, sem situr einnig í far-
sóttanefnd, segir veirusýkingu eins
og Covid-19 auðveldlega geta raskað
jafnvægi hjá eldra fólki.
„Þetta getur haft mikil áhrif á
eldra fólk. Líka þann hóp sem er
með undirliggjandi vandamál en
er í jafnvægi, fær svo pestina og hún
raskar jafnvæginu,“ segir Már. „Fólk
getur þá dottið og við erum að fá
hingað fólk með höfuðkúpubrot og
önnur útlimabrot.“
Már segir að í þeim aldurshópi
sem búi á hjúkrunarheimilum sé
um einn til tveir einstaklingar að
deyja með Covid á hverjum degi um
þessar mundir. „En svo eru það þau
sem eru kannski bara í góðu jafn-
vægi heima hjá sér með sín krónísku
vandamál en fá svo svona sjúkdóm
og við það missa margir færni, jafn-
vel ótímabært og lenda þá á öldr-
unarheimilum,“ segir Már.
Að sögn Más er nýgengi smita hátt
hjá yngra fólki. „Þau eiga ömmur og
afa sem þau hitta og knúsa og núna
eru það ömmurnar og afarnir sem
eru að smitast,“ segir hann.
„Þetta eru hópar sem hafa haldið
sér til hlés og þó að við séum komin
með kannski 70 prósenta hjarð-
ónæmi þá eru samt 30 prósent ekki
með ónæmi, það geta verið um 90
þúsund manns,“ bendir hann á.
„Í þeim hópi eru líklega óbólu-
settir, fólk með undirliggjandi sjúk-
dóma og eldra fólk,“ undirstrikar
Már. n
Segir Covid auðveldlega geta raskað
jafnvægi eldra fólks og leitt til slysa
8 Fréttir 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ