Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 55
Skrifstofustjóri
húsnæðis- og skipulagsmála
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á stjórnun og rekstri skrifstofunnar í samræmi við áætlanir og markmið.
• Umsjón með stefnumótun í málaflokkum, áætlunum, umbótum
og framtíðarþróun.
• Forgangsröðun og framkvæmd verkefna í samræmi við áætlanir
og skipulagning á faglegu starfi.
• Tekur virkan þátt í samhæfingu áætlana á málefnasviði ráðuneytisins.
• Leiðir víðtækt samráð við stofnanir og hagaðila.
Hæfnikröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun skilyrði
eða umfangsmikil stjórnunarreynsla sem nýtist í starfi.
• Árangursrík reynsla af stjórnun.
• Árangursrík reynsla af stefnumótun og áætlanagerð.
• Framsýni, drifkraftur, metnaður og skipulagshæfni.
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
• Afburða hæfni til að tjá sig og eiga samskipti í ræðu og riti á íslensku og ensku.
• Hæfni til að skapa liðsheild ásamt jákvæðu og lausnamiðuðu hugarfari.
Innviðaráðuneytið leitar að öflugum stjórnanda, sem hefur brennandi
áhuga á húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmálum til að stjórna
nýrri skrifstofu húsnæðis- og skipulagsmála og taka þátt í að móta
framtíðarstefnu í þessum málaflokkum.
Nýtt og öflugt innviðaráðuneyti tekst á við nýja tíma. Hlutverk þess er að
líta eftir, upplýsa og leiða samfélagið til aukinna lífsgæða. Í ráðuneytinu
fara saman mikilvægir málaflokkar, s.s. húsnæðismál, mannvirkjamál,
skipulagsmál, sveitarstjórnarmál, byggðamál og samgöngumál. Stefnur
og áætlanir í þessum málaflokkum eru samhæfðar.
Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála er ný skrifstofa sem mun hafa
umsjón með stefnumótun á sviði húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsmála
og framkvæmd laga í samræmi við stefnu stjórnvalda og alþjóðlegar
skuldbindingar.
Innviðaráðuneytið
Skipað verður í embættið til fimm ára frá og með 1. júní 2022. Um er að ræða
fullt starf. Ráðuneytið hvetur alla hæfa einstaklinga til að sækja um, óháð kyni.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 31. mars nk. Umsókn skal
skila rafrænt á irn@irn.is. Nánari upplýsingar um starfið á starfatorg.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri,
ragnhildur.hjaltadottir@irn.is eða 545-8200.