Fréttablaðið - 12.03.2022, Page 75
Fólk
er
almennt
orðið mjög
vel upplýst
um mikil-
vægi þess
að huga vel
að heilsu
sinni og
vill upp til
hópa
stunda
heilbrigt
líferni.
Ágústa Johnson
Besta aðild í Hreyfingu
hefur heldur betur slegið
í gegn enda mætir hún
nútíma þörfum fólks með
aðgangi að þjálfara, aðhaldi,
hvatningu og ráðgjöf,
sveigjanlegum æfingatíma,
kjör aðstæðum til æfinga og
stórri gulrót sem er róandi
athvarf frá amstri dagsins
í einni glæsilegustu spa-
aðstöðu landsins.
„Við erum stöðugt að þróa og bæta
aðstöðuna okkar í Hreyfingu
ásamt þjónustunni sem við bjóð-
um. Við leggjum áherslu á að hafa
þjónustuframboð í takti við þarfir
fólks á hverjum tíma og í hæsta
gæðaflokki,“ sagði Ágústa Johnson,
framkvæmdastjóri Hreyfingar
þegar Fréttablaðið heimsótti hana
og Atla Albertsson, yfirþjálfara
Bestu aðildar í Hreyfingu.
Ágústa segir þá sem velja Bestu
aðild almennt vera ánægðari með
árangur sinn en gengur og gerist.
„Fólk er almennt orðið mjög vel
upplýst um mikilvægi þess að huga
vel að heilsu sinni og vill upp til
hópa stunda heilbrigt líferni, vera í
góðu formi, hreyfa sig reglulega og
styrkja, upplifa meiri orku og líða
vel í eigin skinni. Vandinn er að of
margir klikka á að setja heilsu-
ræktina í fyrsta sæti í lífinu og þá
eru líkur á að hún mæti afgangi og
fjari smám saman út þó að vilji sé
til staðar,“ segir Ágústa.
Hún segir reglulega og mark-
vissa styrktarþjálfun breyta miklu
fyrir lífsgæði okkar. „Við verðum
sterkari og hraustari og eigum auð-
veldara með að gera flesta hluti.
Grunnbrennsla líkamans eykst
og við eigum auðveldara með að
halda okkur nær kjörþyngd. Það
skiptir máli að hafa aðgang að
faglegri aðstoð og geta gengið að
góðu og hnitmiðuðu æfingakerfi
vísu þar sem hugsað er fyrir því að
styrkja og þjálfa allan líkamann,
hjarta- og æðakerfið ásamt liðleika
og jafnvægi.“
Nýverið hafa verið gerðar breyt-
ingar og umbætur á aðstöðunni í
Hreyfingu, sem er ein fullkomn-
asta líkamsræktarstöð landsins og
þótt víðar væri leitað.
„Besta aðild er okkar framlag til
þess að mæta þessum þörfum. Í
Bestu aðild fá meðlimir ekki aðeins
aðgang að úrvals æfingaaðstöðu,
heldur einnig aðgang að þjálfara á
æfingum og svigrúm til að velja úr
fjölda tíma með honum. Meðlimir
fá einnig aðgang að þjálfunar-appi
með sérsniðnu æfingakerfi sem
hægt er að gera hvar og hvenær
sem er, hvort sem er í Hreyfingu,
heima eða á ferðalögum.
Þjálfari Bestu aðildar veitir
persónulega ráðgjöf, gerir reglu-
legar líkamsástandsmælingar og
aðstoðar við markmiðasetningu.
Til viðbótar fylgja alls konar
notaleg og hugguleg fríðindi eins
og aðgangur að spa, handklæði og
sloppur við hverja komu, afslættir
á snyrti-, nudd- og spa-meðferðum,
frítt í Bláa Lónið yfir vetrartímann
og fleira.“
Þjálfari aðstoðar
Atli Albertsson íþróttafræðingur
og yfirþjálfari Bestu aðildar hugsar
vel um meðlimi sína og er úrræða-
góður þegar kemur að því að setja
saman æfingaáætlanir.
„Ég hef, eins og allir aðrir þjálf-
arar í Hreyfingu, brennandi áhuga
á hreyfingu og heilsusamlegum
lífsstíl og get ekki hugsað mér lífið
án þess að lyfta reglulega og þjálfa
líkamann. Mér finnst frábært að
miðla minni reynslu og þekkingu
og gera það sem ég get til þess að
fólkið sem hingað kemur nái sem
mestum árangri.
Það reynist mörgum erfitt að
koma hreyfingu inn í rútínuna
en þegar það tekst er ekki aftur
snúið. Þá einfaldlega getur fólk
ekki hugsað sér að sleppa æfingu.
Fyrsta skrefið er að mæta. Ég er í
það minnsta til í að taka vel á móti
þeim sem hingað koma og hjálpa
þeim af stað og leggja drög að
áætlun til að ná sínum heilsumark-
miðum,“ segir Atli Albertsson,
þjálfari í Hreyfingu og yfirþjálfari í
Bestu aðild. n
Besta aðild –
ný og betri leið til að æfa
og ná sínum markmiðum
Ágústa Johnson, framkvæmdastjóri Hreyfingar, í tækjasal líkamsræktarstöðvarinnar. MYND/SIGTRYGGUR ARI
Meðlimum Bestu aðildar stendur til boða fyrsta flokks spa-aðstaða eftir
æfingar. Hægt er að slaka á áður en haldið er aftur af stað. MYND/AÐSEND
Í Hreyfingu er öll aðstaða eins og best verður á kosið.
Atli Albertsson,
íþróttafræð-
ingur og þjálfari
hjá Hreyfingu,
er yfirþjálfari
Bestu aðildar.
Innifalið í Bestu aðild
n Fjölbreytt og árangursrík
þjálfun - með þjálfurum
Bestu aðildar!
n Leið fundin sem hentar
hverjum og einum
n Sérsniðin æfingaáætlun,
mælingar og markmiða-
setning
n Aðgangur að sérstöku
Hreyfingar appi
n Aðgangur að Hreyfing spa
með innrauðri sánu o.fl.
n 15 prósenta afsláttur af
snyrti-, nudd- og spa með-
ferðum
n Vetrarkort Bláa Lónsins
Undraveröld
Nýlega var bætt við að-
stöðuna í Hreyfingu spa og
þar er gestum nú boðið upp
á dásamlegt slökunarrými
með breiðum, mjúkum sófum
og hengirólum. Þar er einn-
ig notalegur heitur pottur,
innrauð sána og aðgangur
að útisvæði með heitum
pottum, jarðsjávarpotti með
hreinsuðum sjó, eimbaði,
sánu og köldum potti. Slökun
er mikilvæg heilsu okkar og
því er tilvalið að nýta sér
rýmið til þess.
kynningarblað 9LAUGARDAGUR 12. mars 2022 heilsur ækt