Fréttablaðið - 12.03.2022, Qupperneq 108
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Maður er
bara
stúmm.
Í afneitun
á köflum.
n Frétt vikunnar
Arnar Eggert Thoroddsen
arnartomas@frettabladid.is
Endalausar stríðsfréttir hafa eðli
lega átt hug manns allan, því miður.
Maður er bara stúmm. Í afneitun á
köflum. Og velur að lesa ekki fréttir
en endar samt alltaf á því. Sorglegast
er þó að þetta eru engar „fréttir“,
þetta er sami viðbjóðurinn og við
sem mannkyn höfum stundað alla
tíð. Ég man ekki í hvaða viku fréttin
var sem gaf mér smá vonarglætu,
knúði fram smá bros.
Ótrúleg frétt af bjarnabófanum
„Hank the Tank“ sem herjaði á
saklausa sumarbústaðaeigendur
í Ameríkunni. Fréttamaður sýndi
mikil stílþrif í skrifunum, reit þetta
sæmilega alvarlega, getum við
sagt, og passaði vel upp á kerskna
myndatexta. Þetta er svona frétt
sem maður skrifar klukkan 17.00
á föstudegi þegar kvöldúlfurinn
eða vikuúlfurinn er mættur inn í
örþreyttan blaðamanninn. Sé síðan
rétt í þessu, mér til furðu, að annað
brjóst söngkonunnar Camillu
Cabello hafi poppað út í beinni á
BBC. SKýringin ku vera laus hneppt
skyrta. Þannig að vikan hefur að
sönnu einkennst af stóru málunum
mætti segja, mannkyn allt bókstaf
lega með allt niðrum sig á öllum
sviðum. Dýraríkinu farnast betur. n
Dýraríkinu farnast betur
Arnar Eggert Thoroddsen tónlistargagnrýnandi.
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Dorma_AD_Blad_v01.pdf 1 15.2.2022 09:17:46
www.DORMA.is
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Sealy PORTLAND
heilsurúm með classic botni
Gæði á góðu verði.
Portland er með
góðum og sterkum
poka gormum og
kantstyrkingum. Dýnan
er millistíf og með pillow
top úr mismunandi stífum
svamplögum og trefja lagi. Mýkt á móti
stífum og góðum gormum.
Fæst í: 120/140/160/200 x 200 cm.
Verðdæmi 120 x 200 cm m/Classic botni og löppum
Fullt verð: 160.900 kr. Tilboð: 128.720 kr.
LÝKUR MÁNUDAGINN
14. MARS
Sealy SEATTLE
heilsurúm með classic botni
Verðdæmi 180 x 200 cm m/Classic botni og löppum
Fullt verð: 194.900 kr. Tilboð: 155.920 kr.
Virkilega vönduð dýna.
Millistíf heilsudýna með pokagormum
sem gefa fullkominn stuðning. Henni er
skipt upp eftir svæðum þannig að það er meiri stuðningur þar
sem við erum þyngri eins og öxlum og mjöðmum. Náttúrulegt
Talalay latex í bland við mismunandi svamptegundir gefa henni gott
loftflæði. Virkilega vönduð dýna sem hentar fólki á öllum aldri.
Fæst í 120/140/160/200 x 200 cm.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Anna Dymaretska heldur úti
styrktarsíðu ásamt móður
sinni til stuðnings stríðs
hrjáðum Úkraínumönnum.
Anna segir meira máli skipta
hversu mörgum sé hægt að
bjarga frá hörmungum stríðs
ins heldur en hver stendur
uppi sem sigurvegari.
tsh@frettabladid.is
Úkraínsku mæðgurnar Anna Dyma
retska og Olena Zablocka hafa búið
á Íslandi um árabil. Þær hafa miklar
áhyggjur af ástandinu í heimaland
inu í kjölfar innrásar Rússa enda
fjölmargir ættingjar og vinir þeirra
enn staddir í Úkraínu. Til að leggja
sitt af mörkum hafa þær því stofnað
sérstaka Facebooksíðu í þeim til
gangi að aðstoða einstaklinga með
beinum framlögum hvað varðar
mat, lyf og fargjald yfir landamærin.
„Á hverjum morgni sendum við
skilaboð og athugum hvort fólkið
okkar sé á lífi, hvort þau séu örugg,
hvort þau hafi nógan mat og vatn,
hvort þau vanti peninga og hvort
við getum hjálpað þeim. Sum
þeirra búa í bæjum þar sem enn er
hægt að verða sér úti um vistir en
sum þeirra í bæjum þar sem allar
hillur í búðum eru tómar og það er
ómögulegt að kaupa lyf í apótekum.
Að minnsta kosti er gott að vita að
þau séu á lífi,“ segir Anna.
Grundvallarþarfir í hættu
Spurð um hvort það sé ekki erfitt að
fylgjast með stríði í heimalandi sínu
en vera sjálf mörg þúsund kílómetra
í burtu, segir Anna mikið mæða á
öllum Úkraínumönnum sem eru
búsettir utan heimalandsins.
„Hugur okkar, hjörtu okkar og
bænir okkar eru hjá fólkinu okkar í
Úkraínu. Auðvitað viljum við hjálpa
eins mikið og við getum. Akkúrat
núna eru allir Úkraínumenn sem
eru búsettir erlendis, ekki bara á
Íslandi, að safna peningum, lyfjum,
fötum, barnahlutum og senda þá
yfir til Úkraínu.“
Að sögn Önnu er sífellt erfiðara
að nálgast vistir í Úkraínu og mikill
skortur hefur myndast á nauðsynja
vörum eftir rúmlega tveggja vikna
stríðsátök.
„Margar mæður hafa neyðst til að
fæða börn í sprengjuskýlum og hafa
ekki aðgang að hreinum bleyjum,
fötum eða vatni. Grundvallarþarfir
mannlífs eru í hættu, matur, vatn,
hreinlæti. Þetta eru erfiðir tímar,“
segir hún.
Er enn mögulegt að senda vistir
yfir landamærin til Úkraínu?
„Það er ekki einfalt en við höfum
fundið leið. Við söfnum saman
öllum hlutunum sem við fáum og
sendum þá út í einum stórum gámi
að landamærum Póllands. Þar
munu sjálfboðaliðar taka vistirnar
sem hafa verið sendar, skipta þeim
niður og senda þær áfram.“
Hafðir að fíflum af Pútín
Anna er ómyrk í máli spurð um
hvort hún sé vongóð um að Úkra
ínumenn muni koma út úr stríðinu
sigursælir.
„Þetta snýst ekki um hver muni
vinna, þetta snýst um hversu mörg
um verður bjargað. Það eru svo
margir almennir borgarar sem hafa
dáið. Við viljum bara stöðva þetta
brjálæði. Rússneski herinn skilur
ekki hvað hann er að koma sér út í.
Þeir hafa verið blekktir og hafðir að
fíf lum af Pútín. Þeir halda að þeir
séu að koma til Úkraínu til að bjarga
okkur, en svo þegar þeir koma inn í
landið og sjá það sem raunverulega
er að gerast fá þeir áfall og trúa því
ekki að þeir séu komnir í stríð. Þess
vegna eru þeir að tapa og svo margir
ungir menn hafa verið drepnir af því
þeir vissu ekki hvað þeir voru að
koma sér út í.“
Sú eina sem komst burt
Ísland hefur þegar byrjað að taka
á móti f lóttamönnum frá Úkraínu
og Anna segir úkraínska samfélagið
hér á landi gera sitt besta til að
bjóða það fólk velkomið. Þeirra á
meðal er tengdamóðir Önnu, Svetl
ana Uzunova, móðir eiginmanns
hennar, Vladyslavs. Hún komst yfir
landamærin til Ungverjalands og
þaðan til Íslands.
„Hún var sú eina úr fjölskyldunni
okkar sem náði að f lýja frá Úkraínu
af því hún var næst landamærun
um. Allir aðrir eru fastir og komast
hvergi,“ segir Anna.
Spurð um hvort Ísland sé að
gera nóg til að aðstoða úkraínska
f lóttamenn segir Anna Íslendinga
vera að gera sitt og fyrir það sé hún
þakklát.
„Það að fólk sé boðið velkomið
hingað er þegar mjög mikilvægur
hlutur. Ég vona bara að ríkisstjórn
in muni geta útvegað þeim mat og
peninga til að þau geti ekki bara
tórað heldur líka lifað aðeins betra
lífi,“ segir Anna.
Upplýsingar um söfnun Önnu og
Olenu má finna á Facebooksíðunni
Targeted assistance to Ukrainians. n
Vilja bara stöðva brjálæðið
Mæðgurnar Olena Zablocka, til hægri, og Anna Dymaretska, í miðju, ásamt eins árs dóttur Önnu, Eleonoru Adelyn
Vladyslavsdóttur. Svetlana Uzunova, tengdamóðir Önnu, er til vinstri. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Nánar á frettabladid.is
56 Lífið 12. mars 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ