Fréttablaðið - 12.03.2022, Qupperneq 61
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Staða tollvarðar og tollsérfræðings á starfsstöð Skattsins á
Akureyri eru lausar til umsóknar. Um er að ræða fjölbreytt og
lifandi störf sem henta jafnt konum sem körlum.
Í tengslum við ráðningu tollvarðar þarf að þreyta inntökupróf/þrekpróf,
en nánari upplýsingar um það er að finna á vefslóðinni
https://www.skatturinn.is/um-rsk/tollskoli-rikisins/inntokuprof/inntokuprof
Gera má ráð fyrir að umsækjendur verði kallaðir í inntökupróf í lok mars.
Starf tollvarðar felur m.a. í sér:
• Greiningu á áhættu í vöru- og farþegaflæði og úrvinnslu gagna.
• Sérhæfðar leitir, svo sem í bílum, með hundum, gegnumlýsingarbúnaði o.s.frv.
• Almennt tolleftirlit á vettvangi, svo sem í skipum, flugvélum, bílum, gámum,
póstsendingum og með farþegum.
Starf tollsérfræðings felur m.a. í sér:
• Umsjón með tilteknum málaflokkum og verkþáttum, auk almennrar þekkingar á
tollamálum.
• Aðstoð við aðalvarðstjóra og aðra stjórnendur.
• Almenn tollgæslustörf, þ.m.t. að halda uppi lögum, stjórnvaldsreglum og öðrum
fyrirmælum sem gilda á sviði tollamála.
• Þátttöku í samstarfi innan embættis við önnur stjórnvöld.
• Þátttaka í starfshópum um sérstök málefni.
Menntunar– og hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða menntun sem má meta til jafns við það.
• Greiningarhæfileikar.
• Gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Gott andlegt og líkamlegt atgervi.
• Samviskusemi, nákvæmni og traust vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Almenn ökuréttindi.
• Hreint sakavottorð.
Reynsla og þekking úr öðrum störfum nýtist vel í starfi tollvarða og tollsérfræðinga.
Háskólamenntun er einnig eftirsóknarverð þar sem í mörgum verkefnum er áhersla á
greiningarhæfni, talnalæsi, tölfræði, skýrslugerð og tölvufærni.
Umsóknir skulu fylltar út á www.starfatorg.is. Ferilskrá sem inniheldur ítarlegar
upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir þarf
að fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og Tollvarðafélags Íslands. Um starfskjör, réttindi og skyldur
gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ársæll Ársælsson, yfirtollvörður, í síma 442-1000
eða í tölvupósti á arsaell.arsaelsson@skatturinn.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2022 og verður öllum umsóknum svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar.
Tollvörður og
tollsérfræðingur
á Akureyri
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár