Fréttablaðið - 12.03.2022, Side 106
Ég yrði mjög hissa ef
niðurstaðan yrði ekki
hólmganga systra og
dætra.
Inga Auðbjörg Straumland,
Því án verslunar er lítið að
sækja. Miðbæjarfélagið í
Reykjavík telur að núverandi
götulokunar stefna sé
glapræði enda hefur hún
sannað það með skelfilegum
afleiðingum.
Það verður að snúa þessari
öfugþróun við og gera
Laugaveg aftur að þeirri
glæsilegu og skemmtilegu
verslunargötu sem hún var og
allt iðaði af lífi.
Fjölbreytt úrval verslanna af
öllum stærðum og gerðum
gáfu götunni líflegt og
skemmtilegt yfirbragð.
Við treystum Ragnhildi Öldu
til að leiða Sjálfstæðisflokkinn
í Reykjavík til sigurs og verða
sá leiðtogi sem flokkurinn
þarf á að halda og sem
borgarstjóra sem Reykjavík
þarf á að halda með margfalt
auknu samstarfi við íbúa
borgarinnar og rekstraraðila.
Þess vegna styðjum við
Ragnhildi Öldu
Miðbæjarfélagið í Reykjavík
lýsir yfir fullum stuðningi við
Ragnhildi Öldu Maríu
Vilhjálmsdóttur í fyrsta sæti
í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík 18. og 19. mars
næstkomandi.
Ragnhildur Alda hefur leitast
við að kynna sér þá
grafalvarlegu stöðu sem komin
er upp í verslun í miðbænum
og þá sérstaklega á Laugavegi
vegna götulokana, ört
fækkandi bílastæða og hefts
aðgengis. Ragnhildur Alda er
sammála okkur um að það er
sjálfsagt mál að loka götum á
góðviðrisdögum um sumarið
og þegar viðburðir eru sem
draga að margt fólk og að
götulokun á ekki einungis að
vera á valdi stjórnmálamanna
eða embættismanna, heldur
þurfa raddir þeirra sem reka sín
fyrirtæki þar, hafa sína
lífsafkomu þar og skapa
atvinnu þar að hafa mun meira
vægi í ákvarðanatökunni.
Þess vegna styðjum
við Ragnhildi Öldu
Í kvöld velur þjóðin framlag
Íslands til Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva.
Fréttablaðið leitaði til
spekinga til að spá fyrir um
hvernig kvöldið fer.
margret@frettabladid.is
Óperudívan Hallveig Rúnarsdóttir
heldur með Reykjavíkurdætrum.
„Besta atriðið er án efa Reykja
víkurdætur. Ég held að þær muni
taka þetta, en ef ekki þær þá Eyþórs
systurnar. Ég held að sjálfsögðu með
okkar bestu konum í Daughters of
Reykjavík! Það var bara svo mögnuð
orka frá þeim á sviðinu, atriðið er
litríkt og lagið er gott.“
Helga Möller á tvö uppáhalds
atriði í keppninni í ár. „Ég á svolítið
erfitt með að velja besta atriðið því
það eru tvö sem eru í uppáhaldi
hjá mér. Það eru Ellenardætur og
Reykjavíkurdætur. Bæði mjög fram
bærileg atriði og gott show. Bæði
atriðin búa yfir mikilli útgeislun og
gleði, en virkilega ólík atriði. Ég held
að landinn muni kjósa Reykjavíkur
dætur áfram til að keppa í Tórínó.“
Kvennateymi með reynslu
„Ég yrði mjög hissa ef niðurstaðan
yrði ekki hólmganga systra og
dætra. Ég get ekki ímyndað mér að
Stefán Óli, Amarosis og Katla eigi
roð í þessi tvö ólíku en jafnhæfu
kvennateymi, sem mæta á svæðið
vopnuð áralangri reynslu, ljóðræn
um siðferðisboðskap og samhæfð
um flutningi. Ef ég þyrfti að velja á
milli, þá hugsa ég að ég myndi setja
peninginn á Reykjavíkurdætur, þó
ég haldi örlítið meira með hinum,“
segir Inga Auðbjörg Straumland,
formaður Siðmenntar og einn heit
asti Euroaðdáandi landsins.
„Mér þykir Með hækkandi sól
alveg langsamlega best. Textinn er
framúrskarandi; ljóðrænn, merking
arþrunginn og fallegur. Lagið er fínt
og frábærlega f lutt. Atriðið er svo
fallega stíliserað, yfirvegað og fum
laust. Hópur sem myndi geta tekið
þetta ferli sem þátttaka í söngva
keppninni er og skilað því fallega
og faglega, frá A til Ö. Held þetta sé
líka lag sem lifir lengi, ólíkt mörgum
júróvisjónlögum sem eru orðin leið
inleg áður en keppnin jafnvel hefst …
En Reykjavíkurdætur með geimkúlu
á sviðinu og sennilegast klæddar
í afganga úr DragRacehönnunar
misförum, fara þessar hamhleypur
hamförum á sviðinu og skjóta feðra
veldinu ref fyrir rass.“
Svar Daníels E. Arnarsonar,
framkvæmdastjóra Samtakanna
’78 er með einfalt svar við öllum
spurningum blaðamanns: „Besta
atriðið, atriðið sem þjóðin kýs og
atriðið sem ég held með eru Reykja
víkurdætur.“
Þjóðin sniðgekk Haffa Haff
„Flottustu búningarnir, f lottasta
visjúalið og besta sviðsframkoman
eru tvímælalaust Reykjavíkurdætur,
en ég held að þær systur Sigga, Beta
og Elín hafi ekki sungið sitt síðasta
og að þjóðin heillist af þeim,“ segir
rokkhundurinn Tómas Steindórs
son, útvarpsmaður á Xinu. „Ég held
samt ekki með neinum, ég er brjál
aður. Ég hef ákveðið að sniðganga
úrslitakeppnina í ár fyrst að þjóðin
sniðgekk Haffa Haff. Hvílík mistök.
Ég skammast mín að vera hluti af
þessari þjóð“
Inga Auðbjörg hefur fylgst með
forkeppnum um Evrópu. „Það eru
í það minnsta sex rapplög eða lög
með rappkafla komin í keppnina
nú þegar, og ég er ekkert viss um
að þessar ofurkonur virki jafn töff
á Evrópu, eins og þær virka á okkur,
sem höfum samhengið, þekkjum
þær af afrekum sínum og höfum
fylgst með þeim í áratug. En það
skiptir mig svo sem litlu í hvaða sæti
við lendum og ég held við yrðum öll
hrikalega stolt af stelpunum okkar.“
Hlífar Óli Dagsson, 14 ára júró
visjónspekingur í Skagafirði segir
að ef Reykjavíkurdætur fara út þá
skipti litlu máli að það séu mörg
önnur rappskotin atriði. „Þær skera
sig algjörlega úr. Þetta atriði er vin
sælt hjá konum um fertugt en ég fíla
þær líka. Annars finnst mér systkin
in Már og Ísold, dúettinn Amarosis,
vera að ná vel til unga fólksins. Ég er
yfirleitt ekki hrifinn af ballöðum í
þessari keppni, en kærleikurinn á
milli systkinanna er svo smitandi.
Ég ætla að splæsa mínum tveimur
atkvæðum á þessi atriði, og ég hvet
fólk til að kjósa og horfa. Já, og gleðj
ast!“ n
Hólmganga systra og dætra
Hallveig
Rúnarsdóttir,
óperusöngkona
og fulltrúi klass-
ískrar tónlistar
Tómas Stein-
dórsson, út-
varpsmaður og
rokkhundur á
X-inu
Daníel E. Arnars-
son, fram-
kvæmdastjóri
Samtakanna ’78
Hlífar Óli Dags-
son, Eurovision-
sérfræðingur í
Skagafirði
Inga Auðbjörg
Straumland,
Eurovision-
spekingur
Helga Möller,
Eurovision-
kempa
Munu Reykjavíkurdætur heilla áhorfendur eins og þær heilluðu áhorfendur Hróarskeldu árið 2016? MYND/TOM MCKENZIE
Álitsgjafar
ninarichter@frettabladid.is
„60 minutes komu með sjö manna
tökuteymi til landsins á miðviku
dag og við fylgjumst með vinnu
brögðunum full aðdáunar,“ segir
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir,
dagskrárgerðarkona á RÚV.
„Þeim finnst þessi magnaða sam
staða Íslendinga í keppninni og
mikli áhugi Íslendinga á Söngva
keppninni og Eurovision vera
algjört undur og eru bara hérna
með okkur. Þau ætla síðan að fylgja
sigurvegaranum alla leið til Tórínó,
sem er ekki amalegt fyrir okkur
Íslendinga, að fá alla þá athygli og
umfjöllun!“
Hún segir keppendurna að sjálf
sögðu upplýsta um tilhögun mála
og að allir hafi gefið samþykki fyrir
umfjöllun í bandaríska fréttaskýr
ingaþættinum, sem hóf göngu sína
seint á sjöunda áratugnum.
„Ég held að við séum öll gífurlega
spennt fyrir að njóta þeirra nærveru
í okkar pródúksjón, og gaman og
gefandi að fá klapp á bakið frá svona
virtum sjónvarpsþætti,“ segir Ragn
hildur Steinunn.
„Þetta er mjög skemmtilegt og
gaman að sjá hvað þau taka þessu
alvarlega og kryfja til mergjar hvers
vegna íslenska þjóðin er með júró
veiruna.“
Bandarískur risi fylgir íslensku
keppendunum í stóru keppnina
Ragnhildur
Steinunn Jóns-
dóttir, dagskrár-
gerðarkona á
RÚV.
Nánar á frettabladid.is
Tökuteymi
Bandaríska
fréttaskýringa-
þáttarins 60
minutes kom til
landsins á mið-
vikudag.
54 Lífið 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 12. mars 2022 LAUGARDAGUR