Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 48
hagvangur.is
Umsóknum fylgi starfsferilskrá. Umsóknarfrestur er til og með 22. mars nk.
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Þórdís Sif Arnarsdóttir, thordis@hagvangur.is
Fjölbreytt störf deildarstjóra hjá Bauhaus
Bauhaus leitar að jákvæðum og ábyrgðarfullum aðilum í fjölbreytt störf
deildarstjóra. Leitað er að aðilum til að stýra garðlandi, málningar-
og ljósadeild ásamt verkfæradeild.
Deildarstjórar bera meðal annars ábyrgð á mannaráðningum,
pöntunum og fylgjast með nýjungum á markaði. Um fjölbreytt
og spennandi störf er að ræða í öruggu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á öllu því sem viðkemur deildunum
• Umsjón með framtíðarvöruvali og þjónustu
• Virk þátttaka í að veita framúrskarandi ráðgjöf og þjónustu
til viðskiptavina
• Umsjón með starfsmannahaldi, ráðningum, starfslokaviðtölum
og þjálfun starfsmanna
• Tryggja gott upplýsingaflæði til starfsfólks og viðskiptavina
• Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
• Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
• Leiðtogahæfileikar
• Hæfni í samskiptum og rík þjónustulund
• Sjálfstæð vinnubrögð, skipulag og frumkvæði
• Áhugi og metnaður til að ná árangri í starfi
• Jákvætt hugarfar
BAUHAUS er byggingavöruverslanakeðja
með yfir 300 verslanir víðsvegar um Evrópu
og meira en 20.000 starfsmenn. BAUHAUS er
vaxandi fyrirtæki í verslun og þjónustu á Íslandi
og leggur sig fram við að skapa gott umhverfi
fyrir starfsfólkið. Hjá BAUHAUS á Íslandi starfa
yfir 120 manns og er markmið þeirra að bjóða
viðskiptavinum sínum upp á mikið vöruúrval,
faglega þekkingu og góða þjónustu. BAUHAUS
er staðsett í 22.000 m2 vöruhúsi í Reykjavík og
eru yfir 120.000 vörunúmer á vöruskrá. Gildi
BAUHAUS eru mikið úrval, gæði og lágt verð.
Skannaðu kóðann fyrir
nánari upplýsingar
Við leiðum
fólk saman
hagvangur.is