Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 28
Heimilin hafa verið of dýr í of mörg ár. Þegar börn komast á full- orðinsaldur og vilja flytja að heiman þá geta þau það ekki. Það þurfa ekki allir að vera með gesta- herbergi, það er hægt að deila því, og það þurfa ekki allir að vera með stofu fyrir 30 eða 40 gesti, það er hægt að vera með sam- komuher- bergi í fjölbýlis- húsum. Line Barfod er umhverfis- og tækniborgarstjóri Kaup- mannahafnar og er einn af sjö borgarstjórum borgarinnar. Hún berst nú fyrir því að borgin sé löguð að fólkinu sem býr þar og að íbúar fái fleiri tækifæri og meira vald til að stjórna því hvernig borg þeir búa í. Line á að baki langan feril í stjórnmálum og bauð sig fyrst fram árið 1996 fyrir Enhedslisten og tók svo sæti í fyrsta sinn á danska þinginu, Folketinget, árið 2001 og sat þar allt til ársins 2011. Hún er lögfræðingur og á fjögur börn. Hún segir að það sé ánægjulegt að sjá öll þau stóru skref sem hafa verið tekin í Danmörku hvað varðar umhverfis- mál. Sem dæmi sé hringrásarhag- kerfið stórt og lifandi og fólk mjög vant því að fara um á öðrum farar- skjótum en bíl, en telur þó að það séu víða tækifæri. Flokkurinn hennar er grænn og þau leggja áherslu á að halda umræðu opinni um loftslagsvána og hafa barist fyrir auknum orkuskipt- um í Danmörku en eins og staðan er núna kemur orkan til að hita húsin að miklu leyti frá brennslu á rusli. Barfod vill nýta sólar- og vindorku í auknum mæli, auk þess sem þau eru farin að gera tilraunir með jarðhita. Flokkurinn tók við embætti umhverfis- og tækniborgarstjóra fyrst fyrir átta árum en núna eru þau í fyrsta skipti með tvo borgarstjóra. „Þetta er gamalt kerfi og það hefur breyst hversu margir borgar- stjórar eru en í 100 ár hefur verið einn aðalborgarstjóri og svo sex til viðbótar. Þetta er sérstakt kerfi því það eru 55 sæti í borgarstjórn og ef þú færð sjö sæti þá áttu rétt á því að fá embætti eins borgarstjórans. Við fengum fimmtán sæti í síðustu kosningum og erum því með tvo núna.“ Vann stórsigur Á verksviði Line í borgarstjórn eru skipulagsmál, umferð, loftslag, bygg- ingar, þróun svæða, rekstur vega, almenningsgarða, bílastæða, kirkju- garða og hreinsun borgarinnar og samskipti við birgja á áðurnefndum sviðum. „Við unnum stórsigur í Kaup- mannahöfn í kosningunum síðasta haust og bættum við okkur 50 pró- sentum miðað við síðustu kosningar og fengum alls fjórðung atkvæða.“ Hún segir að stóra mál kosning- anna hafi verið hvernig borg fólk vilji búa í. „Þetta hefur ekki verið svona stórt mál áður. Ég man ekki eftir því á mínum ferli. En það sem fólk vildi ræða var hvernig borg það býr í og hver eigi að ráða því hvernig borg það er.“ Hún segir að það sama gildi í Kaupmannahöfn og öðrum stór- borgum í Evrópu, að það hafi verið erfitt fyrir fólk með meðaltekjur að komast inn á fasteignamarkað. „Heimilin hafa verið of dýr í of mörg ár. Þegar börn komast á full- orðinsaldur og vilja flytja að heiman þá geta þau það ekki því þau finna ekki íbúð sem þau hafa efni á í borginni,“ segir Line sem vill breyta þessu. Ekki allir þurfa gestaherbergi Þörfin í Kaupmannahöfn er um 120 þúsund heimili á næstu 30 árum. Spurð hvort hún telji að það muni nægja segir hún að það fari að miklu leyti eftir því hvernig heimili fólk vill eiga og hvernig pláss þarf fyrir það. „Margir sem ég þekki vilja eiga minni heimili en meira af deildu svæði. Það er ódýrara. Það þurfa ekki allir að vera með gestaherbergi, það er hægt að deila því, og það þurfa ekki allir að vera með stofu fyrir 30 eða 40 gesti, það er hægt að vera með samkomuherbergi í fjöl- býlishúsum.“ Hún segir að víða í Danmörku Fólk vill stjórna því hvernig borg það býr í Line segir að það sé mikill húsnæðisskortur og að þörfinni eigi að svara með því að, meðal annars, byggja ofan á það sem þegar er byggt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Line segir að í Kaupmanna- höfn sé fólk vant því að ferðast um á hjóli. Hún leggur áherslu á að fjölbreyttar samgönguleiðir standi til boða og vill fjölga deilibílum og deilihjólum. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY sé þetta þekkt lausn og að hún vilji innleiða hana í auknum mæli í Kaupmannahöfn. Annað sem hún nefnir sem mögulega lausn er að byggja ofan á það sem þegar er byggt og að nýta þök betur. „Ef þú þarf að fá nýtt þak þá er til- valið að byggja nýja íbúð í leiðinni ofan á. Okkar mat er að við getum fengið tíu þúsund nýjar íbúðir ef við byggjum ofan á önnur hús,“ segir Line og að næsta verk sé að sann- færa íbúa um að það sé þess virði. Skýjakljúfum mótmælt harðlega Spurð hvernig borg eigi að vera í framtíðinni, segir Barfod að það sé ýmislegt sem þurfi að huga að en nefnir sem dæmi að í Kaupmanna- höfn hafi skýjakljúfum verið harð- lega mótmælt og því hafi engir slíkir verið byggðir síðustu fimm ár. „Þeim var mótmælt því þeir virka ekki í Kaupmannahöfn. Það er ekki góð leið til að hanna borg og svæðið í kringum þá verður mjög vindasamt og því er í raun ekki mjög fínt að búa þar.“ Hún segir að annað stórt mál sem hennar f lokkur hefur barist fyrir sé að fjölga grænum svæðum fyrir almenning og segir mikilvægt að borgarbúar séu sammála um það hvernig eigi að nýta svæðin. Hún segir að í kórónaveirufaraldr- inum hafi þau gert sér grein fyrir því hversu fá slík svæði séu í Kaup- mannahöfn. Þegar fólk allt í einu f lykktist út og mátti aðeins verja tíma saman á slíkum svæðum. „Hingað til hafa það helst verið einkarekin verktakafyrirtæki sem hafa séð um skipulagningu slíkra svæða en fólk vill nú í auknum mæli koma að slíku ákvarðanatökuferli,“ segir Line og að víða hafi verið mót- mælt þar sem á að byggja á grænum svæðum. Þarf valkosti ef fækka á bílum Hvað varðar samgöngur segir hún ekki hægt að bera margt saman hér í Reykjavík við stöðuna í Kaup- mannahöfn. Þar eigi 70 prósent íbúa ekki bíl og fari að mestu um á hjól- um, enda aðstæður til þess kjörnar í borginni. „Þau sem eiga bíl nota hann svo aldrei daglega, kannski á tveggja vikna fresti. Þannig að við erum líka að fjölga deilibílum í borginni svo að fleiri geti losað sig við bílinn,“ segir Line og að ef stjórnmálafólk ætli að segja fólki að hætta að nota bílinn sinn verði það að kynna aðrar raunhæfar lausnir á móti. „Það sem rannsóknir sýna samt sem áður er að fólk hættir ekki að nota bílinn fyrr en það er orðið of dýrt að nota hann og erfitt. En þá þurfa að vera aðrar leiðir fyrir fólk til að komast um.“ Flokkur Barfod einbeitir sér að miklu leyti að því að auka við íbúa- lýðræði en að á sama tíma hafi það verið mikil áskorun, og sé áfram áskorun, að fá fólk til að taka þátt í stjórnmálum sem gerir það ekki vanalega, en að það sé algert lykil- atriði fyrir lýðræðið. „Það er þörf á því að alls konar fólk taki þátt í opinberri umræðu og hafi áhrif. Við ætlum að prófa okkur áfram í þessu með slembivali í umræðuhópa. Þetta er annars konar umræða en við vonumst til þess að þetta geti hjálpað. Við viljum einnig auka við þátttöku barna en hún er mjög takmörkuð í Danmörku.“ Fengu blaðamann til liðs við sig Eins og fram hefur komið vann flokkur hennar stórsigur í kosning- unum í Kaupmannahöfn síðasta haust. Spurð hvað það hafi verið sem virkaði fyrir þau í kosning- unum, segir Line að það hafi auð- vitað verið þeirra stjórnmál, en að annað sem þau gerðu hafi verið að ráða blaðamann í fullt starf í sex mánuði til að sinna kynningarstarfi fyrir þau. „Blaðamaðurinn gat rammað inn pólitíkina okkar og talað við aðra blaðamenn. En svo tvo síðustu mán- uði kosningabaráttunnar fengum við tvo sérfræðinga til viðbótar til liðs við okkur til að sinna samfélags- miðlunum fyrir okkur.“ Line segir að þetta tvennt tali auð- vitað saman. Stjórnmálaf lokkur geti verið flottur á samfélagsmiðl- um en með innantóm stjórnmál og þá missi fólk fljótt áhugann. Þann- ig að hvort tveggja verði að vekja athygli fólks svo að það virki. „Þú getur verið með flotta stefnu en ef enginn heyrir um það þá muntu ekki koma því neitt áleiðis.“ n Lovísa Arnardóttir lovisaa @frettabladid.is 28 Helgin 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.