Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 37
Katrín Hólm Geirsdóttir er
íþróttavísindamaður hjá
sænska úrvalsdeildarliðinu
Kristianstad og sænska U19-
kvennalandsliðinu í knatt-
spyrnu. Hún segir rann-
sóknir sýna mikil og góð
áhrif kollagens á íþróttafólk
og hefur sjálf sannreynt
ótvíræð áhrif með kollageni
frá Feel Iceland.
„Draumurinn var auðvitað að
verða atvinnumaður í fótbolta og
ég var lengi ung og efnileg, en svo
festist ég í því að vera efnileg og
ákvað að skoða frekar hvað það er
sem gerir mann að afburða knatt-
spyrnumanni,“ segir Kristín Hólm
Geirsdóttir, íþróttavísindamaður
frá Akureyri.
„Ég er fædd og uppalin á Akur-
eyri og æfði fótbolta með Þór KA
þar til síðasta fótboltasumarið
mitt að ég spilaði á Ísafirði og fékk í
fyrsta sinn laun fyrir, sem var mjög
skemmtilegt. Orðin 21 árs lagði ég
fótboltaskóna á hilluna, vildi víkka
sjóndeildarhringinn og nema ný
lönd. Ég hafði alltaf haft mikinn
áhuga á vísindum og velti fyrir mér
hvort ég ætti að læra til læknis eða
sjúkraþjálfara, en svo fann ég nám
í íþróttavísindum við háskóla á
Írlandi og fannst það vera full-
komið fyrir mig,“ segir Kristín.
„Háskólaárin á Írlandi voru
frábær og á lokaárinu fór ég í verk-
nám til Elísabetar Gunnarsdóttur,
knattspyrnuþjálfara hjá sænska
úrvalsdeildarliðinu Kristianstad.
Þaðan fór ég í meistaranám til Eng-
lands og þar fundu Íslendingurinn
ég og Brasilíubúinn Bernardo
ástina í örmum hvers annars.
Við Bernardo erum með sömu
menntun og sömu áhugamál, og
sem betur fer finnst honum líka
gaman að tjalda. Mér finnst nefni-
lega fátt skemmtilegra en að fara í
útilegur, fjallgöngur og sofa í tjaldi,
en ég hef ekki enn náð að komast
heim yfir sumartímann til að fara
með honum í íslenska útilegu.
Þangað til læt ég mig dreyma um
að elta sólina og keyra til móts við
fjallablámann með tjald í skott-
inu.“
Er í draumastörfunum
Eftir að hafa lokið meistaragráðu í
íþróttavísindum réði Kristín sig til
Kristianstad sem styrktarþjálfari
og nú í ársbyrjun var hún einnig
ráðin til starfa hjá sænska fótbolta-
sambandinu þar sem hún ferðast
með U19-landsliðinu og sinnir
fleiri verkefnum.
„Ég er sannarlega í drauma-
störfunum og nýlega flutt til
Stokkhólms þar sem ég held að ég
stoppi í smástund, því ég hef flutt
mikið. Íþróttavísindi eru ný grein
og við sem vinnum að þeim erum
að finna út úr því hvernig vísindi
virka í íþróttum. Það er að skila
góðum árangri og ljóst að vísindin
eru komin til að vera í sportinu. Við
vinnum náið með þjálfurum, eins
og ég með knattspyrnuþjálfurum,
um hvernig best sé að nýta vísindin
í fótboltanum,“ upplýsir Kristín
sem fékk mikinn áhuga á manns-
líkamanum á sínum fótboltaárum.
„Ég varð upptekin af því hvað
undirbýr fótboltamann best þegar
kemur að frammistöðu hans á
vellinum, hvernig líkami hans
virkar, mataræði og endurheimt,
og hvernig ég gæti miðlað því til
annarra sem stefna hátt í fótbolt-
anum,“ segir Kristín og árangurinn
lætur ekki standa á sér.
„Fyrir Kristianstad og sænska
fótboltasambandið einbeiti ég mér
að því hvað við getum gert betur til
að komast nær liðum og löndum
sem standa okkur framar í fót-
bolta, skoða hvað aðrar þjóðir og
knattspyrnufélög gera, og fylgist
grannt með því hvað er að gerast í
vísindunum, hvað virkar og virkar
ekki. Ég bý til kennsluefni til að
betrumbæta kvennaliðin og hef
gert beinagrind að því sem mér
finnst vera góð þjálfun íþróttafólks
og eftir að gera ýmsar uppgötvanir
sem ég trúi að komi að miklu gagni
við þjálfun knattspyrnumanna
fyrir komandi keppnistímabili.“
Árangursrík styrktar- og nær-
ingarþjálfun Kristínar hefur
einnig náð til íslensks íþróttafólks
hér heima og stofnaði hún eigið
fyrirtæki, KHG Performance utan
um það, þar sem hún býður upp
á „pre-season“-æfingaprógram
og senn bætist við „in-season“-
æfingaþjálfun.
„Fram undan er spennandi ár og
verkefni með sænska U19-lands-
liðinu, Kristianstad, sem er að
fara í Meistaradeild Evrópu og
Glöð að hafa prófað kollagenið frá Feel Iceland
Kristín hefur
sérstakt yndi
af lyftingum og
hefur bæði æft
kraftlyftingar
og ólympískar
lyftingar. Það
hefur valdið
álagi á hnén
en verkir hafa
horfið eins og
dögg fyrir sólu
eftir að hún
fór að taka inn
kollgen frá Feel
Iceland.
MYND/ IIDA
NYYSSÖNEN
Kristín Hólm
Geirsdóttir
segist glöð að
hafa prófað
kollagenið frá
Feel Iceland.
Árangurinn sé
ótrúlegur og
hún mæli því
hiklaust með
því fyrir allt
íþróttafólk.
MYND/ IIDA
NYYSSÖNEN
leikjatímabilið sem fer í gang eftir
fáeinar vikur. Sjálf er ég svo dugleg
í ræktinni og elska að lyfta lóðum.
Ég kem fram við sjálfa mig eins og
íþróttamann og þannig hugsa ég
um mig.“
Frábær áhrif kollagens
Þegar Kristín byrjaði með „pre-
season“-styrktarþjálfun á netinu
ákvað hún að bæta við næringar-
þjálfun.
„Ég hafði lesið margar rannsókn-
ir um árangur prótíns og fæðu-
bótarefna á íþróttafólk, en aldrei
gefið kollageni gaum. Ég taldi
árangur þess henta þeim einum
sem vildu betra hár og neglur,
en svo fór ég að sjá rannsóknir á
íþróttafólki og neyslu þess á kolla-
geni og þar sýndu niðurstöður afar
jákvæð áhrif kollagens á íþrótta-
fólk sem þjáist af verkjum í hnjám
og meiðslum á liðböndum. Ég
fékk því mikinn áhuga á kollageni
og ákvað að prófa það sjálf og sjá
hvort ég gæti mælt með því fyrir
mitt íþróttafólk,“ segir Kristín, sem
nú hefur tekið inn kollagen frá Feel
Iceland í rúmt ár.
„Feel Iceland kollagenið er
hreint, náttúrulegt og án aukefna,
og er ég satt að segja orðin háð
því að taka það inn. Ég fann fyrir
miklum breytingum í mínum
líkama og sannreyndi, eins og
rannsóknir hafa sýnt, að kollagen
hefur góð áhrif á verki og liðbönd.
Ég hef verið á kafi í kraftlyftingum
og ólympískum lyftingum þannig
að mín hné hafa alveg fengið að
finna fyrir því, auk þess sem ég
er með gamalt aðgerðahné sem
brakar í. Með kollageninu er ég
verkjalaus og þegar ég tók eftir
ótrúlegum árangri þess vildi ég
sannarlega mæla með því fyrir
aðra,“ segir Kristín, sem komst
að raun um íslenska Feel Iceland
kollagenið í gegnum liðskonur
Kristianstad í Svíþjóð.
„Íþróttamenn í Kristianstad
hafa tekið kollagenið frá Feel Icel-
and lengur en ég og þar heyrði ég
upphaflega að þetta væru frábærar
vörur. Ég veit að stelpurnar mínar
í fjarþjálfuninni og fleira íþrótta-
fólk getur ekki lifað án þess að taka
inn þetta kollagen. Munurinn er
mikill og tekur um þrjá mánuði að
finna hvað kollagenið gerir manni
gott. Sjálf er ég glöð að hafa prófað
kollagenið frá Feel Iceland og hef
ekki þörf fyrir að prófa annað.“
Kristín byrjar hvern dag á kolla-
geni.
„Ég hef þetta einfalt, fylli vatns-
glas með köldu vatni og klökum,
hræri saman við tveimur skeiðum
af kollageni og set út í eina freyði-
töflu af C-vítamíni. Úr því verður
frískandi og bragðgóður appels-
ínudrykkur og kollagenið kemst
inn í systemið án mikillar fyrir-
hafnar. Það er líka satt að kollagen
hefur frábær áhrif á hár og neglur.
Ég var áður með flagnandi neglur
en nú eu þær sterkar og fallegar, og
hárið líka. Ég hef alltaf verið með
mjög þunnt hár en nú fæ ég hrós
fyrir hárið sem orðið er mun betra
eftir að ég fór að taka inn kolla-
genið frá Feel Iceland.“ n
Feel Iceland vörurnar fást meðal
annars á eftirtöldum stöðum:
Lyfju, Heilsuhúsinu, Lyfjum og
heilsu, Hagkaupi, Fjarðarkaupum,
Apótekaranum, Fríhöfninni, Jurta-
apótekinu, Krónunni og Nettó.
Nánari upplýsingar á feeliceland.
com
kynningarblað 3LAUGARDAGUR 12. mars 2022 heIlsur ækt