Fréttablaðið - 12.03.2022, Blaðsíða 44
Umsjónaraðili á siglingasviði
með starfsstöð í Fjallabyggð
Landhelgisgæsla Íslands er borgaraleg
öryggis-, eftirlits- og löggæslustofnun sem
sinnir öryggisgæslu og björgun á hafi úti
og fer með löggæslu á hafinu.
Gildi Landhelgisgæslunnar eru:
Öryggi - Þjónusta - Fagmennska
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu
Íslands má finna á: www.lhg.is.
*Umsækjendur þurfa að standast kröfur
Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og
andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn
uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild
samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og
reglugerð nr. 959/2012.
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is)
í síma 511 1225.
• Umsjón og eftirlit með varðskipum stofnunarinnar
þegar þau eru í höfn á Siglufirði
• Þátttaka í gerð og eftirlit með handbókum og
verklagsreglum siglingasviðs
• Þátttaka í gerð gæðaferla siglingasviðs, t.d. á sviði
þjálfunar og umhverfismála
• Samskipti við áhafnir og aðkoma að ráðningum
• Samskipti við verktaka og birgja vegna varðskipa
• Verkefni er varða rekstur skipa stofnunarinnar
• Vegna eðlis verkefna þegar varðskip eru við bryggju
getur viðkomandi þurft að sinna bakvöktum og vera til
taks utan hefðbundins vinnutíma
Landhelgisgæsla Íslands leitar að sveigjanlegum, skipulögðum og drífandi einstaklingi til að sinna stöðu
umsjónaraðila auk annarra tilfallandi verkefna á siglingasviði. Um er að ræða umsjón með því varðskipi
Landhelgisgæslunnar sem gert er út frá Siglufirði, gerð og umsjón handbóka og þjálfunaráætlana fyrir
siglingasvið og önnur tilfallandi verkefni sem snúa að rekstri varðskipa Landhelgisgæslunnar. Töluverður
hluti starfsins fer fram á Siglufirði.
Helstu verkefni og ábyrgð: Menntunar- og hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Þekking á siglingum og skipum kostur
• Þekking og reynsla í gerð verkferla kostur
• Sveigjanleiki og áhugi á að tileinka sér nýja færni
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar skilyrði
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Góð almenn tölvufærni
• Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 28. mars 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru
hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
Hafðu samband við okkur og sjáðu
hvað við getum gert fyrir þig.
RÁÐNINGAR