Fréttablaðið - 12.03.2022, Síða 33
Septabene citron og honning
munnsogstöflur og Septa-
bene munnholsúði, eru ný
lyf án lyfseðils til staðbund-
innar stuttrar meðferðar við
einkennum hálsbólgu sem
tengjast vægum sýkingum í
munni og hálsi.
„Sýkingar í öndunarfærum eru
meðal algengustu sýkinga sem
leggjast á menn. Þó að bakteríu-
sýkingar geti valdið hálsbólgu
stafar meirihluti hálsbólgutilfella
af veirusýkingum. Áætlað hefur
verið að 50-90% hálsbólgutilfella
hjá fullorðnum og 70% hjá börnum
stafi af sýkingum af völdum
öndunarfæraveira,“ segir Berglind
Árnadóttir, lyfjafræðingur hjá
Icepharma/LYFIS.
„Bakteríur eiga hlut að máli í
innan við 20% bólgutilfella í koki
eða hálseitlum. Ávísun sýklalyfja
til meðferðar við hálsbólgu er því
umdeild. Í þeim tilfellum sem
veirur eiga í hlut ætti hálsbólgan
að læknast af sjálfu sér á um það
bil viku og oftast er óþarfi að leita
til heilsugæslunnar. Ákjósanleg
meðferð við hálsbólgu er því með-
ferð sem ekki byggir á sýklalyfjum.
Septabene vörurnar frá Krka sótt-
hreinsa munn og háls og draga úr
einkennum bólgu í hálsi.“
Septabene
Septabene inniheldur virku efnin
benzýdamín hýdróklóríð og
cetýlpýridíníum klóríð. Benzý-
damín hýdróklóríð er efni úr
flokki bólgueyðandi gigtarlyfja
(NSAID-lyf) með verkjastillandi,
bólgueyðandi og staðdeyfandi
eiginleika. Cetýlpýridíníum klóríð
er sýkladrepandi efni.
Ertu með hálsbólgu?
Berglind Árnadóttir lyfjafræðingur hjá Icepharma/LYFIS segir að meirihluti hálsbólgutilfella stafi af veirusýkingu.
Septabene
munnsogstöflur
og munnholsúði
eru ætlaðir til
staðbundinnar
meðferðar við
ertingu í hálsi,
munni og tann-
holdi.
andi og sýkladrepandi meðferðar
við ertingu í hálsi, munni og tann-
holdi“ segir Berglind. „Að auki er
munnholsúðinn ætlaður til sömu
verkunar fyrir og eftir tanndrátt.“
„Þegar nota á Septabene við sær-
indum og bólgu í hálsi skal leysa
eina munnsogstöflu hægt upp í
munninum á 3 til 6 klukkustunda
fresti. Ekki er ráðlagt að nota lyfið
strax fyrir eða eftir tannburstun
og ekki skal borða eða drekka í að
minnsta kosti eina klukkustund
eftir inntöku. Þegar munnhols-
úðinn er notaður skal opna
munninn vel, beina úðastútnum
að kokinu og þrýsta 1-2 sinnum á
úðadæluna og passa vel upp á að
halda niðri andanum meðan úðað
er“ segir Berglind.
Lesið vandlega upplýsingar
á umbúðum og í fylgiseðli fyrir
notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari
upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. n
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
KRK220301 - Mars 2022
„Samsetning sýkladrepandi
eiginleika cetýlpýridíníum klóríðs
og bólgueyðandi og verkjastillandi
eiginleikar benzýdamín hýdró-
klóríðs, stuðla að þríþættri virkni
sem hentar til meðferðar við
særindum og bólgu í hálsi,“ upp-
lýsir Berglind.
„Septabene munnsogstöflurnar
og munnholsúðinn eru ætlaðar til
notkunar hjá einstaklingum eldri
en sex ára til staðbundinnar og
stuttrar bólgueyðandi, verkjastill-
Illt í hálsinum?
ÞRÍÞÆTT VIRKNI
gegn særindum og bólgu í hálsi
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 12. mars 2022