Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 41
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með: 20. mars 2022. Sótt er um starfið á hagvangur.is
Nánari upplýsingar veitir: Gyða Kristjánsdóttir, gyda@hagvangur.is
Viltu leiða milljarð og 200 manns?
Hreint ehf. leitar að leiðtoga til að stýra stærsta sviði félagsins!
Við leitum að lykilstjórnanda til að stýra þjónustu Hreint og styrkja
enn frekar æðsta stjórnendahóp fyrirtækisins. Við viljum leiðtoga til
að færa fjölþætta þjónustu okkar á enn hærra plan og gera fyrirtækið
leiðandi á því sviði.
Fyrirtækið er í mikilli sókn, spennandi tímar og tækifæri framundan á
rótgrónum en stækkandi markaði. Þjónusta við viðskiptavini er stærsta
verkefni félagsins og mikill metnaður fyrir því að vera í fremstu röð.
Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í þessari vegferð, heyrir beint undir
framkvæmdastjóra og situr í framkvæmdastjórn félagsins.
Helstu verkefni
• Fjárhagslegur rekstur sviðsins
• Samskipti við viðskiptavini og viðhald viðskiptatengsla
• Stjórnun þjónustu og gæðamála
• Þátttaka í umbreytingu og stafrænni vegferð félagsins
• Seta í framkvæmdastjórn
Hæfniskröfur
• Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
• Reynsla af rekstri og fjármálum
• Reynsla af stjórnun þjónustu og mannauðs
• Góð skipulagshæfni og geta til þess að vinna undir álagi
• Góð tölvukunnátta og reynsla af tækniþróun er styrkur
• Jákvæð og hvetjandi hugsun til að stuðla að góðum starfsanda
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint ehf. er ein stærsta ræstingarþjónusta
landsins. Hjá fyrirtækinu starfa um 200 manns frá
25 löndum með fjölbreytta menntun og reynslu.
Fyrirtækið veitir fyrirtækjum og stofnunum faglega
alhliða umhverfisvottaða ræstingaþjónustu og
hefur gert það síðan 1983. Ársvelta félagsins er
um 1,4 milljarðar. Skrifstofa Hreint er staðsett
á höfuðborgarsvæðinu og er með starfsemi á
fimm stöðum um land allt. Félagið mun skipta um
húsnæði á næstu misserum sem lið í að mæta
stækkandi rekstri.
Skannaðu kóðann fyrir
nánari upplýsingar
hagvangur.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára