Fréttablaðið - 12.03.2022, Qupperneq 40
Dögg Guðmundsdóttir
var um tvítugt þegar hún
byrjaði fyrst að stunda
líkamsrækt að staðaldri. Í
dag er hún nýbúin að maxa
réttstöðulyftu í 120 kg og
segist vera ótrúlega stolt af
sjálfri sér.
„Ég hafði aldrei verið sérstök
íþróttamanneskja, fannst skóla-
leikfimin drepleiðinleg og fann
mig ekki í neinum íþróttum sem
þá voru í boði utan skóla fyrir
unglinga,“ segir Dögg. Árið 2008
byrjaði Dögg í Boot Camp. „Ég var
þó með brjálað keppnisskap sem
ég fékk einhvern veginn aldrei
útrás fyrir, fyrr en ég byrjaði í
Boot Camp. Ég fattaði að það væri
fínt að nýta þetta keppnisskap
við mig sjálfa og betrumbæta
mig. Nokkru síðar fór ég að gjóa
augunum á CrossFit og skráði
mig á grunnnámskeið. Ég fann
einhverja óttablendna spennu
gagnvart öllum þessum tækni-
legu hreyfingum og ákefð. Yfir
mögru námsmannaárin þegar ég
bjó erlendis tók ég pásu og lét mér
nægja hlaup og heimaæfingar.
Frá byrjun 2019 hef ég svo æft hjá
Granda101.“
Æfir oft í viku
Dögg segist reyna að mæta 4-6
sinnum í viku á æfingu. „Auð-
vitað er mikilvægt að hvíla líka
og leyfa líkamanum að jafna sig
og mér finnst betra að mæta oftar
og taka æfingar af mismikilli
ákefð. Stundum tek ég aktífa hvíld
þar sem þyngdirnar eru léttari,
hraðinn er minni og ég er bara að
einbeita mér að því að koma deg-
inum í gang, blóðinu á hreyfingu
og fá smá endorfín í kroppinn.
Ástæðan fyrir því að ég stunda
líkamsrækt er fyrst og fremst
geðheilsan. Það vita allir að það
er hollt og nauðsynlegt að hreyfa
sig, en það er lykilatriði að finna
eitthvað sem á við mann og manni
finnst skemmtilegt. Svo er líka svo
ótrúlega gaman að ögra sér: Að sjá
hversu langt maður kemst og finna
fyrir bætingunum, aðeins að leyfa
keppnisskapinu að njóta sín.“
Fjölbreytt markmið
Dögg setur sér fjölbreytt markmið,
en leggur jafnframt áherslu á að
taka einn dag í einu. „Mér finnst
alltaf gott að hafa markmið, en
þar er líka hluti af mínum mark-
miðum að mæta bara og gera. Það
þurfa ekki allir dagar að vera besti
dagurinn. Ég finn mjög mikinn
dagamun á mér. Það skiptir öllu
máli hvað ég hef verið að borða
daginn áður og hvernig ég svaf
nóttina áður. Svo spilar náttúru-
lega almennt álag inn í. Sumir
dagar eru einfaldlega góðir og
suma daga þarf maður að hlusta
á líkamann og taka því aðeins
rólegar. Maður kemst ansi langt
á hugarfarinu, en það fellur um
sjálft sig ef maður er illa nærður,
illa sofinn og kominn yfir um á
stressinu.“
Heldur skrá yfir afrekin
„Annars er fátt jafn skemmtilegt
og þegar maður nær að maxa
í nýrri þyngstu lyftu eins og í
réttstöðulyftu eða ólympískum
lyftingum. Ég átti til dæmis mjög
skemmtilega viku um daginn þar
sem allt bara paraðist fullkom-
lega saman og ég náði nýju maxi
í réttstöðulyftu og jafnhendingu
(e. clean&jerk). Ég mæli eindregið
með fyrir alla að skrifa niður
árangurinn sinn, sama hver hann
er, því það er svo ótrúlega gaman
að sjá muninn svart á hvítu.
Bætingar eiga sér stað yfir langan
tíma og því er kannski ekki alltaf
ferskt í minni hvar maður byrjaði
eða hvað manni tókst síðast.
Það kom mér til dæmis ótrúlega
skemmtilega á óvart að ég hefði
farið úr því að mæta eftir með-
göngu, þegar ég tók 60 kg max
í réttstöðulyftu, að vera núna
búin að tvöfalda það í 120 kg. Það
gagnast mér ekkert að bera mig
saman við aðra, en það getur verið
ótrúlega skemmtilegt að bera mig
saman við sjálfa mig.
Núna er mitt helsta áherslu-
atriði að huga að liðleika og reyna
að setja mér markmið um að
teygja reglulega, þó svo að það
séu ekki nema fimm mínútur
í hádeginu. Annars langar mig
líka ótrúlega að læra að ganga á
höndum. Ég held að ég muni setja
mér markmið um að læra nýja
hluti ævilangt, því maður er aldrei
of gamall til að prufa nýja hluti.“
Ég mæli
eindregið
með fyrir
alla að
skrifa
niður
árangur-
inn sinn,
sama hver
hann er,
því það er
svo ótrú-
lega gaman
að sjá
muninn
svart á
hvítu.
Jóhanna María
Einarsdóttir
jme
@frettabladid.is
Hollt að leyfa
keppnisskapinu
að njóta sín
Dögg æfir hjá
Granda101.
Hér tekur hún
snörun, sem er
undir ólympísk-
um lyftingum.
Þegar stöng er
lyft með útrétta
arma frá gólfi og
upp fyrir höfuð í
einni samfelldri
hreyfingu með
því að toga í
stöngina og
beygja sig undir
hana á réttu
augnabliki.
Fréttablaðið/
Sigtryggur ari
Næringin er lykillinn
Dögg segist hugsa hæfilega um það
hvað hún borðar eða borðar ekki
fyrir æfingar. „Langoftast mæti
ég klukkan 6 á morgnana. Það er
vanalega sami kjarnahópurinn
sem er tilbúinn að vakna á þessum
tíma sólarhringsins til að hreyfa sig
og það er geggjað að byrja daginn
með þessu frábæra fólki. Þegar ég
mæti 6 vakna ég hálftíma á undan
en borða ekkert fyrir æfingu. En
eftir svona morgunæfingar fæ ég
mér góðan kaffibolla og stóran og
góðan morgunmat, oftast þykka
smoothieskál með All-Bran, smá
dökku súkkulaði og döðlum.
Stundum lauma ég hádegisæfingu
inn og þá reyni ég að borða góðan
og mettandi morgunmat um 8
leytið, eins og góðan hafragraut
með döðlum, hnetum og ávöxtum
og svo fæ ég mér eitthvað gott snarl
upp úr 10, til dæmis All-Bran með
skornum banana og próteinbættri
Alpro sojamjólk. Mér finnst best
að borða ekki tveimur klukku-
tímum fyrir æfingu því það hentar
mér bara illa persónulega. Mér
finnst óþægilegt að vera bumbult
á æfingu. En þetta er eitthvað sem
hver og einn verður að finna hjá sér
sjálfum.“
Mælir með að njóta
Dögg er að læra næringarfræði í
háskólanum og nýtir hún margt
þaðan þegar kemur að hennar
eigin mataræði. „Námið er ótrú-
lega fjölbreytt og skemmtilegt og
sjálf nýti ég mér ýmislegt þaðan,
hvort sem það er meðvitað eða
ekki. Maður verður helst vakandi
fyrir því gríðarlega magni upp-
lýsinga sem er í gangi og lærir að
vera gagnrýnni á þær. Það helsta er
þó klárlega að ég er meðvitaðri um
nýtni líkamans á næringunni og
hef því lagt meira í að borða meira
frekar en minna. Ég held samt að
mín uppáhaldsbreyting og það
sem ég myndi mæla með fyrir alla
að gera, er að gefa mat meiri tíma
í mínu lífi, og vera ekki alltaf að
spá í hvað er fljótlegt, að borða á
ferðinni og svoleiðis. Ég mæli með
því að setjast niður og njóta þess
að borða. Það er líka gríðarlega
mikilvægt að borða fyrir sálina.“
Ekki allar mýtur réttar
Dögg segir ýmsar mýtur ganga um
næringarfræði og heilsurækt sem
hún segir ekki alltaf vera réttar.
„Ætli stærsta mýtan sé ekki sú, ver-
andi grænmetisæta, að þú þurfir
að borða kjöt til þess að verða
sterkur. Prótein er vissulega nauð-
synlegt en ráðlagður dagskammtur
þar er 10-20% af heildarorku. Það
eru til margar aðrar prótínupp-
sprettur fyrir fólk sem getur ekki
eða kýs að borða ekki ákveðin
matvæli, líkt og dýraafurðir.
Annað sem fólk virðist halda
líka er að þú þurfir að vera með
allt upp á tíu. Þú þarft ekki að
umturna mataræðinu og borða
eins og afreksíþróttamaður
þegar þú mætir í ræktina fjórum
sinnum í viku. Það eru reyndar
allar líkur á því að mataræðið hjá
þér sé alls ekki svo slæmt og það
þurfi bara smá fínpússun. Þú þarft
ekki öll heimsins fæðubótarefni
og próteinstangir til að endur-
hugsa matar- og lífsstílsvenjurnar
þínar. Þú þarft bara að byrja á að
finna líkamsrækt sem þér finnst
skemmtileg og byrja rólega. Lítil
skref í einu í mataræðinu geta
komið þér langt. Eitt skref getur til
dæmis verið að gefa sér tíma til að
borða. Næsta gæti verið að bæta
inn meira grænmeti og trefjum.
Og ég mæli eindregið með því
fyrir alla að skoða grænmetis og
ávaxtaneysluna sína og trefjainn-
töku. Niðurstöður úr landskönnun
á mataræði Íslendinga 18-80 ára,
sem var gerð 2019-2021, sýna fram
á að Íslendingar eru almennt að
borða undir ráðlögðum dag-
skammti af grænmeti og ávöxtum.
Ég skora á alla að reyna að finna
skemmtilegar leiðir til að bæta
inn meira grænmeti og ávöxtum í
mataræðið.“ n
6 kynningarblað 12. mars 2022 LAUGARDAGURHeilsur ækt