Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 102

Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 102
Leiksýn- ingin er kannski í lengra lagi en hún flæðir áfram með krafti sögunnar. LEIKHÚS Framúrskarandi vinkona Elena Ferrante Þjóðleikhúsið Leikgerð: April de Angelis Leikstjórn: Yaël Farber Leikarar: Unnur Ösp Stefánsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Harpa Arnardóttir, Sigurður Sigurjónsson, Steinunn Arinbjarnardóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Hákon Jóhannesson, Elva Ósk Ólafsdóttir, Pálmi Gestsson, Atli Rafn Sigurðarson, Sveinn Ólafur Gunnarsson, Stefán Hallur Stefánsson, Bjarni Snæbjörnsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Hilmir Jensson, Snorri Engilbertsson, Birgitta Birgisdóttir, Valgerður Guðnadóttir, Oddur Júlíusson, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson, Sigurbjartur Sturla Atlason, Eldey Erla Hauksdóttir, Hulda Gissurardóttir Flóvenz, Eva Jáuregui og Ronja Pétursdóttir Þýðing: Salka Guðmundsdóttir Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir Dramatúrg: Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tónlist: Valgeir Sigurðsson Hljóðmynd: Valgeir Sigurðsson, Aron Þór Arnarsson og Valgerður Guðnadóttir Sviðshreyfingar: Emily Terndrup og Conor Doyle Sigríður Jónsdóttir Loksins! Loksins komst Framúr­ skarandi vinkona á svið. Fram­ leiðsluferlið í Þjóðleikhúsinu hefur verið sannkölluð þrautaganga síð­ astliðin tvö ár. Endalausar frestanir sökum yfirstandandi faraldurs og samhliða varð að yfirstíga skipu­ lagsvanda innanhúss þar sem stóra sviðið er sneisafullt af leiksýningum. Framúrskarandi vinkona er líka engin smásmíði þar sem um þrjátíu leikarar taka þátt, enn þá fleiri bak við tjöldin og byggir á fjórum skáld­ sögum Elenu Ferrante. Napólísögurnar komu út á árun­ um 2012 til 2014 en bókaserían segir frá lífi og vináttu Lenú Greco og Lilu Cerullo sem alast upp við sára­ fátækt á eftirstríðsárunum í Napólí á Ítalíu. Líf þeirra fléttast saman við örlög fólksins í hverfinu og flókið vinasamband þeirra er storma­ samt. Leikgerðina skrifar April de Angelis og Salka Guðmundsdóttir þýðir. Gallinn við leikgerðina er að rót ofbeldisins í samfélaginu, sem er þungamiðja verksins ásamt vináttu Lenú og Lilu, er ekki skoðuð nægilega vel. Áhorfendur skynja að harkan á sér einhver upptök í fátæktinni og samskiptum kynslóðanna en málið er ekki svo einfalt. Í ítölsku samfélagi spilar kaþólska trúin stórt hlutverk í ofríki karlanna og hefur dagleg áhrif á hlutskipti kvenna. Sá vinkill er sömuleiðis sjaldan skoðaður. Koma suður­afríska leikstjórans Yaël Farber í Þjóðleikhúsið er list­ rænn fengur á heimsmælikvarða og vonandi merki um það sem koma skal. Ný nálgun og áherslur erlendra leikstjóra eru nauðsynleg til að næra listafólk og áhorfendur landsins. Veröld Lenú og Lilu er á hverfanda hveli og Yaël sér til þess að sýningin er stöðugt á hreyfingu, sem virkar eins og varaaf l framvindunnar. Hún beinir sviðljósinu að reynslu­ heimi kvenna sem eru fastar í feðra­ veldinu, en tilvist þeirra einkennist af ringulreið og harðri lífsbaráttu. Eitt af meginstefum sýningarinnar og áhrifarík viðbót er eins konar grískur kór persónugallerísins sem vofir yfir atburðarásinni, skuggar fortíðarinnar eru þrúgandi og sam­ félagið dómhart. Þar skipta líka sviðshreyfingar Emily Terndrup og Conor Doyle miklu máli. En hættan við leikgerðir er að of mikill tími fari í að sviðsetja framvindu á kostnað listrænnar túlkunar og Framúr­ skarandi vinkona fellur í þá gryfju. Úr verður leiksýning sem tekur of mikið mið af söguþræðinum en ekki nægilega af sviðsrænum túlkunar­ möguleikum. Konurnar taka stjórn Lykillinn að sýningunni er f lókið samband Lenú og Lilu. Þær spegla hvor aðra en stundum er óbærilegt að horfast í augu við sjálfa sig, mis­ tök og gjörðir. Að heyra manneskj­ una sem stendur manni næst segja sannleikann stingur stundum. Lenú er leikin af þremur leikkonum á mis­ munandi aldri og Lila af tveimur, en fjórar ungar leikkonur skipta með sér hlutverkunum þegar þær eru börn. Guðrún S. Gísladóttir leiðir áhorfendur í gegnum sýninguna á meðan Unnur Ösp Stefáns­ dóttir leikur hana frá uppvaxtar­ árum fram á miðjan aldur. Guðrún stendur á sviðinu allan tímann og er sláandi hjarta sýningarinnar. Þrátt fyrir að vera svolítið föst í framsögu­ hlutverkinu þá sýnir hún sínar bestu hliðar þegar hún er þögli áhorfand­ inn, þar sem Lenú horfir álengdar á fortíðina reynslunni ríkari. Sömuleiðis mæðir töluvert á Unni Ösp en Lenú berst við að slíta sig frá uppruna sínum með því að ganga menntaveginn. Unnur Ösp skín skærast í atriðunum þar sem Lenú sleppir fram af sér beislinu og gefur sig tilfinningunum á vald. Vigdís Hrefna Pálsdóttir glímir við ansi snúið hlutverk. Lila er holdgervingur þess sem karlmenn verksins virðast þrá og hata samtímis. Hún er frökk, eldklár og gölluð. Vigdís Hrefna túlkar Lilu af miklu afli, nánast eins og hún rífi hana upp úr iðrum jarðar, og er hér upp á sitt besta. Gallinn er kannski sá að hvorugar persónurnar taka miklum breytingum í gegnum verkið en samleikur þeirra tveggja er sterkur. Reynslumiklar leikkonur kunna að búa eitthvað til úr engu, enda leiklistarsagan undirlögð af hlut­ verkum fyrir karlmenn. Harpa Arn­ ardóttir og Arndís Hrönn Egilsdóttir, mæðulegu en gallhörðu mæðurnar sem séð hafa tímana tvenna og fáa góða, sýna hvernig framkvæma skal slíkan gjörning. Steinunn Ólína Þor­ steinsdóttir er konan með þöglu völdin og segir allt sem segja þarf með örfáum orðum. Elva Ósk Ólafs­ dóttir kemur sömuleiðis sterk inn í hlutverki Lídíu, sem lætur reiði sína yfir hegðun eiginmannsins bitna á öðrum konum. Yngri leikkonurnar ná ekki sömu tökum á hlutverkum sínum en á heildina litið tekst hópn­ um ágætlega upp. Fábrotin hlutskipti karla Karlmennirnir eru ekki jafn heppnir með hlutverk, en f lestar karlkyns persónurnar eru fremur flatar. Þeir eru upp til hópa stjórnsamir ofbeld­ isseggir sem liggur hátt rómurinn. Snorri Engilbertsson stýrir orkunni í áhugaverðan farveg en margir aðrir týnast í hávaðanum. Pálmi Gestsson í hlutverki Donato, meðal­ jónsins sem telur sig vera Guðs gjöf til kvenna, einungis vegna þessa að hann hefur gefið út ljóðabók, sýnir að of beldið birtist ekki einungis í formi krepptra hnefa og hótana heldur líka andlega. Nino, sonur Donato, á við sama vandamál að stríða. Atli Rafn Sigurðarson fangar vel þessi afslöppuðu forréttindi sem brjótast út í andúð gagnvart þeim sem hann telur vera fyrir neðan sína virðingu, aðallega konum. Bjarni Snæbjörnsson sýnir fínan leik í hlutverki Alfonso en þarf að gæta sín að festast ekki í keimlíkum hlutverkum. Sveinn Ólafur Gunnarsson kemur með nýja orku inn í sýninguna eftir fyrsta hlé, aðra tegund af manni sem á yfirborðinu virðist vera mýkri en þeir sem Lenú ólst upp með en er innst inni þó sami durturinn. Eini maðurinn sem virðist hafa einhvern manndóm í sér er Enzo sem Hjalti Rúnar Jónsson leikur af hógværð, forvitnilegt verður að fylgjast með honum. Listrænt misræmi Í sýningu á borð við Framúrskar­ andi vinkonu, sem ferðast á milli íbúða og borga, í tíma og rúmi, þá tekur Ilmur Stefánsdóttir þá skyn­ samlegu ákvörðun að para niður leikmyndina. Í stað þess að smíða heiminn er eins og atriðin endur­ varpist úr hugarfylgsnum hinnar eldri Lenú, hvikul minningabrot frá löngu liðnum tíma. Lýsing Björns Bergsteins Guðmundssonar umvef­ ur sviðið dulúð og skuggum, enda er ljósahönnunin ljómandi í orðsins fyllstu merkingu. Búningahönnun Filippíu I. Elísdóttur spannar mörg söguleg tímabil og henni tekst vel til, þó vantar tilfinnanlega stærra litróf. Tónlistina semur Valgeir Sigurðsson en hann hannar einnig hljóðmynd­ ina ásamt Aroni Þór Arnarsyni og Valgerði Guðnadóttur. Tónlistin er áferðarlítil og hverfur í sýningunni sem er algjör synd. Hljóðmyndin er aftur á móti sterkari. Reynsluheimur kvenna í karla­ veldi er frjór akur fyrir spennandi skáldskap. Framúrskarandi vin­ kona setur konur í forgrunninn og leikkonur blómstra í slíkum jarð­ vegi. Þar verður helst að nefna Guð­ rúnu, Unni Ösp og Vigdísi Hrefnu en fjölmargar aðrar, sérstaklega þær reynslumeiri, standa sig með prýði. Karlarnir líða fyrir f latneskjulega persónusköpun og reyndar leik­ gerðin öll. Leiksýningin er kannski í lengra lagi en hún f læðir áfram með krafti sögunnar, þess væri þó óskandi að myndræni mátturinn væri sambærilegur þannig að fleiri eftirminnilegar senur eins og loka­ atriðið myndu spretta fram. n NIÐURSTAÐA: Framúrskarandi vinkona nær aldrei epískum hæðum. Á hverfanda hveli Lykilinn að sýningunni er flókið samband vinkvennanna Lenú og Lilu sem leiknar eru af Unni Ösp Stefáns- dóttur og Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur á fullorðinsárum. MYND/ ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sýningin er gífurlega umfangsmikil enda stíga hátt í þrjátíu leikarar á svið. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 50 Menning 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.