Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 37
Katrín Hólm Geirsdóttir er íþróttavísindamaður hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad og sænska U19- kvennalandsliðinu í knatt- spyrnu. Hún segir rann- sóknir sýna mikil og góð áhrif kollagens á íþróttafólk og hefur sjálf sannreynt ótvíræð áhrif með kollageni frá Feel Iceland. „Draumurinn var auðvitað að verða atvinnumaður í fótbolta og ég var lengi ung og efnileg, en svo festist ég í því að vera efnileg og ákvað að skoða frekar hvað það er sem gerir mann að afburða knatt- spyrnumanni,“ segir Kristín Hólm Geirsdóttir, íþróttavísindamaður frá Akureyri. „Ég er fædd og uppalin á Akur- eyri og æfði fótbolta með Þór KA þar til síðasta fótboltasumarið mitt að ég spilaði á Ísafirði og fékk í fyrsta sinn laun fyrir, sem var mjög skemmtilegt. Orðin 21 árs lagði ég fótboltaskóna á hilluna, vildi víkka sjóndeildarhringinn og nema ný lönd. Ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á vísindum og velti fyrir mér hvort ég ætti að læra til læknis eða sjúkraþjálfara, en svo fann ég nám í íþróttavísindum við háskóla á Írlandi og fannst það vera full- komið fyrir mig,“ segir Kristín. „Háskólaárin á Írlandi voru frábær og á lokaárinu fór ég í verk- nám til Elísabetar Gunnarsdóttur, knattspyrnuþjálfara hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Kristianstad. Þaðan fór ég í meistaranám til Eng- lands og þar fundu Íslendingurinn ég og Brasilíubúinn Bernardo ástina í örmum hvers annars. Við Bernardo erum með sömu menntun og sömu áhugamál, og sem betur fer finnst honum líka gaman að tjalda. Mér finnst nefni- lega fátt skemmtilegra en að fara í útilegur, fjallgöngur og sofa í tjaldi, en ég hef ekki enn náð að komast heim yfir sumartímann til að fara með honum í íslenska útilegu. Þangað til læt ég mig dreyma um að elta sólina og keyra til móts við fjallablámann með tjald í skott- inu.“ Er í draumastörfunum Eftir að hafa lokið meistaragráðu í íþróttavísindum réði Kristín sig til Kristianstad sem styrktarþjálfari og nú í ársbyrjun var hún einnig ráðin til starfa hjá sænska fótbolta- sambandinu þar sem hún ferðast með U19-landsliðinu og sinnir fleiri verkefnum. „Ég er sannarlega í drauma- störfunum og nýlega flutt til Stokkhólms þar sem ég held að ég stoppi í smástund, því ég hef flutt mikið. Íþróttavísindi eru ný grein og við sem vinnum að þeim erum að finna út úr því hvernig vísindi virka í íþróttum. Það er að skila góðum árangri og ljóst að vísindin eru komin til að vera í sportinu. Við vinnum náið með þjálfurum, eins og ég með knattspyrnuþjálfurum, um hvernig best sé að nýta vísindin í fótboltanum,“ upplýsir Kristín sem fékk mikinn áhuga á manns- líkamanum á sínum fótboltaárum. „Ég varð upptekin af því hvað undirbýr fótboltamann best þegar kemur að frammistöðu hans á vellinum, hvernig líkami hans virkar, mataræði og endurheimt, og hvernig ég gæti miðlað því til annarra sem stefna hátt í fótbolt- anum,“ segir Kristín og árangurinn lætur ekki standa á sér. „Fyrir Kristianstad og sænska fótboltasambandið einbeiti ég mér að því hvað við getum gert betur til að komast nær liðum og löndum sem standa okkur framar í fót- bolta, skoða hvað aðrar þjóðir og knattspyrnufélög gera, og fylgist grannt með því hvað er að gerast í vísindunum, hvað virkar og virkar ekki. Ég bý til kennsluefni til að betrumbæta kvennaliðin og hef gert beinagrind að því sem mér finnst vera góð þjálfun íþróttafólks og eftir að gera ýmsar uppgötvanir sem ég trúi að komi að miklu gagni við þjálfun knattspyrnumanna fyrir komandi keppnistímabili.“ Árangursrík styrktar- og nær- ingarþjálfun Kristínar hefur einnig náð til íslensks íþróttafólks hér heima og stofnaði hún eigið fyrirtæki, KHG Performance utan um það, þar sem hún býður upp á „pre-season“-æfingaprógram og senn bætist við „in-season“- æfingaþjálfun. „Fram undan er spennandi ár og verkefni með sænska U19-lands- liðinu, Kristianstad, sem er að fara í Meistaradeild Evrópu og Glöð að hafa prófað kollagenið frá Feel Iceland Kristín hefur sérstakt yndi af lyftingum og hefur bæði æft kraftlyftingar og ólympískar lyftingar. Það hefur valdið álagi á hnén en verkir hafa horfið eins og dögg fyrir sólu eftir að hún fór að taka inn kollgen frá Feel Iceland. MYND/ IIDA NYYSSÖNEN Kristín Hólm Geirsdóttir segist glöð að hafa prófað kollagenið frá Feel Iceland. Árangurinn sé ótrúlegur og hún mæli því hiklaust með því fyrir allt íþróttafólk. MYND/ IIDA NYYSSÖNEN leikjatímabilið sem fer í gang eftir fáeinar vikur. Sjálf er ég svo dugleg í ræktinni og elska að lyfta lóðum. Ég kem fram við sjálfa mig eins og íþróttamann og þannig hugsa ég um mig.“ Frábær áhrif kollagens Þegar Kristín byrjaði með „pre- season“-styrktarþjálfun á netinu ákvað hún að bæta við næringar- þjálfun. „Ég hafði lesið margar rannsókn- ir um árangur prótíns og fæðu- bótarefna á íþróttafólk, en aldrei gefið kollageni gaum. Ég taldi árangur þess henta þeim einum sem vildu betra hár og neglur, en svo fór ég að sjá rannsóknir á íþróttafólki og neyslu þess á kolla- geni og þar sýndu niðurstöður afar jákvæð áhrif kollagens á íþrótta- fólk sem þjáist af verkjum í hnjám og meiðslum á liðböndum. Ég fékk því mikinn áhuga á kollageni og ákvað að prófa það sjálf og sjá hvort ég gæti mælt með því fyrir mitt íþróttafólk,“ segir Kristín, sem nú hefur tekið inn kollagen frá Feel Iceland í rúmt ár. „Feel Iceland kollagenið er hreint, náttúrulegt og án aukefna, og er ég satt að segja orðin háð því að taka það inn. Ég fann fyrir miklum breytingum í mínum líkama og sannreyndi, eins og rannsóknir hafa sýnt, að kollagen hefur góð áhrif á verki og liðbönd. Ég hef verið á kafi í kraftlyftingum og ólympískum lyftingum þannig að mín hné hafa alveg fengið að finna fyrir því, auk þess sem ég er með gamalt aðgerðahné sem brakar í. Með kollageninu er ég verkjalaus og þegar ég tók eftir ótrúlegum árangri þess vildi ég sannarlega mæla með því fyrir aðra,“ segir Kristín, sem komst að raun um íslenska Feel Iceland kollagenið í gegnum liðskonur Kristianstad í Svíþjóð. „Íþróttamenn í Kristianstad hafa tekið kollagenið frá Feel Icel- and lengur en ég og þar heyrði ég upphaflega að þetta væru frábærar vörur. Ég veit að stelpurnar mínar í fjarþjálfuninni og fleira íþrótta- fólk getur ekki lifað án þess að taka inn þetta kollagen. Munurinn er mikill og tekur um þrjá mánuði að finna hvað kollagenið gerir manni gott. Sjálf er ég glöð að hafa prófað kollagenið frá Feel Iceland og hef ekki þörf fyrir að prófa annað.“ Kristín byrjar hvern dag á kolla- geni. „Ég hef þetta einfalt, fylli vatns- glas með köldu vatni og klökum, hræri saman við tveimur skeiðum af kollageni og set út í eina freyði- töflu af C-vítamíni. Úr því verður frískandi og bragðgóður appels- ínudrykkur og kollagenið kemst inn í systemið án mikillar fyrir- hafnar. Það er líka satt að kollagen hefur frábær áhrif á hár og neglur. Ég var áður með flagnandi neglur en nú eu þær sterkar og fallegar, og hárið líka. Ég hef alltaf verið með mjög þunnt hár en nú fæ ég hrós fyrir hárið sem orðið er mun betra eftir að ég fór að taka inn kolla- genið frá Feel Iceland.“ n Feel Iceland vörurnar fást meðal annars á eftirtöldum stöðum: Lyfju, Heilsuhúsinu, Lyfjum og heilsu, Hagkaupi, Fjarðarkaupum, Apótekaranum, Fríhöfninni, Jurta- apótekinu, Krónunni og Nettó. Nánari upplýsingar á feeliceland. com kynningarblað 3LAUGARDAGUR 12. mars 2022 heIlsur ækt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.