Fréttablaðið - 12.03.2022, Qupperneq 68
Ú
tboð
Nánar á:
hfj.is/utbod
Um er að ræða gerð göngu- og hjólastíga
meðfram Strandgötu frá Reykjanesbraut
í suðri að Flensborgartorgi í norðri.
Gerð stoðveggjar við Suðurhvamm,
færslu fráveitulagna við Suðurhvamm og
lagningu rafmagnslagna og
gerð stígalýsingar.
Einnig skal leggja strengi fyrir HS-veitur
og Mílu ásamt breytingum á gönguljósum
yfir Strandgötu og umferðarljósum á
gatnamótum Strandgötu, Suðurbrautar
og Hringbrautar.
Tilboð verða opnuð 30.03.2022 kl. 11:00.
Stígar meðfram Strandgötu
ÚTBOÐ LEIKSKÓLINN URRIÐAHOLTI
gardabaer.is
Garðabær óskar eftir tilboðum í byggingu leikskóla, ásamt fullnaðarfrágangi húss og lóðar, við
Holtsveg 20 í Urriðaholti. Heildarstærð leikskólans verður 1.429 m2 og verða þar starfræktar 6
deildir. Byggingin verður úr KLT einingum og fullkláruð skal hún hljóta umhverfismerki Svansins.
Verkinu skal skilað fullbúnu fyrir 1. ágúst 2023.
Sjá nánar á vef Garðabæjar, gardabaer.is.
kopavogur.is
Auglýsing um nýtt
deiliskipulag í Kópavogi.
Deiliskipulag Vatnsendahæðar í Vatnsendahvarfi. Forkynning.
Bæjarstjórn Kópavogs hefur vísað tillögu að nýju deiliskipulagi Vatnsendahæðar í Vatnsendahvarfi til forkynningar
á vinnslustigi í samræmi við 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Megintilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að móta hverfi með vistvænum áherslum í samræmi við markmið
Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Deiliskipulagssvæðið er um 29 hektarar og liggur að mörkum Reykjavíkur,
Kórahverfis og Hvörfum í Vatnsenda. Gert er ráð fyrir nýju íbúðahverfi með fjölbreyttu formi íbúða, leikskóla og
útivistarsvæðum ásamt verslun- og þjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir 500 íbúðum alls, þar af um 150-200 íbúðum
í sérbýli, (einbýli, raðhús/parhús). Hámarkshæð bygginga er 3 hæðir auk kjallara. Nánar er vísað til kynningargagna.
Gögn vegna forkynningarinnar eru aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir nánari
upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á netfangið skipulag@kopa-
vogur.is.
Fimmtudaginn 7. apríl milli kl. 17 og 18 verður opinn kynningarfundur um tillöguna í sal Hörðuvallaskóla. Þar
verður tillagan kynnt og starfsfólk skipulagsdeildar ásamt skipulagsráðgjöfum svara fyrirspurnum.
Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar
skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopa-
vogur.is eigi síðar en kl. 13:00 föstudaginn 22. apríl 2022.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
Íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv. reglum
um hús Jóns Sigurðssonar, er laus til afnota tímabilið
23. ágúst 2022 til 22. ágúst 2023.
Allar nánari upplýsingar og sérstök eyðublöð
er að finna á heimasíðu Jónshúss: jonshus.dk
(Fræðimannsíbúð).
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist skrifstofu
Alþingis eigi síðar en þriðjudaginn 12. apríl nk.
Umsóknir um dvöl í íbúð fræðimanns
í Kaupmannahöfn 2022-2023
Orlofsnefnd Húsmæðra í Hafnarfirði
Auglýsir kynningar á orlofsferðum árið 2022
Í ár ætlum við að bjóða upp á 3 ferðir.
Rínarsigling 4. – 7. júlí 2022
Ferð til Ítalíu 7. – 12. september 2022
Aðventuferð til Koblenz 1. – 5. desember 2022
Rétt til að sækja um orlofsferð hefur sérhver kona sem veitir eða hefur
veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf.
Upplýsingar um ferðirnar er hægt að fá á heimasíðu félagsins
www.hafnarfjardarorlof.is
Einnig er hægt að senda email á hafnarfjardarorlof@gmail.com
Orlofsnefndin
Ráðgjöf varðandi húsnæðisskipti, erfðaskrá, kaupmála
eða dánarbúskipti. Lögmaður þér við hlið við sölu fasteignar
án þess að greiða aukalega fyrir þá þjónustu.
BÚUM VEL veitir nýja tegund þjónustu. Kynntu þér málið.
SÉRHÆFÐ
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
MEÐ ÁHERSLU Á 60+
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Þarftu að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
28 ATVINNUBLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR