Fréttablaðið - 12.03.2022, Síða 102
Leiksýn-
ingin er
kannski í
lengra lagi
en hún
flæðir
áfram með
krafti
sögunnar.
LEIKHÚS
Framúrskarandi
vinkona
Elena Ferrante
Þjóðleikhúsið
Leikgerð: April de Angelis
Leikstjórn: Yaël Farber
Leikarar: Unnur Ösp Stefánsdóttir,
Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Guðrún
S. Gísladóttir, Harpa Arnardóttir,
Sigurður Sigurjónsson, Steinunn
Arinbjarnardóttir, Arndís
Hrönn Egilsdóttir, Þröstur Leó
Gunnarsson, Hákon Jóhannesson,
Elva Ósk Ólafsdóttir, Pálmi
Gestsson, Atli Rafn Sigurðarson,
Sveinn Ólafur Gunnarsson,
Stefán Hallur Stefánsson,
Bjarni Snæbjörnsson, Lára
Jóhanna Jónsdóttir, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir, Hilmir
Jensson, Snorri Engilbertsson,
Birgitta Birgisdóttir, Valgerður
Guðnadóttir, Oddur Júlíusson,
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Hjalti
Rúnar Jónsson, Sigurbjartur Sturla
Atlason, Eldey Erla Hauksdóttir,
Hulda Gissurardóttir Flóvenz, Eva
Jáuregui og Ronja Pétursdóttir
Þýðing: Salka Guðmundsdóttir
Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir
Dramatúrg: Hrafnhildur Hagalín
Guðmundsdóttir
Búningar: Filippía I. Elísdóttir
Lýsing: Björn Bergsteinn
Guðmundsson
Tónlist: Valgeir Sigurðsson
Hljóðmynd: Valgeir Sigurðsson,
Aron Þór Arnarsson og Valgerður
Guðnadóttir
Sviðshreyfingar: Emily Terndrup
og Conor Doyle
Sigríður Jónsdóttir
Loksins! Loksins komst Framúr
skarandi vinkona á svið. Fram
leiðsluferlið í Þjóðleikhúsinu hefur
verið sannkölluð þrautaganga síð
astliðin tvö ár. Endalausar frestanir
sökum yfirstandandi faraldurs og
samhliða varð að yfirstíga skipu
lagsvanda innanhúss þar sem stóra
sviðið er sneisafullt af leiksýningum.
Framúrskarandi vinkona er líka
engin smásmíði þar sem um þrjátíu
leikarar taka þátt, enn þá fleiri bak
við tjöldin og byggir á fjórum skáld
sögum Elenu Ferrante.
Napólísögurnar komu út á árun
um 2012 til 2014 en bókaserían segir
frá lífi og vináttu Lenú Greco og
Lilu Cerullo sem alast upp við sára
fátækt á eftirstríðsárunum í Napólí
á Ítalíu. Líf þeirra fléttast saman við
örlög fólksins í hverfinu og flókið
vinasamband þeirra er storma
samt. Leikgerðina skrifar April de
Angelis og Salka Guðmundsdóttir
þýðir. Gallinn við leikgerðina er að
rót ofbeldisins í samfélaginu, sem er
þungamiðja verksins ásamt vináttu
Lenú og Lilu, er ekki skoðuð nægilega
vel. Áhorfendur skynja að harkan á
sér einhver upptök í fátæktinni og
samskiptum kynslóðanna en málið
er ekki svo einfalt. Í ítölsku samfélagi
spilar kaþólska trúin stórt hlutverk
í ofríki karlanna og hefur dagleg
áhrif á hlutskipti kvenna. Sá vinkill
er sömuleiðis sjaldan skoðaður.
Koma suðurafríska leikstjórans
Yaël Farber í Þjóðleikhúsið er list
rænn fengur á heimsmælikvarða og
vonandi merki um það sem koma
skal. Ný nálgun og áherslur erlendra
leikstjóra eru nauðsynleg til að næra
listafólk og áhorfendur landsins.
Veröld Lenú og Lilu er á hverfanda
hveli og Yaël sér til þess að sýningin
er stöðugt á hreyfingu, sem virkar
eins og varaaf l framvindunnar.
Hún beinir sviðljósinu að reynslu
heimi kvenna sem eru fastar í feðra
veldinu, en tilvist þeirra einkennist
af ringulreið og harðri lífsbaráttu.
Eitt af meginstefum sýningarinnar
og áhrifarík viðbót er eins konar
grískur kór persónugallerísins sem
vofir yfir atburðarásinni, skuggar
fortíðarinnar eru þrúgandi og sam
félagið dómhart. Þar skipta líka
sviðshreyfingar Emily Terndrup og
Conor Doyle miklu máli. En hættan
við leikgerðir er að of mikill tími fari
í að sviðsetja framvindu á kostnað
listrænnar túlkunar og Framúr
skarandi vinkona fellur í þá gryfju.
Úr verður leiksýning sem tekur of
mikið mið af söguþræðinum en ekki
nægilega af sviðsrænum túlkunar
möguleikum.
Konurnar taka stjórn
Lykillinn að sýningunni er f lókið
samband Lenú og Lilu. Þær spegla
hvor aðra en stundum er óbærilegt
að horfast í augu við sjálfa sig, mis
tök og gjörðir. Að heyra manneskj
una sem stendur manni næst segja
sannleikann stingur stundum. Lenú
er leikin af þremur leikkonum á mis
munandi aldri og Lila af tveimur, en
fjórar ungar leikkonur skipta með
sér hlutverkunum þegar þær eru
börn. Guðrún S. Gísladóttir leiðir
áhorfendur í gegnum sýninguna
á meðan Unnur Ösp Stefáns
dóttir leikur hana frá uppvaxtar
árum fram á miðjan aldur. Guðrún
stendur á sviðinu allan tímann og er
sláandi hjarta sýningarinnar. Þrátt
fyrir að vera svolítið föst í framsögu
hlutverkinu þá sýnir hún sínar bestu
hliðar þegar hún er þögli áhorfand
inn, þar sem Lenú horfir álengdar á
fortíðina reynslunni ríkari.
Sömuleiðis mæðir töluvert á Unni
Ösp en Lenú berst við að slíta sig frá
uppruna sínum með því að ganga
menntaveginn. Unnur Ösp skín
skærast í atriðunum þar sem Lenú
sleppir fram af sér beislinu og gefur
sig tilfinningunum á vald. Vigdís
Hrefna Pálsdóttir glímir við ansi
snúið hlutverk. Lila er holdgervingur
þess sem karlmenn verksins virðast
þrá og hata samtímis. Hún er frökk,
eldklár og gölluð. Vigdís Hrefna
túlkar Lilu af miklu afli, nánast eins
og hún rífi hana upp úr iðrum jarðar,
og er hér upp á sitt besta. Gallinn er
kannski sá að hvorugar persónurnar
taka miklum breytingum í gegnum
verkið en samleikur þeirra tveggja
er sterkur.
Reynslumiklar leikkonur kunna
að búa eitthvað til úr engu, enda
leiklistarsagan undirlögð af hlut
verkum fyrir karlmenn. Harpa Arn
ardóttir og Arndís Hrönn Egilsdóttir,
mæðulegu en gallhörðu mæðurnar
sem séð hafa tímana tvenna og fáa
góða, sýna hvernig framkvæma skal
slíkan gjörning. Steinunn Ólína Þor
steinsdóttir er konan með þöglu
völdin og segir allt sem segja þarf
með örfáum orðum. Elva Ósk Ólafs
dóttir kemur sömuleiðis sterk inn í
hlutverki Lídíu, sem lætur reiði sína
yfir hegðun eiginmannsins bitna á
öðrum konum. Yngri leikkonurnar
ná ekki sömu tökum á hlutverkum
sínum en á heildina litið tekst hópn
um ágætlega upp.
Fábrotin hlutskipti karla
Karlmennirnir eru ekki jafn heppnir
með hlutverk, en f lestar karlkyns
persónurnar eru fremur flatar. Þeir
eru upp til hópa stjórnsamir ofbeld
isseggir sem liggur hátt rómurinn.
Snorri Engilbertsson stýrir orkunni
í áhugaverðan farveg en margir
aðrir týnast í hávaðanum. Pálmi
Gestsson í hlutverki Donato, meðal
jónsins sem telur sig vera Guðs gjöf
til kvenna, einungis vegna þessa að
hann hefur gefið út ljóðabók, sýnir
að of beldið birtist ekki einungis
í formi krepptra hnefa og hótana
heldur líka andlega. Nino, sonur
Donato, á við sama vandamál að
stríða. Atli Rafn Sigurðarson fangar
vel þessi afslöppuðu forréttindi sem
brjótast út í andúð gagnvart þeim
sem hann telur vera fyrir neðan
sína virðingu, aðallega konum.
Bjarni Snæbjörnsson sýnir fínan
leik í hlutverki Alfonso en þarf að
gæta sín að festast ekki í keimlíkum
hlutverkum.
Sveinn Ólafur Gunnarsson kemur
með nýja orku inn í sýninguna eftir
fyrsta hlé, aðra tegund af manni sem
á yfirborðinu virðist vera mýkri en
þeir sem Lenú ólst upp með en er
innst inni þó sami durturinn. Eini
maðurinn sem virðist hafa einhvern
manndóm í sér er Enzo sem Hjalti
Rúnar Jónsson leikur af hógværð,
forvitnilegt verður að fylgjast með
honum.
Listrænt misræmi
Í sýningu á borð við Framúrskar
andi vinkonu, sem ferðast á milli
íbúða og borga, í tíma og rúmi, þá
tekur Ilmur Stefánsdóttir þá skyn
samlegu ákvörðun að para niður
leikmyndina. Í stað þess að smíða
heiminn er eins og atriðin endur
varpist úr hugarfylgsnum hinnar
eldri Lenú, hvikul minningabrot frá
löngu liðnum tíma. Lýsing Björns
Bergsteins Guðmundssonar umvef
ur sviðið dulúð og skuggum, enda er
ljósahönnunin ljómandi í orðsins
fyllstu merkingu. Búningahönnun
Filippíu I. Elísdóttur spannar mörg
söguleg tímabil og henni tekst vel til,
þó vantar tilfinnanlega stærra litróf.
Tónlistina semur Valgeir Sigurðsson
en hann hannar einnig hljóðmynd
ina ásamt Aroni Þór Arnarsyni og
Valgerði Guðnadóttur. Tónlistin er
áferðarlítil og hverfur í sýningunni
sem er algjör synd. Hljóðmyndin er
aftur á móti sterkari.
Reynsluheimur kvenna í karla
veldi er frjór akur fyrir spennandi
skáldskap. Framúrskarandi vin
kona setur konur í forgrunninn og
leikkonur blómstra í slíkum jarð
vegi. Þar verður helst að nefna Guð
rúnu, Unni Ösp og Vigdísi Hrefnu
en fjölmargar aðrar, sérstaklega þær
reynslumeiri, standa sig með prýði.
Karlarnir líða fyrir f latneskjulega
persónusköpun og reyndar leik
gerðin öll. Leiksýningin er kannski
í lengra lagi en hún f læðir áfram
með krafti sögunnar, þess væri þó
óskandi að myndræni mátturinn
væri sambærilegur þannig að fleiri
eftirminnilegar senur eins og loka
atriðið myndu spretta fram. n
NIÐURSTAÐA: Framúrskarandi
vinkona nær aldrei epískum
hæðum.
Á hverfanda hveli
Lykilinn að
sýningunni er
flókið samband
vinkvennanna
Lenú og Lilu
sem leiknar
eru af Unni
Ösp Stefáns-
dóttur og
Vigdísi Hrefnu
Pálsdóttur á
fullorðinsárum.
MYND/
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sýningin er gífurlega umfangsmikil enda stíga hátt í þrjátíu leikarar á svið. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
50 Menning 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR